Tölvumál - 01.12.1996, Qupperneq 7
■»
TOLVUMAL
markmiði, en þegar svo verður
fæst jafnframt það verkfæri sem
sölu- og markaðsstarfsemin þarf á
að halda.
Reikningagerð er álitin annað
mikilvægt verkfæri í keppninni
um viðskiptavinina. Mikil aukn-
ing sérþjónustu hefur leitt til kröfu
um betri læsileika reikninga og í
skráningunum, sem liggja að baki
reikningum, felast mikilvægar
markaðsupplýsingar. Með því að
skoða notkunarmynstrið í reikn-
ingunum má setja saman þjón-
ustutilboð, sem hentar viðkom-
andi notanda. Reikningakerfi, sem
er af vanefnum búið, getur hins
vegar komið í veg fyrir að hægt sé
að auka þjónustuframboð og mæta
þörfum viðskiptavina.
Samtímis því sem athyglin
beinist að upplýsingakerfum og
reikningagerð er í gangi vinna við
gæðamál þar sem fram fer skoðun
á hinum ýmsu afgreiðsluferlum
innan Pósts og síma. Þessi vinna
ætti annars vegar að leiða til
auðveldari aðgangs notenda að
símaþjónustu og markvissari
afgreiðslu og hins vegar gerir hún
mögulegt að endurskoða við-
skiptastarfsemina á mörgum
sviðum með það í huga að beita í
auknum mæli upplýsingatækni
til þess að ná settum mark-
miðum. Þannig má segja að
upplýsingar og tæknin til að
meðhöndla þær komi til með að
mynda samfelldan þráð í starf-
seminni frá aðferðum við
skráningu notanda upp í æðstu
ákvarðanatöku um þjónustu-
markmið og stefnu fyrirtækisins.
Það er ætlun manna að sú
vinna, sem nú fer fram og hór
hefur verið lýst, geri Pósti og síma
kleift að velja réttu leiðina í
uppbyggingu upplýsingakerfa, svo
að þær vonir sem íslenskir notend-
ur binda við frekari framfarir í
símamálum rætist og að hægt
verði að veita þeim jafn fjölbreytta
og góða þjónustu og best þekkist
erlendis.
Gústav Arnar er yfirverk-
fræðingur hjá Pósti og síma
DESEMBER 1996 - 7