Vísir - 30.11.1962, Qupperneq 5
■vVÍSIR . Föstudagur 30. nóvember 1962.
ártmgurslaus
Fundur Kennedys forseta Banda
ríkjanna og Mikojans varaforsæt-
isráðherra Sovétríkjanna haldinn í
Hvíta húsinu í Washington í gær-
kvöldi, stóð 3 klst. og náðist eng-
inn árangur.
JVIikojan fór frá New York 1 gæi
kvöldj og lét í ljós, að fundurinn
hefði verið gagnlegur og samkomu
lag mundi nást innan langs tíma,
en samkomulagsumleitunum verð-
u;; haldið áfram af fulltrúum
r: ndarikjanna og Sovétríkjanna í
Ná\y; York.
' Ékki er farið dult með, að
höfuðágreiningsatriðið er sem
fyrr varðandi alþjóðaeftirlit
méð því, að ekki séu höfð
- árásarvopn á Kúbu.
Ummæli talsmanns Bandaríkia-
stj'ofhar eftir fundinn leiða skýrt í
Ijós, að stjórnin er ekki jafn bjart
r —
-JFramhald af b)s. 16
að svéfnfriður væri fyrir þær sakir
lítill.
Lögreglan fór á staðinn og hirti
alldrukkinn sjómann, sem setið
hafði að peningaspili með félaga
sínum. Þeim hafði orðið sundur-
orða út af spilamennskunni og senn
an jsíðan aukizt orð af orði þang-
að ,til afskiptí lögreglunnar voru
óumflýjanleg orðin.
Myndun - - -
Það gengur erfiðiega í Færeyjum
að mynda nýja landsstjórn eftir lög
þingskosningarnar, sem fram fóru
þann 8. nóvember. Lögþingið hefur
komið, saman, en engin merki þess
eru sjáanleg enn að samkomulag
nufni nást.
Jafnaðarmenn eru enn stærsti
flokkurinn og hafa þeir verið að
kanna möguleika fyrir því að stjórn
arsamstarfið við Sambandsflokkinn
og Sjálfstýriflokkinn haldi áfram,
en,þessir tveir flokkar hafa tekið
mjög.treglega í það, finnst að þeir
hafi tapað á samstarfinu.
Biað Stjálfstýriflokksins „Tinga-
krossur" lætur í það skína að æski-
legt væri að landsstjórnin yrði á
sem breiðustum grundvelli. Bent
er á þann möguleika að þeir flokk-
ar sem vilja sjálfstjórn Færeyja
taki nú allir upp stjórnarsamstarf
og . utlíoki Sambandsflokkinn, en
méjrihluti þessara flokka er talinn
í tæpasta lagi eða 15 af 29 sætum.
Starlsfúika
ó s k a s t .
SÍLDARSKÁLINN,
■Áðalstræti 9. Sími 10870.
sýn um samkomulagshorfur eins
og Mikojan. Talsmaður Banda-
ríkjastjórnar tók fram, að ekkert
samkomulag hefði náðst um nokk
urt einstakt samningsatriði, og tók
hann ekkert fram um, áð sam-
komulagsumleitanir hafi verið vir.
samlegar, „enda voru þær það
ekki“, segir í sörnu frétt.
menn teknir
Bifreiðaárekstrar í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur eru orðnir
rúmlega 2200 talsins frá síðustu
áramótum.
Fyrir nokkru voru þeir orðnir
um 400 fleiri en á sama tíma í
fyrra, en á öllu sl. ári nam á-
rekstrafjöldinn 2097 hér í Rvík og
nágrenni. Hér ber þess að geta að
enn er einn hættulegasti árekstra
mánuður framundan, þar sem des-
ember er, því að bæði er það, að
umferð um götur borgarinnar
eykst þá stórlega og auk þess er
þetta dimmasti mánuður ársins.
Þá hefur umferðardeild rann-
sóknarlögreglunnar tjáð Vísi að
enda þótt mikil og alvarleg aukn-
ing hafi orðið. í bifreiðaárekstrum
frá því í fyrra, sé hitt þó enn al-
varlegra hve slysum hafi fjölgað
stórlega á sama tíma. Hefur slys-
unum fjölgað hlutfallslega miklu
meira heldur en árekstrunum, en
lögreglunni hafði ekki unnizt tími
til að telja þau nákvæmlega sam-
an í ár. Hitt vissi hún að slysa-
fjöldinn er miklu meiri á þessu
ári en hann hefur nokkru sinni
orðið áður.
Götulögreglan í Reykjavík hefur
tjáð Vísi að hún hafi frá síðustu
áramótum og fram til þessa tekið
um 370 bifreiðastjóra undir áhrif
um áfengis við akstur. Þetta er
líka miklu hærri tala, en áður
hafa komizt f bækur lögreglunn-
ar á einu ári. Á öllu árinu í fyrra
tók lögreglan 262 ökumenn fyrir
þessar sakir, en þá þótti þessi
tala óvenju há.
Áð þessi aukning hefur orðið
svona mikil f handtöku ölvaðra
ökumanna telur lögreglan samt
ekki stafa fyrst og fremst af því
að þeir drykkju meir en áður held
ur miklu fremur af því áð lögregl
an hefur til muna hert á eftirliti
með þeim.
EMur —
V
Framh. at bls. 16.
tvívegis út, en frá því skýrði Vísir
í gær. I gærkvöldi var það svo aft-
ur kvatt tvívegis á vettvang og
samtímis á báða staðina, eða kl.
22.00. Hafði í öðru tilfellinu kvikn-
að út frá rafmagnsofni í þakher-
bergi að Litlu-Hlíð við ( Sogaveg.
Eldurinn komst í legubekk, en
slökkviliðið kom í veg fyrir frekari
brunaskemmdir. Lítið barn hafði
verið inni í herberginu, þegar elds-
ins varö vart, en því tókgt að
bjarga í tæka tíð.
Rétt um það leyti, sem slökkvi-
iiðsbílarnir voru farnir að Litlu-
Hlíð barst kvaðning frá Atvinnu-
deild háskólans vegna elds í kyndi-
klefa hússins. Hafði kviknað í út
frá olíukyndingu. Slökkviliðsmenn
fóru þangað með handslökkvitæki
og tókst áð kæfa eldinn áðúr en
tjón hlutust af.
ROTTUR
Tónleikar Kammermúsíkklúbbs-
ins í gærkvöld voru illa sóttir. Er
það undarlegt, þar eð margt var
forvitnilegt á efnisskránni.
Ch. Lefevre: Suite, op. 57
Malcolm Arnold: Three Shanties
Fjölnir Stefánsson: Tríó fyrir
flautu, klarinett, fagott (1951)
P. Hindemith: Kvintett fyrir
blásturshljóðfæri.
Tríó Fjölnis Stefánssonar hefði
eitt átt að draga töluverða athygli
að tónleikunum. Þarna var „æsku-
verk“ eins af -okkar ágætu ung-
skáldum — frumflutt að ég hygg
— og f ,,æskuverkum“ eða „skóla-
stykkjum" felast ætíð þeir frjóang-
ar, sem spá góðu eða illu um hið
fullmótaða skáld síðar. Það er því
mjög vanhugsað, ef menn sjá sér
ekki fært — eða nenna ekki —
að fylgjast með, þegar nýr tóna-
heimur er að myndast — ný af-
staða til aldinnar listar. Þetta grein
ir víst á milli hinna sönnu tónlist-
arunnenda og þeirra, sem Iæra sinn
smjkk af bókum. Tríóið var
skemmtilegt — varfærnislega sam-
ið og Iaust við allar tiktúrur.
Ekki hefði athýgli manna heldur
átt að minnka við það, að von var
á að heyra góðan blásarakvintett.
Þjóðsaga ein segir frá píparanum,
sem seiddi jafnvel rottur úr holum
sínum, þá er hann lék. Þessir „píp-
arar“ seiddu fram hrifningu með
samvizkusamlega unnum Ieik sín-
um. Þrjú verkin voru samin fyrir
blásarakvintett — og þeirra mark-
verðast eftir Hindemith. Averil
Williams lék á flautu, William
Webster á óbó, Gunnar Egilsson á
klarinett, Wolfgang Munch á horn
og Sigurður Markússon á fagott.
Varla var hægt að heyra að þessir
ágætu hljóðfæraleikarar hefðu mik-
ið annað fyrir stafni en að leika
kammermúsík. Þó kom það dálítið
fram í skorti á snerpu hér og hvar
og kjarkmeiru hraðavali — t. d. í
niðurlagi tónleikanna. Samt voru
engin „dauð“ augnablik — og tón-
leikarnir I heild ánægjulegir.
Þorkell Sigurbjömsson.
Þrjú kirkjukvöM í Lauglioltssókn
Þrátt fyrir talsverðan snjó, sem
gert hefur sums staðar, eru allir
vegir ennþá færir, að því er bezt
verður vitað.
Meðal annars hafa fólkbifreiðir
farið óhindrað milli Reykjavíkur
og Akureyrar og fært mun bifreið-
um áfram frá Akureyri og norður
; um Þingeyjarsýslur, allt til Rauf-
] arhafnar. .
Hins vegar er Siglufjarðarskarð
Iokað að nýju. Það opnaðist
! skamma stund í hlákunni í vikunni
] sem leið, en lokaðist svo strax aft-
ur. Allmikil umferð mun þó hafa
verið um skarðið þann stutta tíma,
| sem það var fært, ekki sízt vegna
| flutninga á beitusíld sem útgerð-
armenn syðra hafa keypt undan-
farið af Norðlendingum, einkum af
Siglfirðingum. Hörgull var orðinn
á beitusíld í verstöðvunum sunn-
anlands vegna þess hve drógst að
bátarnir færu til veiða og þess
vegna urðu margir útgerðarmenn
að kaupa beitusíld á Norðurlandi.
Um næstu helgi eru liðin 10
ár síðan kirkjulegt starf hófst í
Langholtssöfnuði I Reykjavík.
Hann mun vera einn fjölmennasti
söfnuðuf landsins' og hefur komið
sér upp myndarlegu safnaðarheim
ili, sem notað er sem kirkja og
fyrir fjölbreytta félagsstarfsemi.
Þar starfar fjölmennt kvenfélag,
bræðrafélag, æskulýðsfélag, með
skiptingu í starfsdeildir, og barna
stúka fyrir 10 ára börn, sem stofn
uð var í haust. Auk þessa eru að
sjálfsögðu barnasamkomur og
messur á hverjum helgidegi.
Til að minnast afmælisins hyggst
safnaðarstjórnin, ásamt bræðra-
og kvenfélagi hafa þrjú kirkju-
kvöld með almennum samkomum
um næstu helgi. Verður það fyrsta
laugardagskvöldið 1. des. og hin
tvö næstu kvöld þar á eftir. Þessi
kvöld munu skiptast á stuttar ræð
ur, söngur, hljóðfærasláttur og upp
lestur. Ræðumenn verða sr. .Tó-
hann Hannesson, dr. Þórir Kr.
Þórðarson, dr. Róbert A. Ottósson,
söngmálastjóri o .fl. Þeir munu
ræða um ýmiss konar safnaðar-
starf, bæði fýrir börn, æskulýð
og eldra fólk, líknarstörf safnaða
og hjálp fyrir ógæfusama og ein,-
Gluggaskreyting
Mikið úrval til gluggaskreytinga selzt í dag
og á morgun.
BLÓMASKÁLINN v/Nýbýlaveg.
Opið frá kl. 10—10 alla daga.
8 mm — 9,5 mm — 16 mm.
KVIKMYNDIR
fyrir sýningar í heimahúsum.
Höfum fyrirliggjandi kvikmyndir bæði teiknaðar og
teknar af frábærum skemmtikröftum, svo sem:
ANDRÉS ÖND MIKKI MÚS PLUTO
GOOFY CHAPLIN OLIYER og HARDY
BUSTER KEATON o. fl. o. fl.
50 fet (4 mín.). 200 fet (8 mín.). 400 fet (30 mín).
Mikiö úrval. Góð jólagjof. Góð jölaskemmtun.
Lækjargötu 6B, Reykjavík.
mana. Dr. Þórir flytur erindi um
starf alkirkjuráðsins og söngmála-
stjóri um kirkjusönginn. Guðmund
ur Jónsson óperusöngvari o. fl.
listamenn munu annast músikina
ásamt kirkjukórnum.
Kvenfélag safnaðarins mun sjá
um veitingar að lokinni dagskrá á
kvöldin, svo að safnaðarfólkið fái
tækifæri til að kynnast I vistlegum
sölum safnaðarheimilisins.
Allir eru velkomnir án endur-
gjalds, en að sjálfsögðu verður tek
ið á móti afmælisgjöfum til starfs-
ins og kirkjunnar. Nú þarf að
hefja sem fyrst síðasta áfangann,
byggingu sjálfs kirkjuskipsiris.
Milljónalánið -
Fran.halri al bls. 1.
Jóhannes Nordal, bankastjóri, var
haldinn blaðamannafundur. Var
þar frá þvi skýrt, að þetta væri
fyrsta erlenda skuldabréfalánið,
sem boðið hefur verið út í London
síðan 1951, þegar frá eru talin út-
boð Samveldislandanna. Hins veg-
ar er búizt við, að fleiri lánsútboð
verði leyfð á næstunni.
.• ; ( ;