Vísir - 17.09.1962, Side 2
VISIR
-Mánudagur 17. september 1962.
Gísli Halldérsson var kosinn
forseti íþróttasambands íslands
nfeistarafigniitsi 2:1 áftS sigurinn
skiiið
Reykjavíkurmeistarar KR UG2.
KR varð Reykjavíkur-
meistari í knattspyrnu í
gær. Unnu KR-ingar Fram
í úrslitaleik með 2:1 og
unnu þar með fyrsta mót-
ið sitt í sumar (b- og c-mót
undanskilin). Var sigur KR
ekki ósanngjarn eftir gangi
ieiksins, en framlína þeirra
var meira afgerandi og
öllu markgráðugri og það
réði úrslitum og hefði með
smáheppni getað fært
stærri sigur.
I Leikurinn hófst með því að dóm-
afalaust var. Tók Baldur Þórðar-
son, knattspyrnudómari, eftir
þessu og fór þegar niður og tók
að sér að dæma leikinn, enda mun
það hans starfi að sjá um að dóm-
arar mæti til leiks, ep sá sem átti
að dæma í þetta skipti mun hafa
trassað starf sitt. Kostaði þetta 11
mínútna bið áhorfenda og kepp-
enda úti í hinum napra kulda.
KR tók leikinn í sínar hendui
fyrstu mínúturnar, en Frömurum
tókst að hrista sókn þeirra af sér
og sækja undan vindinum að syðra
markinu. Áttu þeir nokkur smá-
færi, en vantaði nauðsynlega
markagræðgi til að nokkur árangur
yrði af.
Á 27. mínútu kom bezta tæki-
færið, en það áttu KR-ingar, er
Jön Sigurðsson skaut frá enda-
mörkum, nokkuð lokuðu færi, á
mark, en Geir hélt boltanum ekki
Framn. á bls. 3.
Benedikt G. Wooge fyrsti
heiðursforseti iSÍ
íþróttaþing ÍSÍ var haldið um helgina í húsakynn-
um SVFÍ við Grandagarð. Merkustu tíðindi á þinginu
voru að sjálfsögðu forsetaskiptin, en hinn góðkunni
Benedikt G. Waage lét af störfum eftir langan d.ig
hjá ÍSÍ, en ungur og athafnasamur maður, Gísli Hall-
dórsson, arkítekt, var kosinn í þetta mikilvæga em-
bætti sem æðsti maður íþróttamála á íslandi. Benedikt
G. Waage var hins vegar kosinn fyrsti heiðursforseti
ÍSÍ, enda enginn sem hefur átt slíkan titil betur skilið
en einmitt hann.
Á íþróttaþingi sátu um 50 full-
trúar, sem fóru með 62 atkvæði
héraðssambanda og sérsambanda.
Mest /atkvæðamagn höfðu fulltrú-
ar ÍBR, 18 talsins, en þar næst
Héraðssambandsins Slcarphéðins 4.
Ekki urðu miklar umræður á
þinginu, sem mótaðist að lang-
mestu leyti af þeim mikla atburði,
forsetaskiptunum, en minna af heit
um umræðum eða máialenging-
um.
Meðal samþykkta þingsins
voru þessar:
Frá íþróttanefnd: Aukin verði
samskipti íþróttakennaraskóla
íslands við íþróttasamtökin í
landinu. Aukið verði íþrótta-
starfið meðal barna og unglinga
og lögð áherzla á leiðbeiningar-
starfið. Keppt sé að þvi að öll
börn og unglingar fái tækifæri
til að kynnast einhverjum íþrótta
greinum eða félagsstarfi íþrótt-
anna. Skipuð verði nefnd, sem
athugi rekstur sumarbúða og
hvernig rekstur þeirra megi
verða beztur og semji nefndin
leiðbeiningar um sumarbúðir
fyrir þá sambandsfélaga, sem
hyggjast setja sumarbúðir á fót.
Framkvæmdarstjórn ÍSÍ var fal-
ið að styðja námskeiðastarf-
semi sambandsaðila með útveg-
un hæfra kunnáttumanna svo
og með fjárhagsaðstoð að svo
miklu leyti, sem unnt v,3ri. —
Framkvæmdastjórn var og fal-
ið að auka áróður fyrir al-
mennri iðkun íþrótta í landinu.
Samþykkt var að skora á ríkis-
stjórnina að leggja fyrir næsta
reglulegt Alþingi tillögu um f jár
framlög til að reisa heimavist-
arhús við íþróttakennaraskóla
íslands.
Frá Fjárhagsnefnd: Samþykkt
var að slysasjóður taki til starfa
um næstu áramót hjá ÍSÍ. Ið-
gjöld verða kr. 10.00 á ári og
miðast við skattskylda félags-
menn viðkomandi héraðssam-
banda. Skorað var á fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ að fylgja
fast eftir tillögum milliþinga-
nefndar ÍSÍ að koma á fót alls-
herjarhappdrætti til fjáröflunar
íþróttahreyfingunni, en frum-
varp til Iaga um slíkt happ-
drætti liggur nú fyrir hjá ríkis-
stjórninni. Samþykktur var ó-
breyttur skattur sambandsfé-
Gísli Halldórsson, hinn nýkjörai forseti ÍSÍ þakkar Benedikt G.
Waage fyrir vel unnin störf í þágu íþróttahreyfingarinnar og
sæmir hann 1. heiðursforseta ÍSÍ.
laganna til ÍSÍ árin 1963 og
1964, eða 5 krónur á hvern fé-
lðgsmann 16 ára og eldri. Fjár-
hagsáætlunin fyrir árin 1963 og
1964 var samþykkt.
Allsherjarnefnd skoraði á alla
sambandsaðila að vera vel á
verði gegn neyzlu áfengis á sam
komum þeim, sem þeir standa
að, jafnframt þvf sem forystu-
menn íþróttahreyfingarinnar
ættu jafnan að sýna gott for-
dæmi í þessum efnum.
Laganefnd: Samþykkt var að
kosinn skyldi heiðursforseti ÍSl,
ef 4/5 fulltrúanna væru því sam
þykkir. Hafi heiðursforseti rétt
á fundarsetu, með framkvæmd
arstjórn, sambandsráði og f-
þróttaþingum, með málfrelsi og
tillögurétti.
Samþykkt var eftirfarandi tillaga
á þingfundi á laugardag: „íþrótta-
. þing ÍSl haldið í Rvfk 14. og 15.
sept. 1962, skorar á háttvirt Al-
þingi að lögfesta 17. júnf sem þjóð
hátíðardag lslendinga“.
Fulltrúar á þinginu sátu veizlu
Menntamálaráðherra á föstudags-
kvöld í Þjóðleikhússkjallaranum
en á laugardagskvöld hélt borgar-
stjórn Reykjavíkur boð í hinum
vistlegu salarkynnum Slysavarna-
félagsins á Grandagarði og voru
þar fluttar margar góðar ræður, í
bundnu máli og óbundnu til heið-
urs hinum nýja heiðursforseta ÍSI'
enda áttu flestir i fulltrúar einhverj
ar góðar og hugljúfar minningar
um Benedikt G. Waage úr löngu
starfi hans.
I stjórn voru kosnir til næstu
tveggja ára:
Gísli Halldórsson, forseti, Guð-
jón Einarsson, Gunnlgugur J.
Briem, Axel Jónsson, Sveinn
Björnsson.
Til vara: Þorvarður Árnason,
Hannes Þ. Sigurðsson, Gunnar
Vagnsson, Gunnar Hjaltason.
Þingforsetar voru þeir Baldur
Möller og Guðjón Ingimundarson,
en þingritarar Guðlaugur Guðjóns
son og Sveinn Jónsson og leystu
hlutverk sín vel af hendi.
meistari í kaattspyraa
r
Wernii „lcandidatana" nm SsSenifSs-