Vísir - 30.11.1962, Qupperneq 1
VISIR
52. árg. Föstudagur 30. nóvember 1962 — 276 tbl.
Síldarsjómenn við Faxaflóa
Hambrosbanki sér
um milljónalániB
Íslenzka rikisstjórnin hefur nú
samið við hinn kunna Hambros-
banka í London, að hann sjái um
útgáfu á íslenzka skuldabréfalán-
inu að upphæð 2 milljónir sterlings
pund eða um 240 millj. krónur,
sem auglýst verður í næstu viku.
Undirritaði Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra samning þar að
lútandi í gær, en fyrir hönd Hambr
os-banka undirritaði samninginn
Sir Charles Hambro bankastjóri.
Útboðið mun verða auglýst mánu-
daginn 3. desember og áskrift fara
fram 6. desember.
Hambros-bankj. er sá banki í
Bretlandi, sem íslendingar hafa átt
mest og bezt skipti við.
Lánstími er 26 ár og nafnvextir
6i/2% á ári. Útboðsgengi verður
97.5%, sem gefur 6.7% raunvenú
lega vexti til loka lánstímans 31.
desember 1988.
Lánið er samkvæmt útboðsskil-
málum til frjáisrar ráðstöfunar en
verður skv. lögum frá Alþingi 24.
nóvember s.l. einkum varið til að
efla útflutningsiðnað, til hafnar-
gerða, raforkuframkvæmda og ann
arra framkvæmda, sem stuðla að
aukningu þjóðarframleiðslunnar og
gjaldeyrisöflun.
Eftir undirskrift lánssamningsins,
en viðstaddir hana voru Henrik
Sv. Björnsson, ^mbassador og dr.
Frh. á bls. 5.
Vantar nauðsynlega annað
síldarleitarskip / vetur
Myndi stórouka veiðina seg-
ir Barði Barðason skipstjóri
Barði Barðason skip-
stjóri sagði í viðtali við
Vísi í morgun að nauð-
syn bæri til að hans
dómi, og margra ann-
arra, að bæta við öðru
síldarleitarskipi, sem
gæti leitað síldar á nýj-
um slóðum.
Eina leitarskipið er Guðmund-
ur Péturs, sem Ieiðbeinir flotan-
um þar sem mest veiðivon er
hverju sinni. Barði kvaðst vera
sannfærður um að það myndi
stórauka síldveiðina ef bætt
væri við öðru leitarskipi.
Mjög lítil síldveiði var í nótt
og stafar það m. a. af því hve
síldin stendur djúpt, : 30—40
faðma dýpi. Komi hún ofar er
hún stygg og á þönum eftir ljós-
átu, en af henni er mikið á mið-
unum um þessar mundir. Venj-
an er að mikið sé af rauðátu og
síldin er miklu rólegri og viðráð
anlegri í henni.
Skipin voru alldreift I nótt,
bæði í Jökuldjúpi og norður í
Kolluálsdýpi. Aðeins 6 skip hafa
tilkynnt að þau séu á leið inn
til Reýkjavíkur, öll með slatta,
mestan afla hefir Hafrún, 300
tunnur.
Barði Barðason, sem stjórnar
síldarleitinni fyrir norðan á
sumrum, er nú talstöðvarvörður
hjá Grundaradió, sem annast að
allega þjónustu fyrir síldarskip,
sem nú eru gerð út frá Reykja-
vlk eða leggja hér upp afla sinn.
Hann hefir haft flestum betri
aðstöðu til að fylgjast með skip
um og veiði síðan skipin fóru út
eftir verkfallið, og telur, sem
fyrr segir, nauðsynlegt að hafa
tvö síldarleitarskip á vertlðinni.
Vetrarsíldveiðin við Faxaflóa
er nú að komast í fullan gang.
En þó hafa slæmar gæftir haml-
að veiðinni. En þrátt fyrir rok-
ið og slydduna virtust sjómenn-
imir á m. s. Eldborgu frá Hafn-
arfirði í sólskinsskapi við sfld-
arlöndunina í fyrradag. Þeir
sjást hér í fremri röð talið frá
vinstri: Baldur Gunnarsson, Sig-
urður Jóhannsson, Karl Pálsson,
Hilmar Amórsson, Guðbjörn
Jónsson, Finnur Sigurðsson. Aft
aii röð: Þórður Helgason, Jakob
Jakobsson og Garðar Eymunds-
son.
Skólamenn
á togurum
Allmikið er um það núna, eins
og oft áður um jólin, að shóla-
menn sækist eftir að fara túr á
togurum yfir jólin. Er þar helzt
um að ræða menn úr Sjómanna
skólanum, en einnig er nokkuð
um menn úr Háskólanum. Getur
þetta verið þessum mönnum til
mikils fjárhagslegs léttis ef vel
veiðist.
Talsvert er um það að fjöl-
skyldumenn séu í landi yfir jól-
in, þó að ekki séu það nærri
allir. Koma þá menn eins og
þessir í góðar þarfir, enda marg
ir vanir sjómenn. Þá verða einn-
ig alltaf nokkrar breytingar á
mannskap í hverri ferð.
Góðar sölur í Þýzkalandi
Þrír togarar seldu í Þýzkalandi
í gær. Freyr seldi I Bremerhaven
292 tonn af síld fyrir 146 þús.
mörk og 22 tonn af öðrum fiski
fyrir 16 þús. mörk. Alls 162.000
mörk. Sigurður seldi í Cuxhaven
um 150 lestir af slld fyrir 74.638
mörk og 146,1 tonn af öðrum fiski
fyrir 107,330 mörk. Alls 182.068
mörk. Ágúst seldi I Bremerhaven
fiskfarm, 105 tonn á 77.100 mörk.
Aðrar fisksölur í vikunni eru
þessar. Þann 26. nóv. seldi Harð-
bakur frá Akureyri 127,5 tonn af
fiski í Hull fyrir 10.143 pund. Og
sama dag seldi Þorkell Mám I
Cuxhaven, 83,5 tonn af síld fyrir
45.390 mörk, og 117,8 tonn af
öðrum fiski fyrir 98.338 mörk. Alls
143.728 mörk.
Þann 27. nóv. seldi Geir 62,6 tonn af öðrum fiski fyrir 104.600
tonn af síld fyrir 37.200 mörk og mörk. Þá seldi togskipið Margrét
115,4 tonn af öðrum fiski fyrir í Bremerhaven 83,5 tonn af síld
86.400 mörk, alls 123.600 mörk. ! fyrir 52.000 mörk. Þann 28. nóv.
Einnig seldi Marz 88,5 tonn af j seldi Maí í Bremerhaven 120 tonn
sfld fyrir 47.875 mörk og^ 138.1 ' af fiski fyrir 97.000 mörk.
Þorvaldur Guðmundsson for-
maður Verzlunarróðsins
Nýr formaður Verzlunarráðs ís-
Iands var kjörinn í gær. Er það
Þorvaldur Guðniundsson, einn
kunnasti kaupsýslumaður Inndsins.
C. innar Guðjónsson skipamiðlari,
sem verið hefir formaður, gaf ekki
kost á sér við kjörið. Hefir hann
verið formaður Verzlunarráðsins
undanfarin 5 ár.
Aðrir í stjórn voru kjörnir: 1.
varaform. EgiII Guttormsson, 2.
varaform. Sveinn B. Valfells, Krist-
ján G. Gíslason, Sigurður Magnús-
son, Öttar Ellingsen, Magnús J.
Brynjólfsson, Haraldur Sveinsson
og Sigurður Öli Ölason.
Þorvaldúr Guðm'undsson.
V.