Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 6
Tölvumál janúar 1990 NOTKUN TÖFLU- REIKNA Elías Elíasson Forstöðumaður Tækniþróunar-deildar Landsvirkjun Við val á töflureikni er mikilvœgt að hafa í huga, að skipanir séu aðgengilegar. Þá á ég ekki aðeins við að fljótlegt sé að gefa þær skipanir sem maður kann, heldur ekki síður að fljótlegt sé að finna þær sem maður kann ekki. Það mun hafa verið 1962 eða þar um bil, að ég sá tölvu í fyrsta sinn. Þetta var kassi, rúmur meter á hæð, tveir á lengd og innan við einn á breidd, með ritvélarborði öðru megin og röðum af ljósum þar yfir. Fyrirbrigðið var frá IBM og var forritað í Fortran. Ég man að einn félagi minn þurfti að leiðrétta landmælinguna sína og gerði til þess forrit á þessa vél. Ég skildi þá ekki hvers vegna maðurinn lagði á sig það erfiði að slá allar þessar tölur inn á gataspjöld og labba með þau í tölvuna, í stað þess að reikna þessar tiltölulega einföldu formúlur á reiknistokk. Ég skildi þetta enn síður seinna, þegar ég fór að kynnast nánar vinnubrögðunum kringum tölvur. Maður tók slatta af tölum ásamt hrafli af formúlum og mokaði inn í vélina. Út kom pappír sem klippa þurfti inn í handrit, sem síðan fór í vélritun og þá fyrst var hægt að kynna verkið. Mér fannst þurfa æði stór dæmi til að þetta gæti borgað sig. Hefðbundin forritun útheimtir mikla skipulagningu. Það þarf að leggja nákvæmlega niður fyrir sér fyrirfram hvemig best er að koma gögnunum fyrir í stökum breytum, fylkjum eða vektorum og síðan þarf að ákveða hvað sett er í aðalforrit og hvað í undirforrit. Þá hefur hefðbundin forritun þann leiða ókost, að augljós villa í úttaki bendir ekki alltaf beint á þann stað í forritinu þar sem orsökin er. Töflureiknar hafa ekki þessa ókosti, að minnsta kosti ekki í jafn ríkum mæli. Þeir líkja eftir því umhverfi sem maður er vanur úr skóla, blaðið liggur opið fyrir augunum, skriffærið undir gómunum og hægt er að ráðast beint á fyrirliggjandi gögn. Líta má á töflureikninn ásamt öðrum hugbúnaði og tölvunni sem þjónar honum sem afmarkað kerfi, það er kerfið “tölva með búnaði”. Tölvan er síðan hluti af stærra kerfi sem við getum kallað kerfið “starfsmaður með vinnuaðstöðu”. Önnur undirkerfl í kerfinu starfsmaður geta verið t.d. sími, húsgögn, skrifstofa, samstarfsfólk o.s.frv. Kerfið “starfsmaður með vinnuaðstöðu” tekur við alls konar boðum og áhrifum, sem kalla má inntak, frá umhverfi sínu eða næsta yfirkerfi og sendir síðan frá sér boð sem kalla má úttak. Magn og gæði úttaksins er fyrst og fremst háð virkni starfsmannsins og samkvæmt almennum kerfisfræðilegum kennisetningum er hagkvæmni hvers kerfis metin með því að bera saman kostnað annars vegar og áhrif á virkni næsta yfirkerfis hins vegar. Til að meta gagnsemi töflureiknis þarf því að skoða þá vinnuferla sem greina má innan kerfisins “starfsmaður” og athuga hvaða áhrif töflureiknir hefur á virknina. Hlutverk starfsmanns er að sjálfsögðu margslungið, en eftirfarandi framsetning þjónar tilgangi: Starfsmaðurinn tekur við gögnum frá umhverfi sínu, sum þeirra eru tölvutæk. Hann leggur við reynslu sína og hugmyndir og setur gögnin fram á nýjan hátt. Hann metur útkomuna og gerir síðan annað af tvennu, að móta hugmynd eða tillögu sem hann kynnir umhverfi sínu, eða hann bætir við fleiri hugmyndum og endurtekur leikinn, hugsanlega eftir fyrirspumir eða þreifingar úti í umhverfinu. Það er vert sérstakrar undirstrikunar að nýjar hugmyndir og tillögur eru aðeins til innan kerfisins “starfsmaður með aðstöðu” þar til hann hefur kynnt þær í umhverfi sínu, en það er athöfn sem jafngildir sölustarfsemi. Það er því oft mögulegt að auka virkni starfsmanns með því að efla kynningartækni hans. Mín fyrstu kynni af töflureiknum var þegar “Flowcalc”-forritið var sett upp á VAX tölvu Landsvirkjunar. Þetta er ákaflega

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.