Vísir


Vísir - 20.11.1962, Qupperneq 1

Vísir - 20.11.1962, Qupperneq 1
WISIR 52. árg. — Þriðjudagur 20. nóvember 1962. — 267. tbl. SIGURL YÐRÆÐISSINNA IATKVÆÐAGREIDSLU A.S.Í.-þtas Lýðrœðissinnar unnu sigur i fyrstu atkvæðagreiðslunni á þingi Alþýðusambands íslands Sær. Greidd voru atkvæði varðandi kjörbréf tveggja fuli- trúa verkamanna og sjómanna í Sandgerði. Samþykkti þingið að vísa kjörbréfum þeirra aftur til kjörbréfanefndar, að tiliögu Jóns Sigurðssonar, fulltrúa Sjó mannasambandsins. Þegar búið Var að afgreiða rúmlega 320 ágreiningslaus kjörbréf á þingi ASf í gær voru tekin til meðferðgr kjörbréf 2ja fulltrúa frá Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Miðneshrepps í Sandgerði. Kjörbréfanefnd, skipuð Eðvarð Sigurðssyni, Ósk ari Hallgrímssyni og Snorra Jónssyni, hafði sent þinginu kjörbréfin, ásamt gögnum um kæru vegna kosningar á þess- um fulltrúum, og gerði kjör- bréfanefnd enga tillögu til þingsins um afgreiðslu málsins, en fól fundarstjóra að lesa upp meðfylgjandi gögn. Fundar- stjóri var Hannibal Valdimars- son, forseti ASf, sem gegnir því starfi þar til þingforseti hef ur verið kjörinn. í gögnum kærumálsins kom fram að fundurinn, sem kaus fulltrúana frá Sandgerði hafði ekki verið boðaður með lögleg- um fyrirvara, sem er tveir sól- arhringar. Vantaði rúman hálf- an sólarhring á að .svo væri. Fundurinn var engu að síður Framhald á bls. 5 Þing Alþýðusambandsins var sett í KR-húsinu í gær kl. 4. Ljósm. Vísis tók þessa mynd er Hannibal Valdimarsson setti þingið með ræðu. ÁBYR6 AFSTABA FRAM- SÚKNAR I LtV-MÁLINU Á fundi Alþýðusambandsins sem átti að hefjast kl. 1,30 eftir hádegi í dag var búizt við að mál Landssambands íslenzkra verzlunarmanna yrði tekið til umræðu. Það er nú ljóst orðið, að Framsóknarmenn á Alþýðu- sambandsþingi ætla að sýna á- byrga afstöðu og hafa þeir m. a. lýst því yfir, að þeir telji Alþýðusambandinu skylt að fara að lögum og hlíta dómi Félagsdóms. Vísir átti í morgun stutt sam- tal við Sverri Hermannsson, formann Landssambands verzl- unarmanna. Þar sagði hann m. a.: — Við verzlunarmenn erum Nýr skólastjórí Sjómannaskólans tilbúnir að mæta til þingsins hvenær sem kjörbréf okkar verða afgreidd. Allir fulltrúar okkar eru mættir. Þá sagði Sverrir ennfremur: — Við bíðum átekta meðan Alþýðusambandsþingið afgreið- ir kjörbréf okkar. Á fundi miðstjórnar Alþýðu- sambandsins, sem haldinn var í gærmorgun til að undirbúa þinghaldið koma mál LfV til umræðu, Gerðist það þá á þess- . um fundi, að tveir fulltrúar Framsóknarmanna þeir Guð- mundur Björnsson frá Stöðvar- firði og Óðinn Rögnvaldsson frá Reykjavík lýstu því yfir, að þeir teldu að Alþýðusambandið yrði að hlíta dómi Félagsdóms. Með þessari yfirlýsingu sýna Framsóknarmenn ábyrga af- stöðu. Er þess að vænta að þeir haldi henni á þingi Al- þýðusambandsins og ætti það þá pð tryggja að lög verði eigi rofin, því að Framsóknarmenn á þinginu hafa úrslitavald þar. \ Talning hefst Orslit í atkvæðagreiðslunni í síldveiðideilunni munu verða kunn síðd. eða í kvöld. Talning atkvæða mun sennilega hefjast kl. 4 e. h. í dag. í morgun voru ókomin atkvæði frá Vest- mannaeyjum, en þar sem flogið var í morgun voru allar horfur, að talning gæti hafizt svo sem a ðofan segir. Bátar hér bxða tilbúnir að fara á veiðar, verði úrslit at- kvæðagreiðslunnar þau, að báðir aðilar / samþykki samn- ingsuppkastið, eins og það síð- ast Iá fyrir. Jónas Sigurðsson. Jónas Sigurðsson, kennari, hefir verið skipaður skólastjóri Stýrimannaskóians i Reykjavík frá 1. þessa mánaðar að telja. Jónas skóiastjóri er maður um fimmtugt. Hann iauk fiski- mannaprófi árið 1940 og far- mannaprófi frá Stýrimanna- skólanum ári síðar. Eftir það dvaldist hann um eins árs skeið við framhaldsnám í Kalifornfu- háskóla og lagði þar stund á siglingafræði, stærðfræði og stjörnufræði. Eftir heimkomuna gerðist hann kennari við Stýri- mannaskólann og hefir kennt þar í 20. ár, aðallega siglinga- fræði og stærðfræði. Jónas Sigurðsson skólastjóri hefirl verið skipstjóri á sumrum um alliangt árabil á hvalveiði- skipum frá Hvalfirði. STJÓRNARKRCPPA I V.-ÞÝZKALANDI Stjórnar-samstarfið milli Frjálsra demokrata og Kristi- legra lýðræðissinna fór út um þúfur i gær, — eins og búizt hafði verið við, þegar fimm ráð- herrar Frjálsra demokrata, er sæti áttu í stjórninni báðust lausnar. Þetta gerðist eftir að sam- þykkt hafði verið á fundi í Niimberg, að miðstjórn fiokks- ins og þingflokksins, að rjúfa stjómarsamstarfið. Orsökin er DER SPIEGEL-málið og á- kvörðun Adenauers um, að verða ekki við kröfunni um, að láta Franz Josef Strauss land- varnaráðherra fara frá vegna afskipta sinna af því máli. Það er ljóst, að Frjálsir demokratar em fúsir til við- ræðna um cndurskipulagða samsteypustjórn, — vafalaust þá án þátttöku Strauss. Ollenhauer leiðtogi jafnaðar- manna sagði, að við núverandi aðstæður gæti ekki komið til samstarfs milli jafnaðarmanna og Kristilega lýðræðisflokksins. Hins vegar vill hann, að teknar vérði upp viðræður um möguleikana á stofnun samsteypustjórnar, er allir þrír aðalflokkarnir eigi sæti í, svo fremi að núverandi stjórnarflokkar geti ekki Jiomið á kyrrð og venjulegrí ró í landinu. VLM. X ,’Jil i I i j . i l <i . r

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.