Vísir - 30.11.1962, Page 2
2
VIS IR . Föstudagur 30. nóvember 196k
^Tn1
r/ y////,m '///////,
//
NÆST VERÐUR
ÞAÐ GULLIÐ
Hér koma tvær myndir frá
sundmóti Ægis í fyrrakvöld. Sú
minni sýnir Pétur Kristjánsson
(fjær) og Hörð B. Flnnsson eft-
ir að þeir komu í mark í 100
mctra einstaklingsfjórsundinu,
en Hörður bar sigur úr býtum,
eins og bros hans getur gefið
til kynnn, en Pétur, sem um ára-
bil var ósigrandi í öllum sund-
greinum, varð nú að iáta undan
fyrir hinni sérlega góðu æfingik
Harðar.
Stærri myndin sýnir korn-
unga Ármannsstúlku, Matthildi
Guðmundsdóttur, sem að þessu
sinni háði harða baráttu i 50 m.
bringusundi telpna og fékk ann
að sætið eftir sér reyndari sund-
konu. Matthildur er gædd sér-
lega skemmtilegri keppnishörku
og á henni græðir hún fyrst og
fremst. „Næst er það gullið“,
má Iesa úr einörðum svip Matt-
hildar, og hver veit nema svo
farl.
' Með Matthildi iitlu á mynd-
innl er hinn góðkunni þjálfari
lR-inga og raunar alls sund-
fólksins okkar, Jónas Halldórs-
2. fl. B.
Fram sig-
urvegari
Urslit á Reykjavíkurmótinu í
handknattleik í gærkvöldi urðu
þessi:
2. fl. kv. A KR—Þróttur 6:1, —
Ármann—Víkingur 5:3.
3. fl. k. B: Ármann—iR 6:5. —
Fram—KR 8:4.
3. fl. k. A: Vikingur—Þróttur 9:3.
2. fl. A: Fram-ÍR 13:6.
1. fl. k. Fram—Víkingur 9:6.
Fram vann sigur 1 móti 3/ flokks
B með sigri sínum yfir KR. Aðeins
eru nú eftir 3 leikkvöld I mótinu
og verður keppt næst á mánudags-
kvöldið.
JUNKERS-sprengjufiugvélar voru hin válegustu tæki á styrjaldar-
árununi, en hér er Þróttardrengur með cina slíka, þ. c. eftirlík-
ingu frá brezkri lcikfangaiðju, en þaðan er mikið af hinum glæsi-
legu leikföngum Þróttaranna fengið.
INNRÁS í ÁLFHEIMANA
Á morgun eftir hádegisverð
mega ibúar í „Heimunum“ eiga von
á innrás. Niður í Miðbæ eða nán-
Erlendaw*
fréttir
► Bratlslava tryggði sér rétt til
keppni í undanúrslitum Evrópu-
bikarsins í knattspyrnu í fyrra-
kvöld með sigri yfir svissneska
liðinu Lausanne, 1:0. Fyrri Ieik
liðanna lauk með jafntefli 1:1.
► Milli liðanna Vasas frá Búdapest
og Fejenoord frá Rotterdam
þarf þriðja leikinn til að skera
úr uni hvor aðilinn heldur á-
fram. Leiknum í fyrrakvöld
lauk með jafntefli 2:2, en fyrri
leikurinn var cinnig jafntefii,
1:1.
► Sama cr uppi á Teningnum mcð
Napoli og ungverska liðið Uj-
pest Dosza, sem hafa í báðum
leikjum sínum fengið jafntefli,
1:1, og leika þriðja Ieikinn á
hlutlausum velli til að fá úr
þvi skorið, hvorl, heldur áfram
í kcppninni.
► Sigur Ipswich yfir Milan, 2:1,
nægir ekki til að hafa betri .
markatölu, þar eð á heimavelli j
vann Milan með 3:0 og sigrar
Milan því með 4:2 samanlagt. <
Tvöföld umferð
á Islandsmótinu
Öruggt er nú talið að tvöföld um-
ferð verði viðhöfð á Islandsmóti
1. deildar í handknattleik nú þegar
í vetur. Er líklegt að þetta hafi ver-
ið samþykkt í gær af HKRR, sem
er framkvæmdaraðili í þessu rnóti,
en sérstök nefnd skilaði áliti sinu
þessu viðvíkjandi nú nýlega og var
sú nefnd meðmælt tvöfaldri um-
ferð.
Nánar verður skýrt frá þessu á
morgun.
ar tiltekið við veitingahúsið Höll
í Austurstræti verða nokkrir ungir
menn að vígbúast um hádegisleyt-
ið, en upp úr kl. 2 leggja þeir af
stað austur á bóginn og munu þeg-
ar leggja undir sig Álfheima, Sól-
heima, Goðheima, Ljósheima og
Gnoðavog.
Þetta sögðu forstöðumenn hins
nýstáriega Leikfanga- og jólagjafa-
happdrættis Þróttar okkur í gær-
kvöldi.
Vopnin, sem innrásarmenn Þrótt
ar beita, eru happdrættismiðar á
aðeins 10 krónur, sem verða boðn-
ir ibúum Heimahverfisins til sölu.
Vænta Þróttarar þess að vel verði
á móti þeim tekið, og er vart við
öðru að búast, enda rennur ágóði
happdrættisins til væntanlegs Fé-
lagssvæðis Þróttar, sem vei að
merkja cr í nánd við þetta hverfi,
sem kemur til með að verða „Þrótt
arhverfi“ með tímanum.
Sjö heimsmet í sundi
á Samveldisleikjunum
Á Samveldisleikunum í Perth í Ástraliu að undanförnu hafa
mörg stórkostleg afrek verið unnin, einkum í sundgreinununi, þar
sem 7 heimsmet hafa verið sett.
Heimsmetin eru þessi:
110 y. skriðsund kvenna: Dawn Fraser, Ástralíu, 59,5.
4x220 y. fjórsund karla: Ástralía, 8.13,4.
4x110 y. fjórsund kvenna: Ástralía, 4.45,9.
110 y. baksund kvenna: Linda Ludgrove, Englandi, 1.10.9.
220 y. bringusund kvenna Anita Lonsbrough, Engl., 2.51.7.
110 y. baksund kvenna: Pam Sargent, Ástralíu, 1.10,8
(bætti met Ludgrove frá deginum áður).
Öll voru metin sett dagana 23. og 24. nóv. Voru tfmarnlr teknir
með rafmagnsklukku, en f rcglugerð um slíkar klukkui' segir, að
draga eigi frá 1/10 sek. frá tíma, sem þær gefa upp. í samræmi
við þetta voru metin stuttu síðar bætt um 1/10 sek. hvert met
og hver árangur í sundgreinum leikanna.
:
Vöruskiptajöfnuðurinn
hagstæður í október
Vöruskiptajöfnuðurinn varð hag-
stæður um 20,7 milljónir króna í
október. Nam útflutningurinn í
þeim mánuði 392,7 milljónum, en
innflutningurinn 372 l.iillj. króna.
Utflutningur og innflutningur is
lendinga á þersu ári er nú farinn
að nálgast æði mikið 3 milljarða.
Nemur útflutningurinn á tímabil-
inu janúar til október 2905 millj-
ónum króna en innflutningur nem-
ur 2987 milljönum króna. Þannig ;er
vöruskiptajöfnuðurinn á þessu tíma
bili óhagstæður um 81 milljón kr.
í fyrra var vöruskiptajöfnuður-
inn á sama tíma óhagstæður um
217 milljónir króná ef miðað er
við sama gengi og nú er. Sést af
því, að verzlunarafkoman er tals-
vert miklu betri en s.l. ár.