Vísir - 30.08.1962, Side 10
Fimmtudagur 30. ágúst 1962.
70
VtSIR
vi-'U U U
gaf jakkann
Baudouin Belgíukonungur var
nýlega á ferðalagi á Bláströnd-
inni í Suður-Frakklandi. Kom*
þá betlari til hans og bað hann
að gefa sér eitthvað í neyð
sinni. Konungurinn hafði enga
peninga handbæra, svo að hann
fór úr jakkanum og gaf betlar*
anum hann.
í Evrópuför
Hayato Ikeda forsætisráð-
herra Japans hyggur á ferðalag
um Evrópu. Mun hann leggja
af stað í förina í október.
einkaleyfi
Raymond Livosi heitir hár-
skeri í Massachusetts I Banda-
ríkjunum. Hann hefur sótt um
einkaleyfi á þeirri hártízku karl
manna, sem nefnist Kennedy-
klippingin. Þegar einkaleyfa-
skrifstofan neitaði honum um
það fór hann f mál og krefst
þess að uppfinning hans verði
viðurkennd.
fékk arf
Patricia Rosten heitir sextán
ára stúlka í Brooklyn, einu
borgarhverfi New York. Hún er
dóttir æskuvinkonu Marilyn
Monroe. Fyrir nokkrum dögum
fékk hún tilkynningu um að
Marilyn hefði ánafnað henni
milljón krónum í erfðaskrá
sinni, til að standast straum af
skólanámi.
Ieita að húsi
Hertogahjónin af Windsor,
Játvarður fyrrum Bretakonung-
ur og kona hans, hafa nú bætzt
í hóp þeirra sem langar til að
kaupa sér sumarhús. á Spáni.
Þau eru lögð af stað tii Mar-
bella á Spáni og ætla að dvelj-
ast þar í hálfan mánuð til að
skoða hús sem þar eru til sölu.
giftist hann
Ben Bella forustumaður
Serkja í Alsír er góður vinur
Nassers forseta Egyptalands.
Orðrómur hefur nú komizt á
kreik um að hann ætli að kvæn-
ast elztu dóttur Nassers.
glímdi við björn
Anatoly Nyrkov heitir rúss-
neskur jarðfræðingur sem
komst í krappan dans á einstigi
í Kákasus-fjöllum nýlega. Hann
glímdi þar við skógarbjörn og
hafði betur. Glímunni Iauk með
því að björninn hrapaði niður
fjörutíu metra hamravegg. Ana-
toly hafði skotið á björninn, en
aðeins sært hann og hafði björn
inn siðan ráðizt á hann í æði.
þjóðleikhús
Sir Laurence Olivier hinn
kunni enski leikari hefur nýlega
verið ráðinn forstjóri enska
þjóðleikhússins, sem nýlega var
stofnað í London.
æviminnmgar
Elizabeth Taylor hefur lokið
við að skrifa ævisögu sína og
hefur bókaútgáfa í Bandarikj-
unum ábyrgzt henni milljón
króna ritlaun fyrir bókina. Er
stefnt að því að bókin komi út
um sama leyti og faríð verður
að sýna kvikmyndina um Cleo-
pötru.
1 Rio de Janeiro aðalborg Brasi
líu hringdi maður einn til lög-
reglustöðvarinnar og sagði sin-
ar farir ekki sléttar. — Þið
senduð hingað lögregluþjón til
að handtaka mig. Þegar hann
kom bauð ég honum upp á
snafs. Nú liggur hann dauða-
drukkinn undir borðinu hjá
mér. Ég skal gæta hans, þangað
til þið sendið annan lögreglu-
þjön til að handtaka mig.
I Norður Karolina fylki í Banda
ríkiununi hafa starfsmenn bíla-
bíós eins tekið að sér að vekja
gestina á þeim tíma sem óskað
er, án þess að taka aukagjald
fyrir.
barn á leiðinni
Margrét prinsessa og greifa-
frú af Snowdon á von á öðru
barni. Þetta var tilkynpt eftir
að hún og Tony Snowdon komu
heim úr för sinni til Vestur-
Indía.
fífl í kvikmynd
-9-
Charles Chaplin er nú kom-
inn á áttrœðisaldurinn. Hann er
samt að hugsa um að leika f
nýrri kvikmynd fyrir Fox-kvik-
myndatökufélagið. í henni á
Chaplin að leika hringleikahús-
fífl, sem fellur í ónáð vaidhaf-
anna í Hitlers-Þýzkalandi og er
varpað í fangabúðir. Þar
skemfntir hann börnum f fanga-
búðunum.
í klæðaskápnum
Frú Kennedy lifir mikið I
klæðaskápnum. Fyrir nokkru
lét hún ritara sinn gera stóra
spjaldskrá yfir öll föt sín og
hvar þau væru geymd, í ein-
hverjum af fjórum dvalarstöð-
um frúarinnar í Bandaríkjunum
i kvikmynd
Marlon Brando hinn heims-
kunni bandaríski kvikmynda-
leikari er nú að leika í kvik-
myndinni „The ugiy American“
Ljóti Ameríkaninn. í lcvikmynd-
inni ieikur einnig systir hans
Joceiyn Brando.
maíur úr túbu
John Glenn geimfari nærðist
á geimflugi sínu á matarmauki
úr túbum. Nú hefur bandarískt
firma sem framleiðir barnamat
lært af þessu og er farið að
selja barnamat í túbum. Fram-
an á túbuna er smellt skeiðar-
blaði og þarf svo ekki annað
en að þrýsta á túburiá, þá er
maturinn kominn í skeiðiha.
Þessi aðferð er talin handhæg
til að mata börn á ferðalögum.
guðrækimi
Josef Göbbels var á sínum
tíma einn hatrammasti áróð-
ursmaður Hitlers. Nýlega hafa
fundizt skjöl um það, að Göbb-
els ætlaði á yngri árum að ger-
ast kaþólskur prestur. Gekk
hann á prestaskóla og fékk þá
um þúsund marka námsstyrk.
I skjölum um námsstyrkinn er
hinum unga manni lýst og sagt
að hann sé guðrækinn og heið-
arlegur piltur. Hann átti eftir
að umsnúast.
leyninafn
Georges Bidauit franski stjórn
málamaðurinn sem nú er for-
ingi OAS er nú \ felum. Nýlega
mun hann hafa verið í Bæjara-
landi og ferðaðist þá með
fölsku vegabréfi. Kallaði hann
sig Georges Bastion.
í Keyworth, bæ einum í Eng-
landi, mynduðu húsfreyjur sam-
tök og tóku sjálfar að sér að
sjá um gatnahreinsun, þar sem
gatnahreinsunarmenn bæjarins
höfðu aðeins kornið þrisvar sinn
um í hverfi þeirra á fimm árum.
Muntra Musikanter
Samsöngur s Hóskólabíói
Þegar stíll og túlkunarmáti
fylgjast ekki að í flutningi, er
hættunni boðið heim. „Gömul“
verk, sem samin eru fyrir ákveð-
inn tónblæ radda eða hljóðfæra,
falla stílrænt inn í vissan hug-
myndaheim, oft löngu gleymdan.
Flutningur slíkra tónsmíða í nýj-
um búningi, með tónblæ annarleg-
um stíl verksins, getur eyðilagt
þau, nema því betur sé gert, og
einhver önnur áhrif komi til skjal-
anna.
Finnski karlakórinn Muntra
Musikanter hóf dagskrá sína í
Háskólabíói með fjórum 16. og 17.
aldar tónverkum í gærkvöldi. Að-
eins í fyrsta sönglaginu — eftir
Purcell — reyndist gjáin milli 17.
áidar ensks madrigalsöngs og
finnsks karlakórs með rómantísk-
um raddbiæ okkar tíma óbrúanleg.
Með stílvandamálin að baki varð
söngurinn frjáislegri, er kórinn
sneri sér að nútíma hlutverki sínu
sem hrifvaki. Naut hann sín bezt
í söng finnsku laganna — og þótt
söngurinn væri allt að því grófur,
þegar sterkt var sungið, flutti það
sín ákveðnu skilaboð til áheyrand-
ans. Raddgæði nutu sín hvað bezt
í verkum Selim Palmgren. Ein-
söngvari með kórnum var Kurt
Klockers, í dreyminni tónstemmn-
ingu eftir Holmboe.
Dagskránni lauk með fjórum
smíðum hins ágæta söngstjóra,
Erik Bergman, fullum af tilbreytni
í tali og söng fyrir hressilega og
káta karla. Hrifning var mikil og
aukalög sungin. Á eftir skiptust
„áheyrendur og kór á herópum.
Þorkell Sigurbjömsson.
Héraösmót Sjálfstæöismanna
í Ólafsfiröi I. september
Héraðsmót Sjálfstæðismanna í i arnir Valur Gíslason og Heiga Val-
Ólafsfirði verður haldið n.k. Iaug-1 týsdóttir.
ardag Id. 9 e.h. j Ennfremur verður til skemmt-
Iugólfur Jónsson, landbúnaðar- unar einsöngur og tvísöngur. Flytj
ráðlierra og Gísli Jónsson mennta- endur cru Kristinn Hallsson, óperu
skólalcennari, flytja ræður. söngvari, Þórunn Ólafsdóttir, söng-
Sýndur verður gamanleikurinn kona og Skúli Halldórsson, píanó-
„Móílætið göfgar“ eftir Leonard leikari.
White, 1 þýðingu Vals Gís'asonar, Dansleikur verður um kvöldið.
leikara. Með hlutverk fara leikar-
Frá barnaskólum
Reykjavíkur
Böm fædd 1955, 1954 og 1953 eiga að sækja
skóla í septembermánuði.
7 ára börn (f. 1955) komi í skólann 1. sept. kl. 9 f. h.
8 ára börn (f. 1954) komi í skólann 1. ^ept. kl. 10 f. h.
9 ára böm (f. 1953) komi í skólann 1. sept. kl. 11 f. h.
Foreldrar athugið:
Mjög áríðandi er, að grein sé gerð fyrir öll-
um börnum á ofangr. eldri (7, 8 og 9 ára) í
skólunum þennan dag. Geti börnin ekki kom-
ið sjálf, verða foreldrar eða aðrir að gera
grein fyrir þeim í skólanum.
ATH.: Skólahverfi Breiðagerðisskóla nær nú
að Háaleitisbraut (sunnan Miklubrautar).
Kennarafundur verður í skólanum 1. sept. kl.
8.30 f. h.
FRÆÐSLUSTJÓRINN í REYKJAVYK.
Jarðarför mannsins míns,
STEFÁNS LYNGDALS
kaupmanns,
fer fram föstudaginn 31. ágúst kl. 3.30 frá Dómkirkjunni.
Fyrir hönd aðstandenda,
Herdís Lyngdal.
I II IIIII