Vísir - 26.07.1962, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 26. júlí 1962. ———-------------------------------- VI S I R
210. dagur ársins.
Næturlæknii ei I slysavarðstof-
unni. Sími 15030
Neyðarvakt Læknafélags Reykja-
vfkur og Sjúkrasamlags Reykjavtk-
ur er kl. 13-17 alla daga frá mánu-
degi til föstudags. Sími 11510.
Kópavogsapótek ei opið alla
virka daga daga kl. 9,15-8, laugar
daga frá kl. 9,15 — 4, helgid. frá
1-4 e.h. Slmi 23100
Næturvörður vikuna 21.-28. júlí
er í Reykjavíkur Apóteki.
Útvarpið
Fastir liðir eins og venjulega. —
18:30 Óperulög. 20.00 Tónleikar.
20:20 Vísað til vegar: Leiðir að
Fjallabaksvegi (Einar Guðjohnsen).
20.35 Tónleikar. 21:00 Erindi: Er
þörf á alþjóðamáli (Stefán Sigurðs
son kennari) 21:20 Nútímatónlist.
21:35 Or ýmsum áttum (Ævar R.
Kvaran leikari). 22:00 Fréttir og
veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan:
„Bjartur Dagsson" eftir Þorstein
Þ. Þorsteinsson, XI (Séra Sveinn
Víkingur). 2230 Djassþáttur (Jón
Múli Árnason). 23:00 Dagskrárlok.
Söfnin
Árbæjarsafn; Opið á hverjum
degi nema mánudaga ki. 2-6. Á
sunnudögum kl. 2-7,
Bæjarbókasafnið. Lokað vegna
sumarleyfa til 7. ágúst.
Þjóðminjasafnið er opið alla daga
frá kl. 1,30 til 4 e.h.
Gullkorn
Jesú sagði því aftur við þá: Sann
lega, sannlega segi ég yður: ég er
dyr sauðanna. Allir sem komu á
undan, eru þjófar og ræningjar, en
sauðimir hlýddu þeim ekki. Ég er
MYNDIN er tekin við komu
Norðmannanna og sýnir myndin
þá Guðmund Ástþórsson, sem sér
um móttöku skátanna, heilsa
fararstjóra Norðmannanna, Odd
Hopp. En hann dvaldist eitt sinn
hér á landi og var skólastjóri Gil-
wersskólans.
STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA
Látið hina vangefnu njóta stuðn-
ings yðar, er þér minnizt látinna
ættingja og vina. Minningarkort
Sfyrkir
Evrópuráðið veitir fyrir árið
1963 nokkra rannsóknarstyrki, sem
hver um sig nemur 6000 kr.
Tilgangurinn með styrkjum þess-
um er að hvetja til vísindalegra
rannsókna á eftirgreindum sviðum,
að því leyti sem þau varða sam-
starf Evrópuþjóða:
Stjórnmál, lögfræði, hagfræði,
landbúnaður, félagsfræði, kennslu-
mál og æskulýðsmál, heimspeki,
saga, bókmenntir og listir.
Viðfangsefni, sem teljast aðal-
lega eða einungis hafa gildi fyrir
eina þjóð, koma ekki til greina í
sambandi við styrkveitingu.
Ýmislegt
Nýlega hafa tveir lögfræðingar,
þeir Sigurður Sigurðsson og Krist-
inn Sigurjónsson fengið leyfi til
málflutnings fyrir héraðsdómi. Fá
þeir þar með titilinn „héraðsdóms-
Iögmenn“.
ÍSLENZKUR IÐNAÐUR.
Vísi hefur borizt janúar-aprfl-
blað íslenzks iðnaðar, sem gefið
er út af Félagi ísl, iðnrekenda. Þar
er sagt frá Ársþingi iðnrekenda,
sem jafnframt er aðalfundur Fé-
lags íslenzkra iðnrekenda. Annað
efni: Iðnaðurinn 1961, Störf F.I.I.,
ræða formanns Sveins B. Valfells,
við setningu ársþings iðnrekenda
27. apríl 1962.
UNGUR
JAPANSKUR ÍSLANDSVINUR.
I gær barst Vísi bréf frá ungum
pilti austur í Japan, sem langar
til að skrifast á við jafnaldra sína
á Islandi. Hann kveðst hafa fengið
áhuga á íslandi við lestur bóka.
Frístundagaman hans er að hlusta
á fagra tónlist, lesa, taka ljós-
myndir og ferðast. Helzt af öllu
vill hann skrifast á við íslenzka
stúlku. Hann er fimmtán ára. —
Nafn hans og heimilisfang er:
Toyotaro Abe, 16 Shoan-Minami,
Suginami-ku, Tokyo, Japan. Vön-
um við að ungir lesendur komist
fram úr þessu og sendi honura
bréf.
Umræddir styrkir verða ekki
veittir stofnunum, heldur einstan-
lingum. Að öðru jöfnu munu um-
sækjendur innan 45 ára aldurs sitja
fyrir um styrkveitingu.
Sá, sem styrk hlýtur, skal semja
ritgerð um rannsóknarefni sitt. Má
hún vera á tungu hvaða aðildar-
ríkis Evrópuráðsins sem er, 'og skal
skilað í tvíriti til framkvæmda-
stjórnar Evrópuráðsins innan
þriggja mánaða frá því að styrk-
tímabili lýkur, þ. e. fyrir 1. april
1964.
STYRKIR FRÁ
EFNAHAGSSAMVINNUSTOFNUN
Fyrir nokkru hafa eftirtaldir að-
ilar fengið mennta- og rannsókna-
styrki frá Efnahagssamvinnustofn-
un Evrópu:
Eðlisfræðistofnun Háskólans —
vegna þriggja mánaða dvalar Arn-
ar Garðarssonar, verkfræðings, á
rannsóknastöð U. S. Geological
Survey I Washington vorið 1961
til þjálfunar 1 meðferð massa-
spektrómeters.
Háskóli íslands vegna Magnúsar
dyrnar, ef einhver gengur inn um
mig, sá mun hólpinn verða, og \
hann mun ganga inn og út og fá '■ fást á skrifstofu félagsins, Skóla-
íóður. Jóh. 10-7-9. I vörðustíg 18.
Hvað er api með svona mikU | banana sem til eru í landinu. | Ég ætla að ná í afganginn áður laust fólk. Varaðu þig einhver er
peninga að gera á stað eins og ' Sjómennirnir ieggja höfuðið í en apinn hendir peningunum í vit-1 að koma.
þessum? Hann gæti keypt alla bá bleyti.
Copk-rigM P I B Bok 6 Copenhagen
------------- 77
fflöftTT.TT. 21
Það er ekki vegna þess, að við
eyðum meiri peningum en við vinn-
um okkur inn, —' við erum aðejns
fljótari að eyða peningunum, en að
vinna þá inn
Magnússonar, prófessors, er sótti
sérfræðilegt námskeið f eðlisfræði
á vegum „Enrico Fermi Interna-
tional School of Physics“ í Verona
á Ítalíu í júnímánuði 1961.
Rannsóknaráð ríkisins fyrir hönd
landbúnaðardeildar Atvinnudeildar
Háskólans vegna ferðar dr. Hall-
dórs Pálssonar, deildarstjóra, til
Nýja Sjálands til að kynnast rann-
sóknum og framkvæmdum á sviði
búfjárrcektar þar í landi. Dr. Hall-
dór fór utan í nóvembermánuði
sfðastliðnum.
Rannsóknastofa Fiskifélags Is-
lands vegna heimsóknar dr. Lionel
Farbers frá Kalifornfuháskóla f
septembermánuði s.I. til viðræðna
um gæðamat sjávarafurða.
Fiskideild Atvinnudeildar Háskól-
ans vegna farar dr. Unnsteins
Stefánssonar, efnafræðings, til
Kanada og Bandaríkjanna til að
kynnast nýjungum á sviði haf-
fræði.
Kvskmyndir
Háskólabfó sýnir þessi kvöld-
in notalega skemmtilega gam-
anmynd, sem nefnist Ævintýra
leg brúðkaupsferð. Hún er ensk
og heitir Double bunk. Hún
fjallar um ung brúðhjón, sem
kaupa sér „heimilisbát“ —
gamalt skrifli og fara í eins
konar brúðkaupsferð á honum.
Myndin hefur ýmsa beztu kosti
enskra gamanmynda, sem á síð-
ari árum hafa orðið svo vin-
sælar. Aðalhlutverk eru leikin
af Ian Carmichael, Janette
Scott, Sidney James og Liz
Frazer. Fjölda margir aðrir
leika í myndinni og er vandað
til hlutverkavals. Kvikmynd
þessi mun verða öllum til ó-
svikinnar skemmtunar. Myndin
er af Janette Scott.