Vísir - 12.12.1962, Qupperneq 7
7
BBagiroaBaiæragaaiigaid^gEBB^B^
""""""ITIIr1 n rHTH VO Wjaaurijrti i nnwiiim r'inMawMiwiiiwm {
Vaxandi áhugi uagra
manna á utanríkismálum
Stjórn Heimdallar kjörin á aðalfundi í okt. s.l. Fremri röð frá vinstri: Ragnar Kjartansson framkv.stj.
féiagsins), Styrmir Gunnarsson (varaform.), Bjarni Beinteinsson (form.), Magnús L. Sveinsson (ritari), Páll
Stefðnsson (gjaldkeri). Aftari ráð frá vinstri: Valur Valsson, Þór Whitéhead, Ásgeir Thoroddsen, Már
Gunnarsson, Sigurður Hafstein, Sverrir H. Gunnlaugsson og Steinar Berg Björnsson.
1 tilefni af útkomu þessarar
fyrstu æskuiýðssíðu Heimdallar
i Vfsi fannst ritstjóruni síðunnai
tilhlýðilegt að eiga viðtal við ný-
kjörinn formann Heimdallar,
Bjarna Beinteinsson, lögfræðing.
Bjarni hefur allt frá mennta-
skólaárum sínum látið sig félags
mál miklu skipta. Hann var for-
maður Framtíðarinnar í Mennta-
skólanum í Reykjavík og árin
1956 — 57 form. stúdentaráðs og
lét hann þar mjög til sín taka
eins og vikið verður að hér að
neðan.
Bjarni Beinteinsson hefur Iengi
staðið í fremstu víglínu í sam-
tökum ungra Sjálfstæðismanna
og gegnt þar mörgum trúnaðar-
stöðum t.d. var hann form. Stefn
is FUS í Hafnarfirði á sínum
tíma. Um langt skeið var hann
ritstjóri æskulýðssíðu SUS í
Morgunblaðinu. Sæti í stjórn
Heimdallar hefur hann átt síðan
1960 og á aðalfundi Heimdallar í
okt. sl. var hann kjörinn form.
félagsins. Bjarni er nú framkv,-
stjóri Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfél-
aganna í Reykjavík og á skrif-
Stofunni í Valhöll tökum við
hann tali.
Form<aður Heimdallar
Bjarni Beinteinsson.
Þú varjt form. stúdentaráðs
þegar stúdentar í Ungverjalandi
hófu uppreisnina 1956 og gætir
ef til vill sagt okkur frá við-
brögðum ykkar stúdentanna hér
heima.
— Eins og mönnum er enn í
fersku minni greip um sig mikil
reiði hér meðal almennings og
kannski ekki sízt meðal stúd-
enta. Á vegum stúdenta voru
haldnir fjölmennir fundir þar
sem rætt var uni þjóðarmorðið
svonefnda og því mótmælt harð-
lega. Stúdentaráð Háskóla ís-
lands hafði gengið í Alþjóðasam
band stúdenta (I.U.S.), sem hef-
ur aðsetur í Prag, þá er vinstri
menn réðu yfir ráðinu á árunum
frá 1953—1956 er lýðræðissinnað-
ir stúdentar náðu þar aftur meiri-
hluta. Lýðræðissinnaðir stúdent-
ar höfðu alla tíð ve'rið á móti
aðild stúdentaráðs að I.U.S. enda
eru samtökin algert verkfæri
kommúnista eins og greinilega
kom í Ijós í Ungverjalandsmál-
inu.
— Til að prófa heillyndi þeirra
I.U.S. manna krafðist stúdenta-
ráð Háskóld íslands þess að sam
tökin sendu frá sér yfirlýsingu
þar sem íhlutun Rússa í Ung-
Rabbnð um komma>
fund í Prag, Heim-
dali, Varðberg o.fl.
»
verjalandsbyltingunni og fjölda-
handtökum stúdenta væri harð-
lega mótmælt. En það var ekki
að sökum að spyrja. Mótmæli
vegna íhlutunar Rússa birtust
aldrei frá I.U.S. en harðorð mót-
mæli vegna Súez-deilunnar
skorti hvergi.
Stúdentaráð gaf þá í skyn að
Frm lo n ols 10
f---------------------------- ---~N
182 NÝIR
Á tveimur niánuðum eða frá síðasta aðalfundi
Heimdallar hafa 182 nýir meðlimir bætzt í hópinn.
Skrifstofan í Valhöll við Suðurgötu 39 er opin all-
an daginn. Lítið inn og kynnizt starfinu.
INNTÖKUBEIÐNI
Heimili .................... Sími .........
Vinnustaður (Skóli) .......................
Fædd(ur) .................... ár ..........
v___________________________________________y
myndir m starfi heimdallar
Heimdaharsíðan mun birtast á miðvikudögum.
Vegna þrengsla kemur næsta síða ekki út fyrr en
eftir jól, en vikulega úr því. Hér verða ýmsir þættir
um æskuna og áhugamál hennar.
Mörgum er það áhyggjuefni, hversu áhugalítið
sumt æskufólk virðist vera um stjórnmál. Stjórn-
skipulag okkar síendur ekki traustum fótum, nema
fólkið í landinu kynni sér þjóðmál og fræðist um
þau. Ef æskan, erfingi þessa lands, sefur á verðin-:
um, gæti svo farið, að við yrðum öfgastefnum að
bráð.
Þessari síðu er ætlað það hlutverk að kynna starf
semi og baráttumál Heimdallar, félags hinnar frjáls-
lyndu æsku.
l