Tölvumál - 01.12.1996, Page 17
T 0 L V U
A L
atvinnu og fjölga möguleikum til
útflutnings á íslensku hugviti.
4. meginmarkmið
Menntakerfið lagi sig að
breyttri þjóðfélagsmynd og miði
almenna menntun og símenntun
við kosti upplýsingasamfélagsins
um leið og það stendur vörð um
tungu okkar og menningu.
5. megninmarkmið
Löggjöf, reglur og vinnubrögð
verði endurskoðuð með tilliti til
upplýsingatækni til að örva
tæknilegar framfarir og til að
vernda réttindi einstaklinga og
fyrirtækja.
Almenningur, lýðræði og
jafnrétti
Mikilvægt er að upplýsinga-
tækni ná til allra hópa
þjóðfélagsins og ekki myndist
tveir ólíkir hópar; þeir tölvulæsu
og þeir sem ekki geta notað
tölvutæknina sér til gagns. Til
þess að efnahagur og búseta
hindri ekki aðgengi landsmanna
að opinberum upplýsingum er
stefnt að því að gera þær aðgengi-
legar á tölvuneti og koma upp
tækjabúnaði til almenningsnota í
opinberum stofnunum og al-
menningsbókasöfnum. I þessu
sambandi þarf sérstaklega að
huga að þörfum fatlaðra. Almenn-
ingsbókasöfnin verða alhliða
upplýsingamiðstöðvar.
Á næstu áratugum má búast
við að störf í ákveðnum starfs-
greinum hverfi eða breytist og ný
störf skapist sem krefjast annars
konar færni en þau sem lögðust
af. Því er mikilvægt að tryggja
möguleika fólks til að læra ný
störf og aðlagast breyttum tímum
með stöðugri endurmenntun.
Atvinnulíf
Upplýsingatæknin gegnir æ
mikilvægara hlutverki í ólíkum
greinum atvinnulífsins og nú svo
komið að til þess að standast
samkeppni þurfa allir atvinnu-
vegir á íslandi að tileinka sér
tölvutæknina. Það skiptir því
miklu að atvinnulífið geti sótt
nauðsynlega sérþekkingu á sviði
upplýsingatækni til öflugs
upplýsingaiðnaðar innanlands.
Einnig þarf að byggja upp öflugan
upplýsingaiðnað með það að
markmiði að skapa verðmæti til
útflutnings. Til þess að vinna
þessum málum brautargengi þarf
að ríkja eðlileg og sanngjörn
samkeppni í upplýsingaþjónustu.
Upplýsingatæknin er verkfæri
sem nota þarf til þess að bæta
opinbera þjónustu, auka skil-
virkni og lækka kostnað. Hægt er
að ná árangri m.a. með því að
nýta markaðslausnir þar sem þær
bjóðast, framfylgja útboðsstefnu
og koma á EDI-samskiptum milli
fyrirtækja og ríkisstofnana.
Menntun, rannsóknir,
menning
Farsæl nýting upplýsinga-
tækni á öllum sviðum þjóðlífsins
er háð því að allir fái notið
menntunar í upplýsingatækni. í
því skyni þarf að efla kennslu í
upplýsingatækni í grunn- og
framhaldsskólum landsins og
leggja sérstaka rækt við hana í
kennaramenntun. Allar náms-
greinar þurfa að þróast og taka
mið af þeim möguleikum og
breytingum sem fylgja upplýs-
ingatækninni. I dag er tölvubún-
aði og stoðþjónustu í skólum
ábótavant og þarf að bæta úr því
og tryggja öfluga starfsemi
menntanets. Uppbygging fjöl-
breytts sérnáms á sviði upplýs-
DESEMBER 1996 -17