Vísir - 14.11.1962, Qupperneq 1
VISIR
52. árg. — Miðvikudagur 14. nóvember 1962. — 262. tbl.
LÆKNAR HOFU STORF
AÐ NÝJU í MORGUN
Læknadeilan hefir nú boðs ríkisstjórnarinnar að væntanlegar kjara-
verið farsællega til lykta frá 10. þessa mánaðar breytingar þeim til
leidd á grundvelli til- með þeirri breytingu, Framhaid & bis. 5
SÁ TTAFUND
UR í KVÖLD
Sáttasemjari hefur boðað aðila
í síldveiðideilunni á fund klukkan
9 í kvöld. Að ýmissa ætlan eru
sáttahorfur öllu vænlegri nú en
til skamms tíma.
Á fundi útvegsmanna í gær,
sem LÍO boðaði til, var rætt um
samstöðuna, ástand og horfur,
eftir að samninganefndin hafði
gert grein fyrir viðræðunum að
undanförnu.' Engin ályktun var
gerð á fundinum.
SAMIÐ
Á HELLISSANDI
Samningar tókust í gærkvöldi
milli útvegsmanna og sjómanna
þar um skiptakjör á yfirstandandi
síldarvertíð. Samið var um sömu
kjör og á Akranesi, að því við-
bættu, að geri LÍÚ samninga, er
séu sjómönnum hagstæðari, komi
sú hækkun einnig til á Hellis-
sandi.
BATNANDI
VEÐUR Á MIÐUM
Vísir átti tal við Landhelgis-
gæzluna í morgun, en ekki voru
fyrir hendi nýjar fréttir um síld-
arleit. Veður hefur verið óhag-
stætt á miðum. Nú er þar norðan
og norðaustan átt, og var í morg-
un enn allhvasst, en samkvæmt
uppl. frá Veðurstofunni um kl. 11,
var norðaustan kaldi á miðunum,
4 vindstig, og ekki horfur á
bráðri breytingu, og frekara að
’.ægi en hitt.
Tveir
drengir
Rjúpur
hækka
í verði
Vísir hringdi í nokkrar kjöt-
búðir í morgun og spurðist fyr
ir um rjúpurnar. Niðurstaðan
var sú að þær seljast jafn ört
og þær koma í búðir. Er fyr-
irsjáanlegt að margir verða án
rjúpu, sem gjarnan vildu þær.
Verðlagið fer hækkandi og er
Iægsta verð 10 krónum hærra
en í fyrra. Rjúpurnar eru seldar
á 50-60 krónur. Voru þær fyrst
seldar á 45 krónur. Verðið fer
hækkandi.
Tveir hjólríðandi drengir, báðir
búsettir í Kópavogi, slösuðust i
gær.
Fyrra slysið varð neðst á Lauga
veginum í gær um kl. 2,30 e.h.
Vildi það til með þeim hætti að
hjólríðandi drengir, Maríus
Framh. á bls. 5.
INN60NGURETTUR LIVSKY
LAUS Á NÆSTA ÞIH6I
Kommúnistar sjá nú veldi sitt
í A. S. í. riða. Ná þeir ekki upp
í nefið á sér af bræði yfir því
að von skuli vera á 33 fulltrú-
um íslenzkra verzlunarmanna á
þingið. í morgun dregur blaðið
f efa að nema fáir muni „beygja
sig fyrir dómnum“, eins og það
er orðað. Hann gangi í berhögg
við yfirlýstan vilja löggjafans,
styðjist ekki við neinar laga-
greinar og sé brot á stjórnar-
skránni!
Nær er að halda að þeir menn
sem svo hugsa og skrifa hafi
FYRSTA SILDIN A LAND
Fyrsta síldin kom til
Vkraness um hádegið í
lag. Skírnir kom með 300
nál, Sigrýn 400 mál, Anna
100 mál, Höfrungur H 400
nál og Sigurður 100 mál.
Alls fóru 7 bátar út frá
Akranesi í gær.
Síldin fékkst í Grindavíkursjó.
Hinir tvéir bátanna, sém fengu
ekkert eru á leið á miðin undir
Jökli. I dag fara væntanlega 'ut 6
bátar frá Akranési og haida þeir
vestur undir Jökul. Alls verða 20
bátar komnir á sjó frá Akranesi
eftir örfáa daga.
Þar hefur verið norðanátt og
stormur, en veðrið heldur tekið að
Iægja. Vitað er að undir Jökli er
mikil síld, en ekki hvort hún er
komin upp, eða hvort veður batn
ar svo mikið f dag að' svo vel geti
farið.
Þetta er allt smásíld, sem bát-
arnir komu með inn í dag, 18-26
cm löng. Hún fer væntanlega í
bræðslu og kannske eitthvað í
beitu. Síldin f Grindavíkursjó er
yfirleitt smá, en gera má ráð fyrir
mun betri síld undir Jökli.
verið skyndilega sviptir öllum
vitsmunum, svo fjarstæðar eru
þessar fullyrðingar. Heldur Þjóð
viljinn að Félagsdómur, sem
skipaður er færustu lögfræðing-
um og stýrt er af ritara Hæsta
réttar, ætli sér þá dul að brjóta
stjórnarskrána og kveða upp
dóma, sem ekki styðjist við nein
ar lagagreinar? Erfitt er að sjá
hvaða fólk blaðið ætlast til þess
að trúi slíkum þvættingi.
í lögunum um stéttarfélög frá
1938 eru skýlaus ákvæði um
það að sambönd stéttarfélaga,
eins og L. í. V., eigi rétt á inn-
göngu í A. S. í. ef öllum skil-
yrðum er fullnægt. ítrekar dóm-
urinn þetta og bendir á að hér
sé ótvíræð heimid fyrir því að
L. í. V. skuli eiga kröfu um
inngöngu í Alþýðusambandið.
Kommúnistum væri nær að afla
Framh. á 5. sfðu.