Tölvumál - 01.01.1990, Side 28
Ráðstefna um
ÞÝÐINGAR Á
TÖLVUÖLD
Reykjavík, miðvikudaginn 24. janúar 1990
IBM á íslandi og Orðabók Háskólans efna til ráðstefnu undir
yfirskriftinni „Þýðingar á tölvuöld” hinn 24. janúar nk. kl. 10:00-
16:45. Ráðstefnan er haldin í tilefni af 5 ára samstarfsafmæli
Orðabókarinnar og IBM á sl. ári.
V andaðar þýðingar skipta miklu fyrir framvindu og rækt íslensks máls.
Vel fer á því að ráðstefna um þetta efni skuli haldin nú í framhaldi af
málræktarátaki því sem staðið hefuryfir að undanfömu að frumkvæði
menntamálaráðherra.
Undanfarin ár hefur Orðabók Háskólans unnið að umfangsmiklum
þýðingum tölvuforrita og tölvubóka fyrir IBM á íslandi. Því þótti vel
til fundið að samstarfsafmælisins yrði minnst með ráðstefnu þar sem
fjallað yrði um þýðingar frá sem flestum sjónarhomum, mismunandi
þýðingarsvið og notkun tölvutækninnar við þýðingar. Alls verða fluttir
níu fyrirlestrar á ráðstefnunni þar sem fjallað verður um bók-
mcnntaþýðingar, biblíuþýðingar, orðabókaþýðingar, íðorðaþýðingar,
þýðingar forrita, vélrænar þýðingar, leiðbeiningar um þýðingar og
þýðingaslarfIBM í alþjóðlegu samhengi. Ræðumennverða: Kristján
Árnason, bókmenntafræðingur, Guðrún Kvaran, orðabókarritstjóri,
Jón Hilmar Jónsson, orðabókarritstjóri, Sigrún Helgadóttir,
tölfræðingur, Njörður P. Njarðvík, dósent, Stefán Briem, eðlis-
fræðingur, Heiga Jónsdóttir, deildarstjóri, Höskuldur Þráinsson,
prófessor, Heimir Pálsson, cand.mag. og Örn Kaldalóns, deildarstjóri.
Ráðstefnustjóri verður dr. Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur.
Ráðstefnan fer fram í AKOGES-salnum í Sigtúni 3, en í því húsi er
þýðingastöð Orðabókar Háskólans. Þátttakendum verður einnig kynnt
starfsemi þýðingarstöðvarinnar.
Þátttöku skal tilkynna til IBM í síma 91 - 69 77 90 eða til þýðingadeildar
OH í síma 91 - 68 60 15 fyrir 22. janúar n.k.