Vísir - 26.07.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 26.07.1962, Blaðsíða 7
Klau& Wehmeier og nyi Renault-bnlinn. (Ljósm.: S. Á.) ODYR í REKSTRI Nýskeð hefur hafizt innflutn- ingur á SAAB bílum hingað tíl lands. Bílar þessir hafa getið sér mikið orð í ýmsum keppn- um erlendis og þótt gefast vel til almennrar notkunar samtím- is. Við hittum að máli Þorstein Daviðsson, verzlunarstjóra í Oculus, sem fengið hefur einn þeirra bíla, sem komnir eru til landsins en von er á fieiri á næstunni. — Hafið þér átt þennan bil lengi? — Ég er búinn að eiga han;i í tvo mánuði og aka honum Nú cr að koma til landsins í fyrsta sinn nýir bílar frá Ren- ault verksmiðjunum. Eru þeir nokkru kraftminni en Dauphine og nefnast Renault 4. Ekki er þó þar með sagt að þeir séu rúmminni, enda virðast þeir rúma mikið. Þeir eru byggðir með það eitt í huga að vera þægilegir, hentugir og ódýrir í rekstri, en minna hirt um útlit ið. Hér á landi starfar Þjóðverji, Klaus Wehmeier, sem er auglýs ingateiknari hjá Hilmi h.f., og á hann slíkan bíl. Við hittum hann að máli nýlega. — Hvernig mótor er í þess- um bíi? — Það er 4 cylindra topp- ventlavél, sem er 27,5 hestöfl. Hún er endurbætt útgáfa af vél- inni sem var í litla Renaultbíln um, sem nú er hætt að fram- leiða. Hún er sérkennileg að því leyti að vatnskerfið er innsigl- að og má ekki snerta við því nema hjá umboðinu. Frá verk smiðjunum kemur það með frostlög, sem þolir allt að 40 stiga frost. — Þá er bíllinn með fram- hjóladrifi, sem gerir það að verkum að hann er miklu stöð- ugri í beygjum og óvegum. Gírkassinn er þriggja gíra. Fjöðrin er sjálfstæð fyrir hvert hjól. — Er hann byggður í einu lagi eða er hægt að taka yfir- bygginguna í sundur? — Hún er öll þannig að hægt er að taka hana sundur f lítil stykki. Það er mjög hentugt ct eitthvað kemur fyrir hana, því að þá er bæði fljótlegt og ódýrt að skipta um vissa hluta henn- ar. — Hvað eyðir hann miklu? — Hann eyðir ekki nema 5-7 lítrum á hundrað kílómetra. Það er mjög lítið og þrátt fyrir það er hann alls ekki hægfara. Ég hef ekið honum allt upp 120 kílómetra hraða á autobahn í Þýzkalandi. Það sem mér lík- ar þó bezt við bílinn er hve þýður hann er. Ég hef ekið ho,i um allmikið erlendis og síðan hér á íslandi, þar sem vegir eru Þorsteinn Davíðsson við bílinn sinn. (Ljósm.: B. G.). 9 r Margir liafa velt því fyrir sér hvers vegna bílar eru nefndir hinum ýmsu nöfnum. í flestum tilfellum eru um að ræða ættarnafn framleið- andans. Ekki er það þó alltaf svo, og er ekki óalgengt að um sé að ræða skammstöfun á nöfnum fyrirtækjanna, sem framleiða þá. Hér á eftir er rakinn uppruni nokkurra þekktra nafna á bílategund- um. Austin er nefndur eftir Sir William Austin, er stofnaði bílaverksmiðju nálægt Birm- ingham 1905. Hann smíðaði sinn fyrsta bíl árið 1885. I Buick er nefndur eftir hol- lenzkum verkfræðingi, David D. Buick Hann stofnaði bíla verksmiðju í Bandaríkjunum árið 1904 og tók General Motors við rekstri hennar 1908. Cadillac er dregið af nafni fransks innflytjanda til Bandaríkjanna, Antoine de la Mothe Cadillac. Hann stofn- aði bæinn Detroit árið 1701 og eru verksmiðjurnar nefnd ar eftir honum, en þær voru stofnaðar 1902. Chevrolet nefnist eftir Lou is Chevreaulet, sem var fæddur í Sviss. Hann breytti nafninu í Chevrolet og stofn aði bílaverksmiðju í Flint I Michigan árið 1907. Árið 1915 tók General Motors við henni. Chrysler ber nafn bílaverk f iðingsins Walter P. Chrysl er, sem hóf framleiðslu bíla 1925. Hann náði þeim ótrú- lega árangri að selja 107 þúsund bíla á fyrsta árinu. Citroén eru nefndir eftir franska verkfræðingnum André Citroén, sem stofn- setti bílaverksmiðju 1919. De Soto bílar eru nefndir eftir spánska sægarpinum Hernando de Soto, sem uppi var snemma á sextándu öld. Harin uppgötvaði meðal ann- ars Missisippi ána. Dodge. Bræðurnir Horace og John Dodge stofnuðu 1890 v^rksmiðju i Detroit. Upphaflega framleiddi hún eingöngu reiðhjól, en 1900 fóru þeir að framleiða bíl- vélar og síðan 1915 hafa verksmiðjurnar framleitt bíla. Fiat er stytting á verk- smiðjunafninu Fabricca Ital- iana Automobli, Torino, sem stofnsett var 1906. Fiat á lat- ínu þýðir „verði það“. Ford vita allir hvernig stendur á. Nafn Henry Ford hefur Iengi verið það kunn- asta í bílaiðnaðinum. Hann smíðaði fyrsta bíl sinn 1893 og stofnaði Ford Motor Company 1903. Fyrsti bíllinn af hinum frægu Model T var framleiddur árið 1908. Mercedes-Benz nefndist upprunalega aðeins Benz, eft ir Karl Benz, þýzkum verk- fræðingi, sem byggði fyrsta bilmótor sinn árið 1879. M,ercedes var bætt framan við síðar og segir sagan að þar sé um að ræða nafn dótt ur bankastjóra nokkurs, sem lánaði Benz peninga þegar hann var í vandræðum. 0G LÍTILL 2400 kílómetra og hefur líkað sérlega vel við hann. — Hvers vegna völduð þér SAAB? — Ég var búinn að athuga þetta mjög vel og hafði haft marga bíla í huga. Það sem ég vildi fá, var lítill bíll, með mikið pláss. Mér þótti þessi bíll sam eina það bezt af þeim bílum sem ég athugaði. Það er til dæmis sérlega mikið rúm fyrir farangur í skottinu. Við höfum sett þar allan útileguútbúnað fyrir fjóra. t — Er ekki þessi bíll að ýmsu ólíkur öðrum bílum? — Mótorinn er mjög ólíkur því sem algengt er. Hann er tvígengismótor, þriggja cylindra 42 hestöfl. Svo er bíllinn með framhjóladrifi. Ég er viss um að það er ekki verra og jafnvel að ýmsu leyti betra. Til dæmis liggur bfllinn betur og ekki er nein bunga fyrir drifskaft í gólfinu. — Hvað eyðir hann miklu? — Mín reynzla er að hann eyði frá 7 til 9 lítrum á hundr að kílómetrana, eftir því hvort ekið er í umferð eða ekki. Mér þykir það mjög lítið, þegar tek- ið er tillit til þess að hér er um að ræða rúmgóðan 5 manna bíl. — Þér eruð með öðrum orð- um ánægður með bílinn? — Mjög svo. Hann hefur upp fyllt allt sem ég bjóst við og vel það. Eitt vil ég nefna sér- staklega, sem er það að hann er mjög riðvarinn, sem hefur mjög mikið aðjægja hér. Eitt það nýsv7rlegasta við bíl inn er þó það, að engin smur- oliá er á mótornum. í stað þess er sett svolítil olía saman við benzínið. Fyrstu 4000 kílómetr 1 ana eru sett 4 prósent á móti benzíninu, en eftir það er olfan ekki höfð nema 3 prósent. Fimmtudagur 26. júlí 1962. VISIR slæmir og hann er alls staðar jafn þýður. Ég er sannfærður um að þessi bíll hentar aðstæð- um hér sérlega vel. Wehmeier býður okkur í öku- ferð til að sýna okkur hvern- ig bíllinn hagar sér. Hann ekur í eitt af nýju hverfum borgar- innar, þar sem verið er að leggja götur og allt mjög óslétt. Það er sama hvað á vegi verður, varla verður sagt að bíllinn haggist.Hvar sem annað má um bílinn segja, getum við af eigin reynzlu fullyrt að leitun er á svo þýðum bíl. RÚMCÓBUR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.