Tölvumál - 01.01.1990, Side 18

Tölvumál - 01.01.1990, Side 18
Tölvumál janúar 1990 X.400 kerfið notar svonefnda geymsluskilatœkni, store-and- forward, og því er ekki nauðsynlegt að viðtakandi sé í sambandi við kerfið þegar skeyti er sent heldur er það geymt þar til unnt er að koma því til hans. Þeir áskrifendur sem nota PC og sambcerilegar einmenningstölvur, munufá með áskrift sinni X.400 forrit meðnotendamiðla eiginleikum og geta því undirbúið skeyti sín áður en þeir hringja í skeytatölvu Pósts og síma. X.400 mun greiða leiðina að því marki að minnka pappírsvinnu og stuðla að framgangi skjalalausra samskipta á borð við EDI. Fyrst ber að nefna notendamiðilinn eða notendaútstöðina, UA, User Agent, Það er sá hluti kerfisins sem notandi hefur samskipti við og í honum eru skeyti undirbúin, aðlöguð, send og móttekin. Fyrst í stað munu notendamiðlar verða ýmist í búnaði notendanna sjálfra, eða sem hluti af tölvu skeytaflulningsþjónustunnar en það er ætlun CCITT að í framtíðinni verði notendamiðlar hjá notendum. Önnur eining er skeytaílutningsmiðill eða MTA, Message Transfer Agent. Hann sér um að koma skeytum frá sendanda til viðtakenda. X.400 kerfið notar svonefnda geymsluskilatækni, store- and-forward, og því er ekki nauðsynlegt að viðtakandi sé í sambandi við kerfið þegar skeyti er sent heldur er það geymt þar til unnt er að koma því til hans. Tengingar við önnur X.400 kerfi fara um MTA. Ein eining til viðbótar er skeytageymsla kerfisins eða MS, Message Store. Unnt er að geyma skeyti notenda í þessum skeytageymslum þar til þau eru sótt. Þessar þrjár einingar til samans mynda skeytaflutningsþjónustuna MTS, Message Transfer Service. Innan hvers lands er einn afmarkaður hluti fyrir opinberan rekstur, og hann nefnist ADMINISTRATIVE DOMAIN, eða ADMD, og hann inniheldur ofangreindar einingar, en fyrirtæki geta einnig haft sér kerfi sem tengjast því opinbera og kallast þau PRIVATE DOMAINS, eða PRMD. í hverju landi er að minnsta kosti eitt ADMD kerfi og öll PRMD kerfi tengjast um ADMD. Samtengingar á milli landa eru alltaf um ADMD hluta. Ónefndar eru tengingar við önnur samskiptakerfi. Stuttu eftir að þjónustan verður tekin í gagnið hér á landi verða opnaðar tengingar við TELEX, bæði til innkomandi og útfarandi notkunar en einnig verður opnuð tenging við TELEFAX tæki til útfarandi notkunar. Ekki er gert ráð fyrir innkomandi TELEFAX skeytum í staðlinum frá 1984 en sá möguleiki er í 1988 staðlinum. Hafi viðtakendur skeyta hvorki tölvu, telex né telefax er mögulegt að láta prenta út skeyti og bera út í pósti. Tengingar notanda við kerfið verða annarsvegar í gegnum gagnaflutningsnetið og hinsvegar með fjölhraða upphringimótöldum fyrir ósamhæfð samskipti frá einmenningstölvum. Mótöldþau sem notuð verða eru fyrir fjölhraða- notkun og með MNP villuvöm þeirri sem fyrr var greint frá. Þeir áskrifendur sem nota PC og sambærilegar einmenningstölvur, munu fá með áskrift sinni X.400 forrit meðnotendamiðla eiginleikum og geta því undirbúið skeyti sín áður en þeir hringja í skeytatölvu Pósts og síma. Notendur annarra einmenningstölva, svo sem Macintosh, þurfa hinsvegar að hringja til skeytatölvunnar fyrst og vinna skeytin í notendamiðli þar. Stærri tölvur munu tengjast um gagnaflutningsnetið og keyra sinn eigin X.400 hugbúnað og því tengjast almenna kerfinu sem fyrmefnt PRIVATE DOMAIN. X.400 mun með tímanum hafa veruleg áhrif á samskipti manna, sér í lagi í viðskiptum og að því mun koma að kerfi þetta mun þykja jafn ómissandi og talsíminn er í dag. Öll fyrirtæki og stofnanir, stór og smá svo og einstaklingar munu geta nýtt sér það og geta skipst á upplýsingum með meira öryggi og hraða en nú tíðkast. Vegna víðtækrar samstöðu um einn staðal og eitt kerfi fyrir allan heim munu tæknilegar hindranir í gagnaskiptum á milli manna hverfa. X.400 mun greiða leiðina að því marki að minnka pappírsvinnu og stuðla að framgangi skjalalausra samskipta á borð við EDI. X.400 mun gera vinnu manna markvissari og leiða til aukinnar framleiðni. Með samskiptaforritum fyrir notendaútstöðvar í einmenningstölvum munu einstaklingar hafa á borði sínu fullkomið samskiptatæki sem ná mun um síðir til allrar veraldar og allra manna. 18

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.