Vísir - 20.11.1962, Blaðsíða 6
V1 SIR . Þriðjudagur 20. nóvember^gptí
Strætisvagnar
Strætisvagnar eru mikið
þarfaþing og hætt er við að
margur yrði seinn í förum milli
bæjarhluta ef þeirra nyti ekki
við. í daglegum rekstri svo
stórs fyrirtækis er margs að
gæta og ekki hægt að heimta
að þar sé allt fullkomið. En
einu má þó aldrei gleyma:
strætisvagnarnir eru þjónusta
við almenning og eiga þess
vegna að þjóna almenningi.
Strætisvagnabílstjórar eru
auðvitað misjafnir eins og aðr-
ir og ekki auðvelt við því að
gera. Þó eru nokkur atriði ein-
kenni þeirra flestra og mætti
úr bæta með Iítilli fyrirhöfn.
Strætisvagnabílstjórum virð-
ist iila við að kalla upp við-
komustaði, sumir gera það öðru
hverju, aðrir aldrei, fæstir
reglulega. Þetta verður að setja
út á þvf tæpast er hægt að ætl-
ast til að allt fólk í Reykjavík,
hvað þá fólk utan af landi,
kunni alla viðkomustaði stræt-
isvagna utan bókar eins og
mörgum bílstjóranna virðist
sjálfsagt.
Strætisvagnabílstjórar virð-
ast allir líða ólæti hversu mik-
U sem þau eru. Sá er þetta rit-
ar hefur aldrei séð bílstjóra
vísa ólátaseggjum úr vagni sín-
um þrátt fyrir greinilegt skilti,
og hefur þó oft verið ærin á-
stæða. Oftast er hér um börn
og unglinga að ræða en einnig
koma við sögu drukknir menn
sem eru að kássast upp á fólk.
Það er verra en ekkert að setja
fram reglur um hegðun og
reyna svo aldrei að fara eftir
þeim.
I strætisvögnum voru litlir
hamrar til að brjóta rúður ef
slys bæri að höndum og sömu-
leiðis handfang við afturdyr svo
farþegar geti sjálfir opnað þær
ef hættu steðjar að. Þetta hef-
ur hvort tveggja verið fjarlægt.
Ástæðan mætti ætla að væri
sú, að krakkar hefðu verið að
fikta f þessu. En ætla Strætis-
vagnar Reykjavíkur að standa
við slíka ráðstöfun ef slys yrði
á fólki vegna þess að bílstjórar
hafa ekki manndóm í sér til að
banna krökkum en fjarlægja
þess i stað nauðsynlegustu
hjálpartæki sem gætu bjargað
mannslífum og skylt er að hafa
í öllum almenningsvögnum í
öðrum löndum?
Uflinningarsjóður
Guðjéns
Sumúelssonur
Dr. Guðjón Samúelsson, húsa-
meistari ríkisins stofnaði með fyrir
mælum í erfðaskrá sinni, sjóð,
sem heitir: „Minningarsjóður
prófessors dr. phil húsameistara
Guðjóns Samúelssonar". Var stofn
fé sjóðsins % hlutar húseignar-
innar Skólavörðustígs 35 í Reykja-
vík og kr. 19.306,28 í ávfsunum
og skuldabréfi. Tilgangur sjóðs-
ins er að útbreiða þekkingu á húsa
gerðarlist í íslenzkum anda og set-
ur Arkitektafélag íslands sjóðnum
skipulagsskrá. Samkv. erfða-
skránni var menntamálaráðuneyt-
inu falin varzla sjóðsins um tíu
ára skeið, en síðan skyldi Arki-
tektafélag íslands taka við hon-
um. Veitti félagið honum viðtöku
14. nóvember s.l. Sjóðurinn er nú
að fjárhæð kr. 34.608,44, auk
hinnar verðmætu fasteignar við
Skólavörðustfg.
Innbrot og
ákeyrsln
Afðaranótt s. I. sunnudags var
brotizt inn í verzlunina Goðaborg
við Vatnsstfg.
hádegi í gær var ekið á mannlausa
Chevroletbifreið sem stóð á bíla-
gat eigandinn fullyrt um það við
lögregluna í gær hverju hafi verið
stolið.
Á tímabilinu frá kl. 3—5 eftir
hád. í fyrrad. var ekið á mannlaus-
an Chevroletbíl sem stóð á bíla-
stæðinu á horni fjverfisgötu og
Smiðjustígs. Skemmdist hún tals-
vert á vinstri hliðinni. Sá sem vald-
pr var að ákeyrslunni ók á brott og
biður lögreglan hann að gefa sig
fram við hana þegar f stað. Enn-
fremur vill hún einnig hafa tal af
sjónarvottum sem séð hafa þegar
atvik þetta skeði.
Lögreglan
heimsækir
skólana
Einhverja næstu daga mun lög-
reglan dreifa í skólana litlu blaði,
1—2 síður með aðvörunum og á-
minningum vegna umferðarhættu.
Fara lögreglumenn f skólann, ræða
við börnin um umferðarmál, hvetja
þau til að sinna umferðarreglum,
og láta þau síðan hafa þetta blað.
Það er umferðamefnd Reykjavík-
ur sem stendur fyrir þessu. Búið
verður að prenta blaðið í næstu
viku. \
TAUNUS12 M
Ford-umboðin buðu nýlega
blaðamönnum að skoða og
reyna Taunus 12 M, sem er ný-
kominn til landsins.
Bfla þessara hefur verið beð-
ið með mikilli eftirvæntingu
um alian heim, ekki sízt vegna
þess að þetta er smábíilinn,
sem Ford var að hugsa um að
setja á markaðinn í Bandaríkj-
unum en hætti við á síðustu
stundu. Ástæðan var minnk-
andi sala smábíla í landinu.
Taunus 12M er teiknaður í
Bandaríkjunum og hefur verið
prófaður óvenju vandlega af
smábíl að vera. Hann er gef-
inn upp fyrir fimm manns og
er mjög rúmgóður, einkum
vegna þess að hann er með
framhjóladrif og mótorinn að
framan, en það gerir bungu
fyrir drifskaftið aftur eftir bíln-
um óþarfa.
Ýmsar nýjungar eru í bfln-
um, t.d. þarf aðeins að smyrja
hann á 10 þúsund kílómetra
fresti. Kælivatn bílsins er inn-
siglað og tryggja verksmiðjum-
ar, að ekki þurfi að snerta á
því fyrstu tvö árin.
Bíllinn hefur 50 hestafla vél
og hefur fjóra alsynchroniser-
aða gíra áfram. Áætluð benzfn-
neyzla er 7,5 lítrar á 100 km.
Söluverð Liljins á íslandi mun
verða um 140 þúsund krónur.
Taunus 12M sem kominn er
er tveggja dyra en á næsta ári
eru væntanlegir fjögurra dyra,
station- og sendiferðabílar.
BEZTA SÍLDIN DJÚPT
UNDAN J0KLI
MíkiB smúsíld út af Heykjanesi
Síldar hefir nú verið leitað suð-
vestanlands f 10 daga. Það er /ón
Einarsson, skipstjóri, sem stýrir
leitarskipinu Guðmundi Péturs og
er nú staddur í höfn að taka vatn
og vistir. Hann hefir kannað svæð
ið frá Selvogi vestur fyrir Jökul
og fannst mikið af sfld fyrir
sunnan Reykjanes. En það er mest
megnis smásíld sem erfitt er að
veiða. Það sannaðist í gærkvöld
er Gullfaxi kastaði á þessa sild.
Hún er svo smá að hún ánetjaðist,
það er festist í möskvum nótarinn
ar, og rifnaði nótin í kastinu. En
það er óumdeilanlega mikið í sjón
um þarna af þessari smásíld.
Erfffleikar á sölu lýsis
Tveir Vestmannaeyjabátar hafa
undanfarið siglt með afla sinn til
Þýzkalands, en það eru Hringver
og Eyjaberg.
Sá síðarnefndi seldi afla sinn
31 lest, nýlega í Bremerhaven fyr-
ir 39 þúsund mörk, pem teljast
verður mjög góð sala.
Fimm Vestmannaeyjabátar eru
um þessar mundir erlendis í að-
gerð, ýmist verið að skipta um
vélar f þeim eða verið að setja í
þá háþrýstispil, en þau hafa ekki
verið til á Eyjabátum fram til
þessa.
Um þessar mundir róa 20 bátar
með línu frá Vestmannaeyjum.
Afli hefur verið fremur tregur,
eða 3—4 lestir í róðri, mestmegnis
ýsa.
Þrír bátar stunda botnvörpu-
veiðar. Hefur afli glæðzt að undan
förnu og fékk einn bátanna, Björn
riddari, 18 lestir í síðustu veiði-
för.
Undanfarið hefur gengið mjög
erfiðlega með sölu á lýsi, en þó
tókst Vestmannaeyingum nýlega
að semja um sölu á 1100 lestum
á lýsi til útlanda. Að þessi sala
tókst má eingöngu þakka það hve
lýsið héðan þykir bætiefnaríkara
heldur en annað lýsi, sem á boð-
stólunum er.
Yfirleitt hefur verð á lýsi lækk-
að mjög að undanförnu, og erfið-
leikum bundið að koma því út.
í vor greiddi Lifrarsamlagið í
Vestmannaeyjum kr. 2.00 fyrir
hvert lýsiskíló til útgerðamanna,
en síðan
í verði.
hefur það fallið töluvert
Lítið hefir fundizt í Miðnessjó,
eins út af sunnanverðum Faxa-
flóa. Hins vegar hefir fundizt tals
vert mikil síld djúpt út af Snæ-
fellsnesi, 40 — 50 sjómílur úr landi.
Segja má að þetta sé mjög sæmi
leg sfld, þó ekki nema millisfld,
stærstu síldina vantar. Síld þessi
er dreifð; stendur djúpt og fremur
erfitt við hana að eiga. Þ6 kom
hún upp í fyrrinótt og fengu þá
nær 20 bátar, aðallega frá Akra-
nesi, um 11 þúsund mál og tunn-
úr. Það er 10 — 12 tíma sigling af
þessum miðum og voru bátamir
ekki komnir út aftur í nótt. Þar
voru þá aðeins 2 bátar og fengu
100 tunnur hvor, annar reif nót-
ina.
Tvö umferðarslys í fyrrinótt
í fyrrinótt varð urferðarslys á mót
um Sóleyjargötu og Hringbrautar.
Slysið varð um miðnættið. Bif-
reið var ekið vestur Hringbraut
en vegfarandi var um sama leyti
á leið suður yfir götuna. Hann
mun ekki hafa veitt bifreiðinni at-
hygli í tæka tíð, lenti framan á
bílnum og kastaðist upp á gang-
stéttina.
Maðurinn sem slasaðist heitir
Svavar Guðni Svavarsson til
heimilis að Grettisgötu 46. Þegar
sjúkraliðsmenn fluttu hann í slysa-
varðstofuna í nótt kvartaði Svav-
ar undan þrautum í baki og
mjöðm. Hann var. látinn liggja í
slysavarðstofunni í nótt og voru
meiðsli hans ekki að fullu rannsök-
uð síðast þegar blaðið vissi, en
læknar héldu þó að hann myndi
ekki vera alvariega slasaður,
Laust fyrir hádegið í fyrrad. hljóp
sex ára drengur á mjólkurbíl við
Breiðagerði en meiddist ekki að
ráði.
Annar sex ára drengur varð fyr-
ir bíl á Laugaveginum á laugardag-
inn og voru meiðsli hans ekki
heldur talin mikil.
Vill hraða handritamálinu
Menntamálaráðherra Dana,
Helveg Petersen hefur endur-
skipulagt stjórn Árnasafns og
vill ráðherrann að nefndin
hraði aðgerðum sínum í hand-
ritamálinu.
Endurskipulagningin er gerð
vegna þess að ráðherrann teiur
hina nýju menn í Árnasafns-
stjórn lxklegri til að hraða af-
greiðslu málsins, en þá menn
sem fyrir voru. Ekki er samt
búizt við einingu 1 handrita-
málinu.
Hin nýja stjórn er þannig
skipuð að formaður stjórmr
Árnasafns verður próf. dr. phil.
Christian V/estergaard-Nielsen,
en aðrir stjórnarmeðlimir próf.
Jón Helgason, próf. Kristian
Hald, S. Aakjær, ríkisskjala-
vörður, Ole Widding, lektor,
dr. phil. Topsö-Jensen og Kaare
Olsen yfirbókavörður. Jón
Helgason er einn úr fráfarandi
stjórn. Formaður var Joh.
Bröndum-Nielsen.