Vísir - 22.12.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 22.12.1962, Blaðsíða 1
VISIR Þvi miður er það alltaf svo, að nokkuð af bömum verður að vera að heiman frá sér um jólin. Þannig'er um^þessa.ungu telpu, sem liggur á bamadeild Landakotsspítalans. Hún heitir Aðalbjörg og er ekki nema tveggja ára gömul. Þegar við vildum taka af henni mynd, varð hún fyrst hrædd, en jafnaði sig von bráðar, enda sjáið þið hvað hún er stór. Myadin er tekin á ganginum á barnadeildinni, þar sem komið hefur verið fyrir stóru jólatré. Aðalbjörg horfir hugfangin á eftirmynd af jötunni, þar sem freisarinn fæddist. (Ljósm. Vísis: I. M.). 52. árg. — Laugardagur 22. desember 1962. —; 289. tbl. Hringurinn gefur enn eina mill/on Kvenfélagið Hringurinn hefur ný lega afhent eina milljón að gjöf, tii nýbyggir—" Landsspítalans, vegna bamadeildarinnar. Hefur fé- lagið áður gefið fimm milljónir króna til sömu framkvæmda. Blaðið hafði í gærkvöldi tal af Kristbirni Tryggvasyni yfirlækni barnadeildar Landsspítalans, og skýrði hann svo frá að Barnaspítali Hringsins yrði hluti af hinni nýju byggingu Landsspítalans. 1 stað þeirra 30 rúma, sem barnadeildin hefur yfir að ráða núna, verða rúmin 60. Auk þess verða öll vinnu skilyrði betri, þar sem húsrúmið fjórfaldast, frá þv£ sem nú er. Ensk jólaguðs- þjónusta Ö EINSOGAÐ undan- förnu verður jólaguðsþjónusta fyrir enskumælandi fólk haldin í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 23. des. kl. 4 e. h. Séra Jakob Jónsson •prédikar. Allir velkomnir. Kristbjörn skýrði einnig frá því, að fyrir utan peningagjafirnar hefðu Hringskonur látið í té mest af búnaði barnadeildarinnar og myndu þær einnig sjá um búnað £ hinni nýju deild. Þegar allur búnaður, sem þær hafa gefið, er með talinn, eru gjafir þeirra alls, komnar langt fram úr þeim sex milLjónum, sem þær hafa gefið í peningum. Þrettón sækjn um starf Þrettán manns sækja um starf skrifstofustjóra hjá Fiskimálasjóði. Formaður sjóðsstjórnarinnar, Sverrir Júlíusson, hefir skýrt Visi frá þessu, svo og, að væntanlega muni verða ráðið f starfið fyrir áramótin. Frú Arnhildur Guð- mundsdðttir - hefir gegnt starfi skrifstofustjóra undanfarin fjögur ár, en lætur nú af því. Daglegir fundir Fundir eru haldnir daglega i yfirnefndinni um fiskverðið á komandi vertið, en nefndin var kjörin á miðvikudag. Fyrsti fundurinn var haldinn sama dag og nefndin var kjörin, aft- ur var haldinn fundur daginn eftir, fimmtud., og enn var fund ur síðdegis í gær. Ekki veit Vísir, hversu mikið ber á milii, en það mun vera nokkuð, og vonast menn þó tii, að hægt verði að ná samkomulagi fyrir áramótin, svo að vertíð þurfi ekki að tefjast af þeim sökum, að verð hafi ekki verið endan- lega ákveðið. Yfirnefndin, sem kjörin var af verðlagsráði, er skipuð þessum mönnum: Gunn- laugur G. Björnsson er for- maður nefndarinnar og odda- maður, Helgi Þórarinsson, Reykjavík, Sigurður Pétursson Reykjavík og Tryggvi Helgason, Akureyri. Bandaríkin bæta við lán til Keflav. vegar í gær var gerður samn- ingur í Reykjavík þess efnis, að Bandaríkjastjórn lánaði íslandi 11,8 milljón- ir króna til framkvæmda við Keflavíkurveginn nýja. Fé þetta er veitt úr mót- virðissjóði með mjög hag- stæðum kjörum. Áður hef- ur Bandaríkjastjórn lánað 10 milljónir til Keflavíkur- Frh. á bls. 5 - Tryggingar frá Almenn um tryggingum Ægir Ferdinandsson, Rannveig Laxdal og Ingibjörg Þorgrimsdóttir taka við vinningunum hjá Kon- ráði Guðmundssyni. , 1 gær var dregið í getraun Vísis. Vinningar voru fimm að tölu, hver fyrir sig 2000 króna iðgjald hjá Almennum trygging- um h/f, sem hægt er að nota eftir eigin vali vinnenda. Svo dæmi sé tekið nægir þetta til að tryggja í tvö ár iítinn bfl, sem ekkert hefur kom ið fyrir. Þetta nægir til að greiða fyrir 100 þúsund króna heimilistryggingu, sem greiðir til dæmis skaða sem börn kunna að valda á annars eign- um, slys á heimiiinu, bæði heim iii&manna og annarra og svo framvegis. Þá getur þetta geng- ið upp í venjulega brunatrygg- ingu og hverja aðra sem vera vill. Þrír þeirra, sem vinning hlutu ® eru úr Reykjavík, og afhenti Konráð Guöniundsson þeim vinningana á afgreiðslu Vísis í gær. Voru það Ægir Ferdin- andsson, verzlunarmaður, Ás- vallagötu 6, Rannveig Laxdal, Hólmgarði 3 og frú Ingibjörg Þorgrímsdóttir, Sogavegi 50. Aðrir, sem hlutu verðlaun, voru Kári Þórðarson, Kirkju- vegi 5 í Keflavík, og Þorsteinn Williamsson, Hamarsstig 27 á Akureyri. Þeir gátu að sjálf- sögðu ekki tekið við vinning- unum siálfir og fá þá senda.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.