Vísir - 14.07.1962, Síða 15

Vísir - 14.07.1962, Síða 15
SAKAMÁLASAGA EFTIR CHARLES WILLIAMS FJÁRSJÓÐURINN 3. eftir að hún hafði fengið slag. Hún átti heima í útjarði borgar- innar, beint á móti mikilli einka eign — sem náði yfir heilt hverfi, ef svo mætti segja. Og þetta var eign Butlers, eins og þér munuð geta yður til. Af til- viljun sá ég, að bílnum, sem fannst þar, var ekið þaðan á laugardagskvöldi — en það var kona Butlers, sem sat við stýrið. — Þér segið, að þetta hafi ver- ið að kveldi til. Hvernig gátuð þér séð hver sat við stýrið, þar sem dimmt var orðið? — Af því ég /ar úti í garðin- um og reykti vindling, áður en ég fór upp og í háttinn. Ég leit þangað alveg um leið og frúin ók út á götuna og í sömu svifum kom annar bíll og í birtu fram- ljósa hans sá ég glöggt hver sat við stýrið — og að frú Butler var ein í bílnum. — Það getur vel verið, að hún . hafi bara verið að aka svo lítið um áður en hún fór að hátta. Hann getur hafa ekið honum seinna. — Hún notaði aldrei þann bíl, því að hún hafði sinn eigin bíl. Það var hún sem skildi bílinn eft . ir, ekki hann. Það get ég lagt eið út á? — En hvers vegna? Nú skal ég reyna að útskýra fyrir yður nánara skoðun mína á i u ■ a o i I ýmsu. Ég held, að hann sé dauð ur — væri hann það ekki myndu þeir búnir að. finna hann. Hann var af írskum ættum, sérkenni- legur, hár, fríður sýnum og við- felldinn, — 63 ára og vóg að minnsta kosti 115 kfló. Nei, það myndi erfitt fyrir mann eins og hann aC vera lengi í felum eða dulbúast svo, að enginn bæri kennsl á hann. Svo er annað, ef menn taka upp á að hverfa svona r.llt í einu, er næstum allt af kona með í spilinu. Og hvað naldið þér, að konan hans myndi gera, ef hún uppgötvaði það? Eftir að hann hyrfi með peningana og hinn kvenmanninn og hún sæti eftir með sárt ennið og vanvirðuna? Þér haldið kann ske, að hún hafi pakkað niður í koffort hans, og fullvissað sig um, að hann hefði nógu marga hreina vasaklúta með? — Nei, en hvað með hana? — Er hægt að iesa úr svip manns, hvort hann — eða hún — áformar að fremja morð? Gæti það ekki komið yfir flesta, að r löngun ti’ slíks, til að hefna sín til dæmis, en annars veit ég lítið um hana nema að hún ýhr einhver fegursta koná, sem ég hefi séð. Hún var há og grönn, með stór augu, og hún er af gamalli ætt og húsið upp- '.V.VAWAV.VV.V.VV.V.V haflega hennar eign. Og hún drekkur eins-og cvampur. — Fátt hefur farið fram hjá yður. — Þetta eru leyndarmál, sem eru löngu hætt að vera leyndar- mál. Allir vissu um þetta. — Og þér eruð þannig helzt á því, að hún hafi drépið mann- inn sinn og peningarnir séu geymdir þarna í húsinu. —1 Rétt. — En hefur lögreglan ekki rannsakað málið. — Það hefur sjálfsagt verið yfirborðsathugun, því að þar sem Butler hvarf, mun hún ekki hafa efast um, að hann hafi strokið með peningana. — En svo er annað. Hafi hún drepið hann, hvernig hefur hún losnað við líkið af svona stórum manni. Hún hefur varla hringt eftir bíl til flutnings á því. Ég veit ekki hvernig hún hef- ur farið að, hafi hún drepið hann. Hún hefur getað snúið sér til vinar, sem hún treysti. Hún þurfti líka að komast frá San- port, eftir að hafa losað sig við bílinn, og hún gat ekki átt á hættu að fara í strætisvagni, ef æMfýé$Æ>æri kennsl á hana. | — Ég sé á öllu, að þér hafið lítið álit á frúnni, lítið á hana | sem fyllibyttu, sem framdi —UlU hmíjf . Mjög skemmtilegt bréf, já mjög skemmtilegt, en hvar er það sem ég las fyrir yður? morö. Af hverju er yður svona uppsigað við hana? — Álit mitt á henni skipt- ir kannske ekki miklu. En það skiptir máli, sem peningana varð ar, og hvernig við getum náð þeim. Og til þess þurfum við að afla staðreynda. — En enn sem komið er höf- um við að eins getgátur yðar að byggja á. Hvað finnst yður, að við ættum að taka til bragðs. — Leita í húsinu, þótt við yrð- um að setja þ$r allt á annan endann. Annað hvort finnum við peningana eða við komumst á snoðir um hvað varð af Butler. i ? « ■ ■ a i R A PM5 Skyndilega komst dráparinn í mikinn ham. Stór og mikill hnefi hans þeytti varðmönnum hans um koll. raSENTLV, NEL7 AT E5AV BV GU'VE KOF'ES, THE K/LLEZ WAS 5KOUSHT FOKTH- A SIANT FKEAK. ll OF A. VvAN [ MaMM Jo^ - CÍM70 TAKZAN ALSO WAITE7, CALMLV, FOK HE WAS NOT AWAKE OF THE TEKKISLE 0K7EAL AHEA7. i Q.Mbtf Hann hló vitfirringslega og sló saman hauskúpum þeirra. Hann sneri sér við og leitaði með blóðihlaupnum augum að fórn manninn og stefndi þegar í áttina ardýri Hann kom auga á apa- j til hans. •.V.V.V.V.V.V.W Barnasagan Kalli og eldurL. Áður en Ruffiano vísaði gestum sínum inn, nam hann staðar og sagði: „Herrar mínir. Ég ætla nú að sýna ykkur allar mínar fallgryfjur, snörur, leynigöng og margt fleira. Ég vil ekki leyna neinu fyrir furst anum." „Þökk sé yður,“ sagði furstinn, „ég vildi gjarna gefa yður helm- inginn af ríki mínu, bara ef ég vissi ekki, að þér viljið fá hinn blutann lika,“ sagði hann og brosti Brosandi gekk greifinn frarh. „Við skulum byrja á fallgryfjunni. Um ieið þrýsti hann á hnapp og helm- ingurinn af gólfinu hvarf. „Gömul uppfinning er stöðugt árangurs- rík. Gegnum þessa gryfju fellur fólkið beint niður í sjóinn.“ — Brjótast þar inn — þótt frúin kunni að vera heima? Látið yður ni'. detta eitthvað betra í hug. — Hún er stödd hér í bænum á einhverjum fundi eða ráð- stefnu, og ég skal heimsækja hana og sjá um, að hún lendi svo illa á því, að hún verði drukkin nokkra daga. Þá fáið þér nægan tíma til þess að rannsaka húsið, áður en hún kemst heim. — Þér ættuð að reyna að kló- festa einhvern enn heimskari en mig. Þér getið setið rólegar ein hvers staðar og beðið, en ef eitt hváð klikkar er öllu lokið fyrir mér. — Það er engin áhætta. Hús- ið er inni í stórum garði og hátt limgerði umhverfis hann. Trén í honum eru stór og hylja það að mestu. Það er þerna í húsinu, en hún býr hjá fólki sínu, þegar frúin dvelst þar. Það má vera að lögreglan komi þama við í eftirlitsferð einu sinni á nótt, en þér gætið allrar varúðar, — ég skil ekki í að þér þurfið að rykkja hurðinni af hjörum til að komast inn. Gluggatjöld eru þykk og það er matur í eldhús- inu. Þér munuð ekki svelta. — Það má vera, að það sé ekki eins áhættusamt og ég hélt, en þetta sannar ekkert. Kannske vissi hún um allt og ók bílnum hingað til þess að villa mönnum sjónir, meðan hann ók í allt aðra átt? En hún hristi höfuðið. — Hún drap hann og pening- arnir eru enn í húsinu. — Það er mér ráðgáta hvað þér eruð viss um þetta. — Og fyrst þér treystið mér ekki uetur en þetta viljið þér kannske ekki gerast félagiminn? Ég hugleiddi flvað ég gæti gert, ef ég hefði helming þessa fjár handa milli, en samt — þessar tilgátur hennar, voru órök studdar með öllu. — Ég yrði að fá traustari upp-i lýsingar til þess að hætta á þátt- töku, sc.gði ég loks. — Þér hafnið fjársjóði, sagði hún.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.