Vísir - 26.07.1962, Blaðsíða 16
VÍSIR
UndirnefncS fjallar um
kröfur tógarayf irmanna
Fimmtudagur 26. júlí 1962.
Kógavogs-
fundarins
minnzt
Norska þjóðgjafarnefndin á fundi í gær. Við borðið sitja talið frá vinstri: Bjarnc Börde sendi
herra, Hákón Guðmúndsson hæstaréttarritari, Hákon Bjamason skógræktarstjóri. Síðan koma rit-
arar nefndarinnar Haukur Ragnarsson og Einar G. E. Sæmundsen.
3áttasem‘ari hafði fund r-»cð
fiilitrúum Félags íslenzkra
j'jtnvörpiiskipaeigenda og yí.r-
nsíina 'á togurum.
Fundurinn hófst kl. 9 í gæ„--
iivöldi og stóð til kl. háifþrjú
í nótt. Samkomulag náðist ekki
á þessum fundi, en undirnefnd
var skipuð og fjaliar hún uni
málið í dag.
Búasí má við, að nýr fundur
verði haldinn til lausnar þessari
deilu fijótlega.
Eins og kunnugt er öllum lands-
lýð eru liðin 300 ár, hinn 28. júlí
n. k, síðan erfðahyllingin, al-
ræmda, fór fram í Kópavogi, þar
sem íslenzkir valdsmenn, eins og
Árni lögmaður Oddsson og Byrnj-
ólfur Sveinsson biskup, voru kúg-
aðir, i skjóli hervalds, til þess að
afsala fornum landsréttindum.
1 tilefni þessa atburðar efnir
Kópavogskaupstaður til samkomu
á hinum forna þinghól, þar sem
Kópavogsfundurinn stóð.
Hóll þessi og fornar búðarrústir
eru skammt vestan og norðan við
Kópavogsbrú,
Lionsklúbbur Kópavogs hefur
beitt sér fyrir, með leyfi þjóð-
minjavarðar og ríkisstjórnarinnar,
að reisa minnisvarða um atburð
þennan. Ber félagið allan kostnað
af þessum framkvæmdum. Er það
lofsverð ræktarsemi við sögu þjóð-
arinnar. Minnismerkið verður af-
hjúpað á samkomunni.
Dagskráin er á þá leið, að fyrst
flytur bæjarstjórinn, Hjálmar Ól-
afsson, ávarp, síðan er ræða, sem
Einar Laxness sagnfræðingur
flytur. Þá verður minnisvarðinn af-
hjúpaður af Brynjúlfi Dagssyni
héraðslækni f. h. Lionsklúbbsins.
Lúðrasveit Kópavogs leikur á
milli atriða.
Samkoman hefst kl. 14.00 n. k.
Iaugardag.
Sænskur
heigileikur
Unga fólkið frá kirkjunni í Öre-
bro í Sviþjóð sýnir stuttan sænsk-
an helgileik í kirkju Óháða safnað-
arins annað kvöld. Sýningin hefst
kl_ 20.30. öllum er heimill aðgang-
ur að þessari sýningu og aðgangur
ókeypis. Á eftir verður sameiginleg
kaffidrykkja í Kirkjubæ fyrir þá
sem óska að taka þátt f henni.
Sænska æskufóikið er hér á veg-
um Þjóðkirkjunnar og hefir dvalizt
hér á landi í hálfan mánuð! Gest-
irnir tóku þátt í flutningi sænskrar
messu f Laugarneskirkju á sunnu-
dagsmorguninn og sýndu sænska
þjóðdansa í Árbæ við mikla aðsókn
og ágætar undirtektir. Einnig var
sænskt kvöld í Tjarnarbæ.
Togararnir fara nú
allir saman í slinp
Undanfarna daga hafa
legið uppi í Slipp fjórir
togarar. Hafa þeir verið
þvegnir og málaðir og
verður sá fyrsti þeirra
settur aftur á flot í dag,
Tveir fara aftur á flot á
morgun, en í stað þeirra
koma jafnharðan nýir
togarar í Slippinn.
„Við eigum eftir að taka í
gegn eina tíu í viðbót“, sagði
einn verkstjóranna í Slippnum
f morgun.
„Er þetta einhver meiri hátt-
ar klössun?"
— Nei, blessaður. Hér er aB-
eins um að ræða venjulega
klössun. Við skrúbbum á þeim
botninn, skröpum þá og mál-
um siðan yfir allt hátt og lágt.
Togararnir fjórir voru Egill
Skallagrímsson, Júpiter, Haf-
liði og Marz. Þeir virtust hálf
hjálparvana, þar sem þeir lágu
þarna á þurru landi í fullri
stærð. En þeir eru eflaust óð-
fúsir til allra átaka, eftir langa
hvíld í lygnri höfn.
Við Egil Skallagrímsson voru
nokkrir menn í vinnu, einn log
sauð meðan aðrir stóðu og
fylgdust með. Þeir voru eflaust
frá einhverri smiðjunni. Við
Júpiter voru örfáir stráklingar
í þann mund að klifra upp skip-
ið, allir sótsvartir upp fyrir
haus. Þeir voru í málningunni.
VANTAR MENN.
Það fór ekki mikið fyrir
mannskapnum og ekki var hann
fjölmennur.
— Hér eru núna um 25 menn
í vinnu, sagði verkstjórinn okk-
ur. En það þyrfti svona tutt-
ugu menn í viðbót ef vei ætti
að vera.
— Nú, en hvað?
„Það fæst enginn lengur.
Menn vilja ekki vinna í svona
vinnu. Það virðist a.m.k. ekki
vera. Þetta er líka óþrifaleg
vinna og dagurinn langur, allt-
af eftirvinna til 7 eða lengur.
Annars er það svo að fjöldi
manna er nú í sumarfríi.
— Þið gætuð þá verið mun
fljótari með togarana ef fleiri
menn væru til taks?
— Já, auðvitað. Hins vegar
mun áreiðanlega standa á ein-
hverju öðru ep okkur til að
korria togurunum á veiðar. Það
verður öruggt. ,
TilraunastöB reist fyrir
norsku þjóðargföfina
í gær kom nefnd sú sem ráð-
stafar norsku þjóðargjöfinni' sam-
an til fundar í Reykjavík. Þjóðar-
gjöf þessi nam einni milljón króna
og var ákveðið að henni skyldi var-
ið til gagns fyrir skógrækt á ís-
og til þess að styrkja menn-
ingartengsl milli landanna i því
skyni.
Nefndin ákvað á fundi sínum í
gær að verja 2/3 hlutum fjárhæð-
innar til að koma upp hér á landi
tilraunastöð I skógrækt. En 1/3
hluti fjárins á að standa á vöxtum
í Noregi og á að nota vextina til
að styrkja skiptiferðir æskufólks
til skógræktarstarfa í löndunum og
einnig til að styrkja norska og ís-
lenzka skógræktarmenn til ferða
og dvalar í Noregi og íslandi.
Nefndin óskaði þess að skóg-
rækt ríkisins annaðist byggingu
stöðvarinnar og að Hauki Ragn-
arssyni tilraunastjóra yrði falin
stjórn hennar.
I nefndinni sem ráðstafar þjóð-
argjöfinni eiga sæti Hákon Guð-
mundsson hæstaréttarritari, Bjarne
Börde sendiherra og Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri.
Togaramir fjórir í Slippnum, Egili Skallagrímsson, Júpiter, Hafliði, Marz.
Ljósm. Vísis K. M.