Tölvumál - 01.01.1990, Page 19
Tölvumál janúar 1990
Jón Freyr Jóhannsson
tölvunarfræðingurhjá
SKÝRR
AUTO-MATE
PLUS:
Verkfæri fyrir LSDM
aðferðina
Hjáfyrirtceki eins og SKÝRR er
auðvitað
mikil hagrœðing íþví að nota eina
kerfisfrœðiaðferð
í stað þess að þurfa að viðhalda
þekkingu starfsmanna á fleirum.
Ég ætla að kynna stuttlega CASE-
verkfærið AUTO-MATE PLUS
(AM+) fráLBMS (LBMS er
skammstöfun á Learmonth &
Burchett Management Systems, sem
er breskt ráðgjafafyrirtæki).
Undirritaður hefur kynnst AM+ í
starfi sínu við hugbúnaðargerð hjá
SKÝRR. Ekki er ætlunin að kynna
AM+ ítarlega, en þau atriði sem ég
ætla að nefna eru:
- Grunnur AUTO-MATE
PLUS í LSDM-aðferðinni
- Hvaða hluta hugbúnaðarferilsins
spannar AUTO-MATE PLUS og
hvað tekur við í framhaldi af
AUTO-MATE PLUS í
hugbúnaðarferlinum ?
- Hvers vegna notum við AUTO-
MATE PLUS hjá SKÝRR?
- Hvað vinnst með notkun AUTO-
MATE PLUS og hver er reynsla
SKÝRR?
- Hönnun, frágangur og annmarkar
AUTO-MATE PLUS og
vænlanlegar úrbætur.
HVAÐ ER LSDM?
AUTO-MATE PLUS byggir á
LSDM-aðferðinni.
LSDM stendur fyrir LBMS
Structured Development Method,
sem kalla má LBMS
kerfisfræðiaðferðina. LSDM er
viðurkennd kerfisbundin aðferð við
greiningu og hönnun, hvort sem um
er að ræða greiningu á handvirkum
eða vélvæddum ferlum.
Einn styrkur LSDM liggur í því að
aðferðin byggir ekki á einni
fræðilegri aðferð heldur á
samtíningi af aðferðum og
samþættingu þeirra í eina heild.
Aðferðin skiptist í áfanga, sem
síðan er skipt í þætti og hverjum
þætti fylgir verkefnalisti. í LSDM-
aðferðinni eru gögn og gagnaflæði
útgangsatriði og LSDM notar
myndmál og texta til að lýsa
gögnum og kerfum. Myndmálið er
mjög sterkt 'tæki' til yfirsýnar
meðan textinn fjallar um smáatriðin.
Svið AUTO-MATE PLUS í
hugbúnaðarferlinum.
Skoðum nú hvaða hluta (eða svið)
hugbúnaðarferilsins AM+ spannar.
Með einföldun má líta á
hugbúnaðarferilinn sem hér segir:
- Stefnumótun fyrirtækis eða
stofnunar í upplýsingatækni.
- Greining eldri kerfa (handvirkra
eða vélvæddra).
- Greining þarfa nýs kerfis.
- Hönnun kerfis.
- Kerfissetning, þ.e. forritun, prófun,
uppsetning og fleira því líkt.
- Viðhald sem tengist síðan aftur
ferlinum í gegnum endurhönnun.
(Viðhald er því í eðli sínu
greiningarþáttur.)
AUTO-MATE PLUS tekur yfir
þann hluta ferilsins sem markast af
greiningu og hönnun. Segja má að
lítið brot kerfissetningar falli inn í
AM+ því uppsetningu skráa er hægt
að vinna með AM+ eins og síðar
verður vikið að. Ég lít svo á að
viðhaldið falli einnig alveg innan
ramma AM+, því viðhald er í eðli
sínu greiningarþáttur sem síðan
fylgir endurhönnun.
Forritunina sem slíka er ekki rétt að
kalla viðhald, heldur er hún (oftast)
afleiðing af endurhönnun í
framhaldi af endurgreiningu, sem
við köllum viðhald.
Hvað tekur við þar sem AM+ skilur
við okkur á hugbúnaðarferlinum,
þ.e.a.s. hvað gerist þegar 'ýtt er á
takkann'? Auk sjálfsagðra hluta eins
og kerfislýsinga, atriðaorðasafns,
einindalýsinga, lýsinga á færslum,
aðgerðum, flæði skjámynda o.fl., þá
skilgreinir LSDM kerfísbundnar
aðferðir til að vinna skráarlýsingar
fyrir eftirtalin gagnasafnskerfi úr
gögnum LSDM-ferilsins.
-ADABAS-ORACLE
- IMS - INGRES
- IDMS - SEED
- IMAGE - dBASE III
- VSAM
- DB2 og fleiri
19