Vísir - 17.09.1962, Side 11

Vísir - 17.09.1962, Side 11
Mánudagur 17. september 1062. VÍSIR 11 Slysavarðstofan f Heilsuverndar- stöðinni er opin allan sólarhring- inn. — Næturlæknir kl. 18—8, sími 15030. Neyðarvaktin, sími ’1510, hvern virkan dag, nema laugardaga. kl 13-17. Næturvörður vikuna 16.— 22. ember er í Lyfjabúðinni Iðunni. ÚTVARPIÐ Mánudagur 17. september. Fastir liðir eins og venjulega. 18,30 Lög úr kvikmyndum. 20.00 Um daginn og veginn (Kristján Ingólfsson, skólastjóri á Eskifirði). 20.20 Einsöngur: John Charles Thomas syngur. 20.35 Erindi: Selárdalur í Arnar- firði — staður og kirkja (Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri). 21.30 Útvarpssagan: „Frá vöggu tif grafar". 22.10 Búnaðarþáttur: Hlunnindi, fjármennska o. fl. við Breiðafjörð (Agnar Guðnason ráðunautur á ferð þar vestra með hljóðnemann). 22.30 Kammertónleikar. 23.00 Dagskrárlok. Þriðjudagur 18. september. Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 Harmonikulög. 20.15 Erindi: Vísindamaður á 10. öld (Þorsteinn Guðjónsson cand. mag). 20.40 Píanótónleikar. 21.10 „Sumarauki", bókarkafli eftir Stefán Júlíusson (Höf. les). 21.30 Tónleikar: Fritz Kreisler leikur á fiðlu. 21.45 íþróttir (Sig. Sigurðsson). 22.10 Lög unga fólksins (Ólafur Vignir Albertsson). 23.00 Dagskrárlok. Laxá fór frá Sorabster 14. sept. til Akress. Rangá fer væntanlega frá Riga í dag til íslands. Fugíabókin nýja Almenna bókafélagið hefur gefið út fuglabók, alþýðlegt fræðirit sem einkum er ætlað áhugamönn- um til að greina þær fuglategundir sem fyrir finnast í Evrópu og þ. á m. á íslandi. Bókin er ensk að uppruna, heitir „A field guide to the birds of Britain and Europa“ og eru aðal- höf. þrír, Roger Tory Peterson, Guy Mountfort og P. A. D. Holl- oh. Þetta er talin ein handhægasta upplýsingabók sem nú er til á heimsmarkaðnum um Evrópufugla og verið þýdd á fjölda tungumála. Hafa höfundarnir aflað sér hald- góðra upplýsinga hjá fuglafræð- ingum í velflestum löndum álfunn- ar og má því ætla að á upplýsing- um hennar megi byggja. 1 bókinni er fjallað samtals um hátt á 6. hundrað fugla og í henni eru rúmlega 1200 myndir, meiri hlutinn prentaður í litum. Þær auð- velda skjóta og örugga greiningu fuglanna hjá þeim lesendahópi sem áhuga hefur fyrir fuglafræði. Þá eru og í bókinni kort sem sýna sumar- og vetrarheimkynni vel- flestra fuglategunda álfunnar. Dr. Finnur Guðmundsson þýddi bókina á íslenzku og hefur á því sviði unnið í senn mikið verk og vandasamt. Ekki sízt vandasamt vegna þess að íslenzkuna skortir heiti yfir flesta þá fugla sem ekki, hafa unnið land á íslandi. Fyrit bragðið hefur þýðandinn orðið að búa til ný fuglaheiti á hvorki meira né minna en rúmlega 400 fuglum, auk þess sem hann hefur tekið til endurskoðunar íslenzk fuglanöfn, einkum frá síðari tlm- um og varpað sumum þeirra á glæ. Þá telur þýðandinn sig hafa gert nokkrar breytingar á röðum tegunda í íslenzku útgáfunni, ætta- skipan og vísindalegum nafngift- um, auk þess sem 9 útbreiðslukort hafa verið endurteiknuð fyrir Is- lenzku útgáfuna og meira tillit ver- ið tekið til íslenzkra staðhátta í 'texta, heldur en gert er í frum- málsútgáfunni. Ýmsu fleiru hefur þýðandinn orðið að breyta eða laga til eftir olckar staðháttum, og er greinilegt að bak við það allt ligg- ur mikið starf og vandasamt. Bókin er tæpar 400 síður að stærð, p'rentuð með smáu og drjúgu letri og með um 12001 myndum svo sem áður getur. j Þama er öllum veigamestu upplýs-1 ingum' um hverja tegund fyrir sig þjappað saman í örstutt mál en i þó svo greinargóðu og ljósu að flestu meðalgreindu fólki, og þó einkum áhugamönnum um fugla- fræði, er auðvelt að hagnýta sér þessar upplýsingar til hlítar og greina fuglana eftir þeim. Ég hef orðið var við þá skoðun hjá ýmsum að þeir hefðu heldur kosið að aðeins íslenzkir fuglar hefðu verið teknir til meðferðar og þá ftarlegri grein gerð fyrir ‘þeim heldur en hér er gert. Ég neita því ekki að ég er einn í þeirra hópi. Hins vegar slær þýðandinn var- nagla við þessari aðfinnslu í for- mála sínum, því hann telur að oft leiti flækingsfuglar til fslands sem ekki séu hér staðbundnir. Þess vegna sé bók sem þessi nauðsyn- leg þar sem gerð er grein fyrir evrópiskum fuglum f heild. Enn- fremur ber þess að geta að tvær slíkar bækur eru þegar til á ís- lenzku: Fuglarnir eftir Bjarna Sæ- mundsson og Fuglabók Ferðafé- lags fslands sem Magnús Björns- son skrifaði. Þ. Jós. Sfférauspá morgundagsins Hrúturinn, 21. marz til 20. april: Málefni varðandi atvinnu og fjármunina eru undir sérlega heppilegum afstöðum. Þér ætti að bjóðast gott tækifæri til að þéna eitthvað aukalega nú. Nautið, 21. aprfl til 21. tnaí: Tækifæri til ánægjulegra stunda meðal ástvina og ungs fólks. Einnig til einhverra frístúnda til að sinna sérstökum áhugamálum manns. Tvíburarnir, 22. mai til 21. júní: Þú ættir að leitast við að taka daginn rólega. Þú ættir að not- færa þér ánægjulegan gang mála á heimilinu til að ná betri ár- angri út á við. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þér ætti að reynast auðvelt að telja aðra á skoðanir þínar í dag. Að minnsta kosti er fullt útlit Séfnin Finu.; ert sínianúmer — ég verð að segja einhverjum Ieyndarmálið áður en ég spring. Gullkorn En vér vitum, að þeim, sem Guð elskar, samverkar allt til góðs þeim, sem kallaðir eru samkvæmt fyrirhugun, því að þá, sem að Hann þekkti fyrirfram, hefur Hann og fyrirhugað til að líkjast mynd Sonar síns, svo að Hann sé frum- burður meðal margra bræðra. Rómv. 8, 28 — 29. Te/c/ð á móti tilkynningum i Bæjarfréttir kl. 2—4 siðdegis sími Bæjarbókasafn Reykjavíkur 12308 Þingholtsstræti 29A Útlánsdeild: 2-10 alla virka daga nema laugardaga 1-4. Lokað sunnu daga. Lesstofa: 10-10 alla virka daga nema laugardaga 10-4. — Lokað sunnudaga. Útibú Kofsvallagötu 16: 5,30-7,30 alla virka daga nema laugardaga. Útibú Hólmgarði 34: 5-7 alla virka daga nema laugardaga Listasafn Einars Jónssonar er opið á sunnudögum og mið- vikudögum frá kl. 1.30 — 3.30. Tæknibókasafn IMSI, Iðnskólanum Opið alla virka daga frá kl. 13,— 19, nema laugardaga kl. 13,—15. Cengið S 1 Sterl.pund 1 Jan ríkjad 1 Kanadadollar 100 Dar.skar kr. 100 Norskai kr. 100 Sænskar kr. 100 Finnsk mörk 100 Franskir fr 100 Belglskir cr 100 Gyllini 100 Svisrneskir fr 00 Tékkneskar kr 120,38 42,95 39,85 620,88 600,76 835,20 13.37 376,4t 36,28 120,68 43,06 39,96 322,48 802,30 837.35 13.40 378 64 S6.50 1192,43 1195,49 993,12 395,67 596,41 598,00 1000 V-þýzk mörk 1075,34 1078,10 fyrir að aðrir hafi góðan skilning á þeim og taki tillit til þeirra. Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst: Heppilegur dagur til að láta ljós sitt skína á vinnustað og koma sér vel við atvinnuveitendann, þar eð hann hefur nú vinsamlegt auga með þér. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Fréttir eða eitthvað samband við fólk í fjarlægum landshluta eða erlendis frá er mjög líklegt. Allt þess háttar er undir góðum á- hrifum í dag. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Ekki er ótrúlegt að eitthvað dul- arfullt eða dulrænt geti borið fyrir þig í dag. Að minnsta kosti má búast við að þú hugleiðir eitthvað slíkt á þessum degi. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Ánægjulegur dagur fyrir tilstuðl- an félaga, maka eða vina. Horfur á samstarfi góðar en samt ætt- irðu ekki að láta skoðanir þínar of mikið í ljós en láta hina ráða. Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Þú ættir að hafa gott tæki- færi í dag til að sýna yfirmanni þínum hvað f þér býr og enginn vafi er á þvf að hann mun meta viðleitni þína að verðleikum. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Ef þú hefur tækifæri til að skemmta þér í • kvöld þá ættirðu hiklaust að notfærá þér það. Mjög góðar afstöður til ásta- kynna fyrir þá sem eru ólofaðir og óbundnir f þeim efnum. Vatnsberinn, 21. jan. tll 19. febr.: Gamall skuldunautur mun að öllum likum koma í dag og gera upp. Svo virðist vera sem þessi greiðsla hafi mjög heppileg áhrif á heimilisbraginn seinni hluta dagsins. Fiskamir, 20. febr. til 20. marz: Þú ættir nú að láta maka þinn og félaga vita skoðanir þínar og viðhorf til málanna þvf allt bend- ir nú til að undirtektirnar verði jákvæðar. Ætli það verði ekki svo að hannhringi alls ekki núna, af því Rip er hér.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.