Vísir - 26.07.1962, Blaðsíða 1
VÍSIR
52. árg. — Fimmaudagur 26. júlí 1962. — 169. tbl.
samningar vii Rússa?
Heildarsöltun síldar fyrir
norðan og austan nemur nú um
200 þúsund tunnum. Það er með
öðrum orðum að verða búið að
salta upp í gerða samninga, og
síldarsöltun stöðvast í fram-
kvæmd vegna aðvörunar síldar
utvegsnefndar, þar eð ekki hef-
Framh. á bls. 5.
Síldarsöltun stöðvast!
I gær barst síldarsaltendiun
eftirfarandi bréf frá Síldarút-
vegsnefnd:
Siglufirði, 25. 7. 1962.
Fyrirframsamningar um
sölu Cut-síldar hafa nú verið
uppfylltir. Samningar um
frekari sölu standa yfir, en
niðurstaða af þeim samninga-
umræðum er ekki enn fyrir
hendi.
Síldarútvegsnefnd vill því
að síldarsaltendum sé Ijóst,
að síld sú, sem söltuð er hér
eftir, er söltuð algerlega á á-
byrgð og áhættu saltenda.
Að sjálfsögðu er heimilt að
halda áfram verkun á ólokn-
um hluta sérverkaðrar síldar
samkvæmt sérstökum tilkynn
ingum Síldarútvegsnemndar.
Virðingarfyllst,
pr. pr. Síldarútvegsnefnd
Jón Stefánsson.
Fréttaritari Visis á Siglufirði
sagði í morgun, að þessi aðvör-
un myndi nú stöðva síldarsöli-
un í framkvæmd. Hann sagðist
hafa átt tal við ýmsa saltendur
á Siglufirði og væru þeir á einu
máli um að ekkerí myndi verða
saltað á meðan þessi óvissa um
síldarsöluna ríkti og eru það
verstu fréttir, sem borizt geta,
þegar hæst stendur síldarvertíð-
in. Hefðu samningar tekizt við
Rússa væri þessi stöðvun ekki
yfirvofandi. — Síldarsaltendur
banda á, að bankarnir muni ekki
lána út á síld þótt einhverjir
vildu hætta á að salta á eigin
ábyrgð, þar sem svo alvarleg að-
vörun hefur borizt frá Síldar-
útvegsnefnd og þvi sé sjálfgert
að söltun hætti.
i Víslfiila
I rasafærslii-
kostnaðar
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnaðar í
byrjun júlfmánaðar
Reyndist hún vera 117 stig eða
einu stigi hærri en hún var í byrj-
un júni s.l
Axel syndir
Eyjafjörð í dag!
Axel Kvaran sundkappi kom til
Akureyrar í gær, en hann ætlar að j
synda yfir Eyjafjörð í dag. Eru 1
skilyrði til sundsins allgóð, ágætis !
veður á Akureyri, glampandi sól j
og 17 stiga hiti.
Hann ætlaði að leggja af stað frá
Akureyri kl. 1 og síðan átti að
hefja sundið ki. 2. Axel syndir inn
Eyjafjarðarál, fyrir Oddeyrartanga,
inn pollinn og mun hann stíga á
land í bátakvíinni.
Það eina sem er að veðrinu er
að á Akureyri er nokkur sunnan-
vindur, sem verður á móti honum.
Eyjólfur Jónsson synti þessa leið
fyrir tveimur árum. Hafði hann þá
meðvind og var 3 klst. 18 mínútur
á leiðinni, sem mælist vera ná-
kvæmlega 9 km.
Axel var hinn hressasti þegar
hann kom til Akureyíar og von-
góður um að sundið tækist vel.
Búizt er við að hpkill mann-
Framh. á bls. 5.
I síldarhrotunni síðustu daga
hefur verið saltað meira en
nokkru sinni fyrr á íslandi.
Þessi mynd, sem tekin var í
gær norður á Raufarhöfn,
sýnir, hvernig umhorfs var
á söltunarstöð Hafsilfurs. Þar
kepptust allar stúlkurnar við
að salta. En svo kemur allt í
einu tilkynningin frá Síldar-
útvegsnefnd og söltun er að
stöðvast.
Allt fullt hjá SÖGU
6* hæðin fekisi í nofkun í prbö!d
á millilandaskipum
Eins og kunnugt er opnaði
Hótel Saga með gistiherbergi á
einni hæð, það er fimmtu hæðinni.
En f gærkvöldi var sjötta hæðin
einnig tekin í notkun og var sofið
f hverju rúmi á báðum hæðum í
nótt. Á þessum hæðúm eru sam-
tals 60 herbergi með 104 rúmum.
Aðsókn hefir verið ágæt að hinu
nýja gistihúsi, síðan það tók til
starfa, oft fullt og skortur á gisti-
rúmum. Gestirnir hafa verið mjög
ánægðir með dvölina þar, enda er
þetta gistihús sérlega vandað, bú-
ið öllum þægindum svo að segja
má, að það standi ekki að baki
fyrsta flokks hótelum erlendis,
nema síður sé.
Nú er eftir að taka í notkun sjö-
; undu og síðustu hæðina en gisti-
; herbergi verða ekki á fleiri hæðum,
en fimmtu, sjöttu og sjöundu hæð
hússins Unnið er af kappi að því
að innrétta sjöundu hæðina og er
það iangt komið. Þessi hæð verður
langskemmtilegust. þar eru útsýn-
issvalir allt í kring.
► Umræðan um vantraust á
brezku stjórnina eru liafnar. Af
hálfu stjórnarsnd itæðinga er
Gaitskel! aðalræðurmaður. Mac-
millan flytur fyrstu ræðuna aftir
breytingamar á stjóminni, og
Maudling hinn nýi fjármálaráð-
herra flytur lokaræðuna.
Fulitrúar Vinnuveitendasam-
bands íslands og Sjómannafélags
Reykjavíkur komu saman á fund
i gær. Hefur Sjómannafélagið far-
: ið fram á 9% kauphækkun fyrir
j háseta og kyndara á millilanda-
j skipunum (4 pius 5%) og einnig
1 vilja þeir fá stofnaðan sjúkrasjóð.
Undirnefnd var skipuð til athug-
unar á kröfunum.
Gerðardómur sá, sem skipaður
var 10. þ. m. vegna deilunnar
um kaup og kjör á sumarsíldveið-
unum átti að koma saman kl. 11.30
og verður skotið inn frétt um úr-
siit hans verði hún fyrir hendi, áð-
ur en blaðið fer í pressuna.
Munnlegur málfiutningur hófst
fyrir Félagsdómi síðdegis í gær út
af þjónaverkfallinu. Úrskurðar
hann hvort þjónar hafi boðað lög-
lega til verkfallsins. Fellur úrskurð
ur síðdegis í dag.
Sáttásemjari hefur þegar haldið
einn fund í trésmiðadeilunni og
hefur boðað nýjan fund kl. 5 e. h.
Fulltrúar Vinnuveitendasam-
bandsins og kjöti|Snaðarmanna
koma saman á fund í dag. Kjötiðn-
aðarmenn hafa boðað verkfall 1.
ágúst, ef ekki semst fyrir þann
tíma.
► Bandarikjamönnum mistókst í
morgun tilraun með kjamorku-
sprengju £ háloftunum. Átti hún
að springa í mikilli hæð yfir John-
stone-ey á Kyrrahafi, en það varð
að eyðileggja hana á jörðu. Ekkert
manntjón varð.