Vísir - 16.11.1962, Blaðsíða 7
I
>f
Ný málverkabók Ásgríms Jóns-
sonar, ásamt ævisögu hans er kom
in í bókabúðir. Það er Heigafell
undir stjórn Ragnars Jónssonar,
sem gefur þessa bók út, eins og
hina fyrri, sem nú er uppseld. Hin
nýja Ásgrímsbók er frábrugðin
þeirri fyrri að því ieyti að nú eru
myndimar settar innan um texia
ævisögunnar, en skipa ekki sér-
stakan hluta bókarinnar. Mvndirn
ar eru auk þess allar aðrar en þa;r
scm voru í fyrri bókinni. Tómas
Guðmundsson skáld ritaði ævisögu
Ásgríms.
Fyrsta málverkabókin frá Helga
felli kom út árið 1959, einmitt
Ásgrímsbók. Hún er nú eins og
kunnugt er löngu uppseld. Helga-
fell réðist strax í útgáfu annarrar
bókar, með stærri og fleiri mynd-
um og ítarlegra æviágripi lista-
mannsins. í fyrri bókinni voru að-
allega myndir frá síðustu árum
listamannsins, að hans eigin á-
bendingu, en í þessari nýju bók
eru myndir Ásgríms frá öllum tím-
um, alit frá aldamótum til síðustu
myndarinnar, sem hann gerði. Seg
ir Ragnar Jónsson að þessi nýja
bók sé öll glæsilegri og betur úr
garði gerð en fyrri Ásgrímsbókin. j
Allar myndir eru prentaðar í
Víkingsprenti, prentverki Helga-
fellsforlagsins. Prentmót hf. gerði
tmM>4
Ragnar Jónsson, forstjóri Heigafells, skoðar hina nýju Ásgrímsbók.
Ofar og til hliðar við hann hangir ein af þeim myndum, sem Ragnar
hefur iátið ramma inn fyrir börn. (Ljósm. Vísis, B. G.).
Ný glæsile
bók komin út
rims
myndamót. Bókin er bundin í
striga af Bókfelli og er aukahlífð
arkápa úr þykku plasti. Káputeikn
ingu og titilblað gerði ungur
teiknari, Tómas Tómasso'n, er unn
ið hefur tvö undanfarin ár sem
Ein af myndum Ásgríms í hinni nýju bók. Hún er úr Helgafellsskógi.
//
Því gleymi ég aldrei
//
Önnur jólabók Kvöldvökuútgáf-
unnar, því Gleymi ég aldrei, er nú
komin í bókaverzlanir fyrir
nokl<ru.
Eins og getið hefir verið í Vísi
áður, er hér um að ræða safn frá-
söguþátta — alls 21 — eftir
marga þjóðkunna borgara, sem
segja frá atburðum úr lífi sínu, at-
burðum, sem þeir segjast aldrei
munu gleyma. Fimm af þáttum
þessum hafa verið lesnir í útvarp
i sambandi við verðlaunasam-
keppni þá, sem Ríkisútvarpið efndi
'il á sínum tíma, en allir hinir eru
krifaðir sérstaklega fyrir Kvöld-
'ikuútgáfuna, og eru flestir höf-
darnir þjóðkunnir.
ægilegt er að grfpa niður af \
'andahófi, til þess að sýna, að
hér er um úrval höfunda að ræða,
en þeir eru m. a.: Sr. Árelíus
Níelsson, Árni Óla, Davíð Stefáns-
son, Ingólfur Kristjánsson, Jochum
M. Eggertsson, Páll Kolka, sr. Sig-
urður Einarsson, sr. Sveinn Vík-
ingur og Þórunn Elfa Magnús-
dóttir.
Hér verður ekki lagður dómur
á einstaka þætti bókarinnar, en
eins og útgefendur hafa vandað
val höfunda, hlýtur margt fróðlegt
og skemmtilegt að finnast á síðum
hennar. Útgefendur lofa því, að
meira muni verða gefið út af
þessu tagi, verði þessari bók vel
tekið, og eiga lesendur það þess
vegna undir sjálfum sér, hvort þei
fá „meira að neyra“.
auglýsingateiknari í Hamborg. Er
hann sonur Tómasar skálds Guð-
mundssonar.
LIST FYRIR BÖRN.
— Börn eiga að geta fest falleg
málverk í minni sér líkt og ljóð og
vísur sem þau læra, segir Ragnar
Jónsson. Til þess að vekja áhuga
barna á fagurri list, hefur Helga-
fell látið setja fáein eintök af
stærstu myndum úr bókinni í
snotra ramma til gjafa handa
börnum og unglingum að prýða
barnaherbergi sín og fá þannig
lífsloft í herbergin, sem allt of
oft eru með „sálarsljófgandi
myndarusli". eins og Ragnar kall-
ar það óvæginn, og á þá meðal
annars við leikaramyndir og þess
háttar. Eftir tvo rnánuði geta svo
börnin komið í Unuhús Helgafells
og skipt á myndum og farið með
nýjar heim til sín án þess að
greiða í milli. Þetta gerir Ragnar
til að börnin fái tækifæri til að
kynnast sem flestum myndum.
—- Þær verða farnar að festast
börnunum í minni eftir tvo mán-
uði, sagði Ragnar þegar hann
ræddi þessa hugmynd við blaða-
menn. Ásgrímur Jónsson er áreið
anlega öllum íslenzkum börnum
traustur félagi og lærimeistari.
Áskriftasími
Vísis er
1 16 60
Glæsileg bók um
Þjóðminj asafnið
Bókaútgáfa Menningarsjóðs sendi
í gær á bókamarkaðinn nýjustu og
jafnframt veglegustu bókina, sem
forlagið hefur gefið út. Það er safn
100 ritgerða um jafnmarga gripi í
Þjóðminjasafninu eða sögulegar
minjar í umsjá þjóðminjavarðar.
Bókin er aiþýðleg lýsing, útlits,
sögu og stöðu þessara minja. Það
er dr. Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörður, sem hefur ritað bókina.
Verkið prýða 100 myndir, auk á-
grips af sögu Þjóðminjasafnsins.
Tilefni vitgáfunnar er 100 ára af-
Dr. Kristján Eldjárn.
mæli Þjóðminjasafnsins i febrúar
næsta ár.
Gils Guðmundsson, forstjóri
Bókaútgáfu Menningarsjóðs, Helgi
Sæmundsson formaður Mennta-
málaráðs, dr. Kristján Eldjám og
nokkrir aðrir sem koma víð sögu
útgáfunnar héldu fund með'blaða-
mönnum í gær.^
Þar, sagði Gils Guðmundsson að
bókin væri sú bezta og veglegasta
frá bókagerðarlegu sjónarmiði,
sem Menningarsjóður hefði gefið
út. Dr. Eldjárn lýsti sjónarmiðum
sínum við gerð bókarinnar. Hann
kvaðst hafa miðað val gripanna,
sem fjailað er um, við það hvenær
þeir bárust Þjóðminjasafninu.
Skipti hann 100 árum Þjóðminja-
safnsins í tugi, og valdi 10 gripi
frá hverjum tug. Því væri ekki um
100 beztu gripi Þjóðminjasafnsins
að ræða, þótt margir þeirra væru
meðal þess sem fjallað er um.
Þá er einnig fjallað um ýmsar
sögulegar minjar, sem nú eru í
umsjá þjóðminjavarðar og þar af
leiðandi nátengdar Þjóðminjasafn-
inu.
Bókin er fyrst og fremst alþýðu-
verk, rituð á fögru máli, sem dr.
Eldjárn er kunnur fyrir af fyrri
bókum sínum. Fjölmargar myndir
setja fallegan svip á bókina. Útliti
hennar hefur ráðið Hörður Ág-
ústsson, listmálari, Gísli Gestsson
hefru tekið flestar myndirnar,
nema litmyndir, sem Mats Wibe
Lund tók. Prentsmiðjan Oddi
prentað, og Sveinabókbandið batt
bókina inn. Myndamót gerði Prent
mót h.f. .
Verði bókarinnar er stillt í hóf.
Hún kostar 378 krónur.
Sveinbjörn á Strass-
borgarráðstefnu
Sveinbjörn Sigurjónsson, skóla-
stjóri Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar í Reykjavík, er fyrir skömmu
kominn heim frá Strassbourg, þar
sem hann sat ráðstefnu, sem hald-
in var á vegum Evrópuráðsins um
fræðslustarf utan skóla.
Á ráðstefnu þessari var um það
rætt, hvað gert væri og gera þyrfti
til menningarauka ungu fólki, sem
ekki sækir þá skóla, sem eru hluti
hirts lögbundna fræðslukerfis.
Komu hin margvíslegustu mál hér
að Iútandi til umræðu, t .d. starf
námsflokka og lýðháskóla, tóm-
stundastörf, námsferðir, fræðslu-
kvikmyndir og fræðsla í útvarpi og
sjónvarpi.
Tillögur voru gerðar um ýmis
efni, og komu m. a. þessi atriði þar
fram:
Mikil þörf er á, að fylgzt sé
! með menntun ungs fólks, eftir að
I skólagöngu þess lýkur. Þarf starf
i á þéssu sviði að njóta sömu fjár-
| hagslegrar fyrirgreiðslu og hið lög
I bundna skólastarf, en hins vegar
á hið fyrrnefnda allt að vera með
óbundnari hætti.
Fræðslan þarf að miða að því
að vekja áhuga meðal þeirra, sem
hennar njóta, og að ala þá upp
sem góða þegna. Þess vegna ætti
þjóðfélagsfræði jafnan að vera
hluti þess, sem kennt er.
Háskólar mega ekki einangra
sig við vísindastörf og vísindaleg
kennslustörf. Þurfa þeir að taka
þátt í hinni almennu Iýðfræðslu.
Samstarf ríkja í milli getur haft
mikla þýðihgu til eflingar fræðslu
utan skóla. T. d. er æskilegt, að
aðstoð verði veitt til að koma á
við einangruð lönd og þróunarlönd
skiptum á ungu fólki og kennur-
um þess. Greiða þarf fyrir sumar-
leyfaferðym landa í milli. Auka
þarf kennslu í tungumálum Evr-
ópuþjóðannq og gera kennqrum
kleift að læra nýjustu kennsluað-
ferðir. Halda þarf áfram að kanna
fræðslurit um sögu og Iandafræði
til að auka réttan skilning þjóða á
milli.
Umræður á Alþingi í gær spunnust enn um
almannavarnir (sjá forsíðu).