Vísir - 16.11.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 16.11.1962, Blaðsíða 2
2 vTTiR .'WgliBPr'^^iWBBBMWi" /r *Hf 1 “i a-B^SP v y////jm?///////Æwyy/////ym22'//Æ Verður KR „stórveldi" í körfuknattieik Anncsr flokkur félngsins vekur uthygli fyrir leik sinn Það vakti mikla athygli á dögunum, er Körfuknatt leiksmót Reykjavíkur hófst um helgina, að b-lið KR í 2. flokki vann íslands meistarana í þessum flokki Ármann, með 24:21 í geysi spennandi leik. Stórlið? f>eir, sem gerst vita deili á 2. flokki KR segja, að þar sé í upp- siglingu stórlið i 'iörfuknattleik. Hafa KR-ingar viðað að sér fjölda ungra pilta og tefla fram a-, b- og c-liði í 2. flokki. Æfðu piltarnir í haust undir leiðsögn bandarísks þjálfara og hafa sýnt miklar fram- farir. NUverandi þjálfari er Ólafur Thorlacius. Til dæmis um þann styrkleika, sem flokkurinn hefur yfir að ráða, má minnast á æfingaleik sem- a- lið 2. flokks lék nýlega við meist- araflokk KFR, en þann leik unnu þeir með 104:67, og þó var KFR- liðið styrkt með Davíð Helgasyni, landsliðsmanni úr Ármanni. KR er sem sé á leiðinni með gott lið í meistaraflokki, en nokkr- ir piltanna ganga upp nú um ára- mótin og súyrkja þá meistaraflokks liðið sem enn hefur ekki náð mikl- um styrkleika. Leyfilegt er í körfu- knattleik að nota tvo 2. flokksmenn í meistaraflokksleikjum. Fyrstu leikir meistaraflokks. Annað kvöld fara fram fyrstu leikir meistaraflokks í Reykjavík- urmótinu og verður leikið að Há- logalandi. Gefst mönnum þá gott færi á að virða fyrir sér styrkleika liðanna í keppninni, þar eð öll meistaraflokksliðin koma fram þetta kvöld, en leikirnir eru: Ár- mann—KR og ÍR—KFR. KR-ingar geta aðeins notað 2 af hinum snjöllu 2. flokksmönnum sín um, eins og sjá má af framansögðu en margir þeirra, sem vegna aldurs sitja hjá, ættu þó fyllilega skilið að vera með. Búast má við sigri Ár- manns, þó ekki sé sá sigur örugg- ur. Hinn ieikurinn, milli iR og KFR gæti orðið skemmtilegur, þótt iR sá óneitanlega sigurstranglegt, en einmitt þessi tvö lið hafa eldað grátt silfur saman á undanförnum árum og mættust m. a. £ úrslita- leik Islandsmótsins í fyrra. Á sunnudagskvöld fara fram leik ir yngri flokkanna. í IV. flokki KFR—ÍR (c-lið), í II. flokki Ár- mann—KR (c-lið og IR—KR (a- lið). Síðastnefndi leikurinn er raun- verulega úrslitaleikur í þessum flokki og getur orðið spennandi, þar sem ÍR-ingar eru með 2 lands- liðsmenn í liði sínu en KR-ingar með hið jafnsterka og efnilega Iið sitt. Leikirnir bæði kvöldin hefjast kl. 20.15. ísland - Danmörk Reykjavfk 1.-2. EM á Búdapest 1966 Á frjálsíþróttaráðstefnunni I Prag um síðustu helgi var einkum rætt um komandi stórviðburði á komandi sumri og var þar ákveð— í ið m. a. að Iandskeppni íslands og Danmerkur fari fram í Reykja-| vík dagana 1. og 2. júlí. [ Á ráðstefnu þessari var einnig ákveðið að Búdapest verði næsti! vettvangur EM í frjálsum íþróttum, sem haldið verður 1966. Varí þetta ákveðið £ leynilegri atkvæðagreiðslu með 10 atkvæðum - gegn 6, sem féllu til Aþenu eftir að ráðstefnan var búin að neitasj Helsingfors, Varsjá og Búkarest um að halda keppnina. Daninn Emanúel Rose sat ráðstefnu þessa fyrir hönd íslandsj cg Danmerkur. Sex sigrar KR í mótum sumursms Aðalfundur knattspyrnudeildar K. R. var haldinn £ Félagsheimili K. R. við Kaplaskjólsveg s. 1. miðviku- dagskvöld. Ritari félagsins flutti skýrslu síðasta árs, og kom þar margt fróðlegt £ ljós. 1 knattspyrnudeildinni eru 942 meðlimir, og er hún fjölmennasta deild félagsins. Deildin sendi flokka £ 33 mót af 34 mótum sumarsins og höfðu sigur í 6 þeirra, en það er ein versta útkoma, er félagið hefur fengið £ mörg ár. Meistara- fiokkurinn hafði beztu útkomu hinna 11 flokka félagsins og sigr- aði £ tveim mótum. 7 KR-ingar léku með landsliðinu £ sumar við góðan orðstír, og sýnir það glögg- lega styrkleika flokksins. Gjaldkeri flutti skýrslu um hag félagsins £ ár, og er hann, mjög góður. Þv£ má þakka hinni vel heppnuðu heimsókn S. B. U. £ sum- ar, en hún gaf rúml. 100.000 kr. hagnað. Úr Reykjavíkurmótinu varð 18 þús. kr. hagnaður, en af Islands- mótinu aðeins 4000. Gjaldkeri benti á, að mismunurinn lægi £ hinum mikla ferðakostnaði liðanna um landið. Sagði hann að lokum, að deildin hefði nú um 55.000 krónur eftir, er illt væri upp talið, og er það mjög gott,_þvf flest knatt- spyrnufélög iandsins sýna árlega stórtap. Formaður félagsins, Sigurður Halldórsson, afhenti Viglundi Þor- steinssyni afreksbikar og verð- launapening 2. flokks K. R., en hann fær sá leikmaður, er bezt æfir og starfar fyrir félagið, en þetta er £ 6. sinn, að bikarinn er veittur. Tveir af stjórnarmeðiimum fé- lagsins báðust eindregið undan end PLANSLÍPUN Að gefnu tilefni, viljum við benda bifreiðaeigendum og verkstæðum á, að á renniverkstæði okkar er fullkomnasta planslípivél, sem völ er á. Slípar fleti að stærð 1700x500 mm. SLÍPUM VÉLARBLOKKIR, HEDD pústgreinar Dg alls konar fleti. VÖNDUÐ VINNA OG FLJÓT AFGREIÐSLA. EGILL VILHJÁLMSSON HF. Laugavegur 118 — 2-22-40. urkosningu i stjórnina, þeir Har- aldur Gislason og Haraldur Guð- mundsson. Þeim voru þökkuð hin miklu störf i þágu félagsins, en báðir hafa verið £ stjórn um 15 ára skeið. I stjórn knattspyrnudeildar K. R. voru kosnir Sigurður Halldórs- son, formaður, Sigurgeir Guðmanns son varaformaður, Hörður Óskars- son ritari, Hörður Felixson gjald- keri og Bjarni Felixson. Meðstjórn- endur þeir Hans Kragh, Ellert Schram, Helgi Jónsson og Birgir Þorvaldsson. í mótanefnd sitja Óiafur Þ. Guðmundsson og Asgeir Þórarinsson. .......klp — Fram og KR Ieika i meistara- flokki karla i Handknattleiks- móti Reykjavikur að Háloga- landi £ kvöld. Fram hefur Iik- Iega aldrei verið betra en nú, en langt er síðan KR hefur verið í svo Iélegri æfingu. Leikir þess- ara tveggja liða hafa undanfarin ár yfirleitt unnizt með 1—2 mörkum í hörkuspennandi leikj um — og einmitt þess vegna er spurning, hvort hin gamla keppn isharka KR-inga getur veitt Frömurum nokkra mótspyrnu í kvöld. Margir aðrir leikir fara fram í kvöld, m. a. Víkingur — Ár- mann £ meistaraflokki kvenna. Keppnin hefst kl. 20.15. Éw'tondar frétiur Danmörk vann Svia í gær- kvöldi í landskeppni i hnefaleik- um með 8:2, sem er stærri sigur en fyrirfram hafði verið gert ráð fyrir. Danir bjuggust við 6:4, en Sviar £ hæsta lagi 7:3. Keppnin fór fram i KB-Hallen fyrir fullu húsi áhorfenda, sem voru ánægð ir með sigurinn yfir „erfðafénd- unum“, cnda ekki hversdagslegt að Danir sigri Svia í íþróttum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.