Vísir - 14.11.1962, Blaðsíða 3
V*í SIR . Miðvikudagur 14. nóvember 1962,
Á fréttastofu útvarpsins
Við Iitum inn í gær á frétta-
<«tofu útvarpsins, til að siá
hvernig mennirnir byggju sem
safna fréttum og skrifa þær
fyrir útvarpið. Á fréttastofu út-
varpsins vinna sjö manns, að
þvf er Jón Magnússon frétta-
stjóri sagði okkur. Aðeins fáir
voru inni við. Voru menn ým-
ist f fréttaleiðöngrum eða í frí-
um.
Á myndinni efst til vinstri
er Margrét Indriðadóttir, sem
fæst aðallega við innlendar
fréttir, auk þess sem hún sér
um útvarpsþátt ásamt Áma
Böðvarssyni cand. mag.
Á myndinni f miðið er Tor-
olf Smith, sem um margra ára
skeið hefur unnið á fréttastofu
útvarpsins. Hann var þarna í
heimsókn, en hann hefur verið
óvinnufær um skeið vegna van-
heiisu. Er hann með vinstri
höndina í fatla, en kveðst á
batavegi.
Á myndinni efst til hægri, er
Jón Magnússon fréttastjóri að
ná í fréttir f „teleprinterinn“.
Þar koma fréttir frá útlöndum
með loftskeytum og eru þær
vélritaðar inn á renning af þar
til gerðri vél. Fréttastofan fær
fréttir þannig bæði frá AsSO-
ciated Press og N.T.B.
Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri leit inn á meðan
við stóðum þarna við. Sést
hann til vinstri á myndinni að
neðan til vinstri. Situr hann við
borðið hjá Stefáni Jónssyni
fréttamanni, sem margir þekkja
fyrir viðtöl sín í útvarpið. Auk
þess að fást við viðtöl er hann
bæði í innlendum og erlendum
fréttum.
Myndin að neðan til hægri er
tckin í klefanum, þar sem
fréttimar em lesnar. Aðal
fréttaþulur útvarpsins, Jón
Múli Árnason, situr þar og les,
einangraður frá umheiminum,
með hljóðeinangrun.
\; ■
.
\ \ v \ 1 ' Í'í V
v '• '•
• V •>
í . .
£\íxV«V>\m
fcs : , >••: ••*••
:••••■
•:•: •: •'•::
;■ ,'•:••• ,:■■■•
■
' •
>■
H
>: >;;
.'•:■• •' ••
m