Vísir - 16.11.1962, Síða 16
Leikfímistími hjá útvarpinu
Föstudagur 16. nóvember 1962.
100 sovét-
skip í vari
Nærri 100 sovézk skip —
síldveiðiskip og móðurskip —
vörpuðu akkerum í gærkvöldi
útl fyrir ströndum Kent, Eng-
landi.
Strandgæzlulið Breta gefur
þessum flota nánar gætur, en
þetta er stærsti slíkur floti,
sem sézt hefur svo nærri strönd
um Bretlands.
Líklegast er, að flotinn hati
leitað Iægis þarna vegna sjó-
gangs á miðum.
■ •
♦Kennedy og Adenauer hafa iokið
viðræðum í Washington. í sam-
eiginlegri yfirlýsingu segja þeir, í
að varðveita verði frelsi Berlínar j
hvað sem í sölurnar verði að j
Ieggja, og framtíð Berlínar verði ;
að ákveða í samræmi við algeran i
sjálfsákvörðunarrétt íbúanna.
L
1 ■ 1
.
SAS hótar að fíjúga á lág-
um
Norræna flugfélagið SAS hefir
nú í raun og veru sent Loftleiðum
formlega hólmgönguárás. Virð-
ist sem stóri bróðir hafi alla til-
burði til þess að ganga milli bols
og höfuðs á litla bróður. Ráða-
menn SAS segjast vera að verða
gjaldþrota vegna samkeppninnar
við Loftleiðir, sem það kallar ó-
heiðarlega. Heitir SAS nú á IATA
að duga sér sem bezt og hótar
að taka ella upp ferðir yfir Atlants
haf með hæggengum flugvélum á
Iágum fargjöldum og fljúga um
Grænland. Aftonbladet í Svíþjóð
telur líklegt að hinar Norðurlanda
þjóðirnar knýi fram sjónarmið
SAS með því að beita ísland við-
skiptaþvingunum.
Vísir snéri sér til Ingólfs Jóns-
sonar, samgöngumálaráðherra og
Kristjáns Guðlaugssonar, hæsta-
réttarlögmanns, stjórnarformanns
Lofleiða í morgun í tilefni af þess-
um fréttum.
Ráðherrann kvaðst ekki hafa
heyrt orð um það að ríkisstjórnir
hinna Norðurlanda hefðu í hyggju
að skerast í málið og beita ísland
einhvers konar viðskiptaþvingun-
um, það hlyti að vera rugl úr Aft-
onbladet. Sér dytti ekki í hug að
ríkisstjórnir SAS-landanna, bræðra
þjóðirnar á Norðurlöndum, færu á
hendur okkur með ofbeldishótun-
um. Þar að auki væri það svo um
viðskipti okkar við hin Norður-
löndin að við keyptum meira af
þeim en þau af okkur.
Kristján Guðlaugsson kvað það
hina mestu fjarstæðu hjá forstjóra
SAS í New York að Loftleiðir
rækju starfsemi sína eftirlitslaust.
Hér væri um frjálsa samkeppni og
fullkomlega heiðarlega að ræða
innan ramma alþjóðlegra loftferða
samninga, sem gerðu beinlínis ráð
fyrir að fargjöld á flugleiðum
væru misjöfn eftir gerð, hraða og
þægindum flugvélanna, sem not-
aðar væru. Árið 1954 fengu Loft-
leiðir sín fargjöld með DC4 flug-
vélum samþykkt hjá Loftferða-
stjórn Bandaríkjanna og hafa alla
tíð haft leyfi til þess að hafa þau
eins og þau eru. Þau hafa ekki
breytzt síðan þótt þoturnar hafi
Framh. á bls. 5.
Valdimar Ömólfsson íþrótta-
kennari hefur um alllangt skeið
annazt morgunleikfimi í útvarp-
inu. Lengst af hefur hann ekki
haft neina aðstoð aðra en und-
irleik Magnúsar Péturssonar.
Nú hefur brugðið svo við, að
þrjár yngismeyjar, sem starfa
við útvarpið, hafa gefið sig fram
til hjálpar og þykir Valdimar
miklu betra að kenna leikfim-
ina, þegar hann hefur einhverja
fyrir framan sig, sem gera æf-
ingarnar. — Myndina tók ljósm.
Vísis, I. M., við upptöku á
morgunleikfimi útvarpsins.
L. V. ORBID AD
IIIAÐ A.S.Í.
Enn eru Þjóðviljamenn reiðir
vegna dóms Félagsdóms í LÍV-
málinu. Hannibal Valdimarsson
lætur hafa það eftir sér í blað-
inu í morgun, að ummæli Vísis
um að LÍV væri þegar búið að
fá félagsrétlindi í ASÍ með
dómnum, væru fleipur! Við kunn
um enga aðferð til að taka fé-
lög inn í ASÍ aðra en umræð-
ur og lýðræðislega atkvæða-
greiðslu, segir hann. Vitnar
Hannibal síðan i lög ASÍ.
Forseti ASÍ, er svo fávíslega
mælir, ætti að gera gangskör
að þvi að fá sér lögfræðilega
aðstoð. Hann skilur greinilega
ckki enn hvað felst í dómi Fé-
Iagsdóms. Það vill ncfnilcga svo
til, að dómurinn er rétthærri en
lög ASÍ, einkum þegar dóm-
stóllinn hefir komizt að þeirri
niðurstöðu að sjálfur Hannibal
og piltar hans hafi þverbrotið
þessi sömu Iög ASÍ á LÍV.
Þótt Hannibal kunni cnga
aðra leið en atkvæðagreiðslu,
þá hefir Félagsdómurinn þó
markað aðra leið. Frá þeirri
Ieið verður ekki snúið, nema
Hannibal vilji brjóta Iög Iands-
ins og hafa dóminn að engu.
Með dómnum er LÍV orðinn
aðili að ASÍ. Því verður ekki
breytt með neinni atkvæða-
greiðslu.
r
$ Askrtfendalmppdrættið
Þann 27. þ. m. fer fram dráttur í áskrifendahappdrætti Vísis. Þátt-
takendur eru allir áskrifendur blaðsins, gamlir sem nýir, og án nokk-
urs aukagjalds. Er dregið úr nöfnum þeirra allra.
Vinningurinn að þessu sinni er kr. 10.509 að verðmæti. Er hann í
þremur hlutum, 3.500 kr. hver hluti. Eru það vörur í þremur verzlun-
um hér í borg, Austurveri, Melabúðinni og útibúi Austurvers við Háa-
leiti. Geta þeir, sem vinningana fá, valið sér vörur í verzlunum þessum
eftir eigin vali.
Á það skal bent, að aðeins áskrifendur taka þátt í happdrættinu,
en ekki þeir, sem kaupa blaðið í lausasölu. Gerizt þess vegna áskrif-
andi strax í dag og verið með. Síminn er 1-16-60.
Áskrifenda...