Vísir - 22.12.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 22.12.1962, Blaðsíða 5
VÍSIR . Laugardagur 22. desember 1962. Langt komið— Framh. af bls. 12 sem dæla er ekki fyrir hendi til að tengja við hana. Leiðsla' orðin alltof þröng. Vatn það, sem kemur úr holum þeim, sem hér er um að ræða, er allt leitt til millidælustöðvar fyrir norðan Laugaveginn gegnt benzín- stöð Skeljungs. Var nauðsynlegt að setja hana upp, til að aðstoða þær dælur, sem eru við hverja bor- holu, við að koma vatninu frá sér. Þær eru ekki nægilega aflmiklar ti! að ráða við þann mótþrýsting, sen um er að ræða. Frá millidælu- stöðinni fer vatnið svo um leiðslu þá, sem lögð var fyrir nokkru suð- ur um Kringlumýri og til geym- anna í Öskjuhlíð. Nú er bara svo komið, að þessi leiðsla er orðin alltof þröng, því að svo mikið vatnsmagn þarf að fara um hana. Við þurfum þess vegna að setja víðari leiðslur með fram Kringlumýrarbrautinni, og það mun verða gert á næsta vori-. « Unnið í ýmsum hverfum. Annars er nú unnið við að leggja hitaveitu í ýmis hverfi borg- arinnar, og er framkvæmdum af því tagi misjafnlega Iangt á veg komið. Til dæmis er búið að leggja í allar götur og að öllum húsum í Lækjahverfinu. Þar er lokið við að tengja tvo þriðju hluta h'úsanna og unnið kappsamlega við að tengja þau, sem eftir eru. Þá er langt komið að leggja í Holtahverfið norðan Háteigsvegar. Þar tefur helzt, að það tekur dálít- inn tíma að koma saman leiðslun- um í Nóatúni, en innan skamms mun vatni verða hleypt á Stórholt og Stangarholt. Þá er langt komið að leggja heimaæðar í norðurhluta Laugar- áss og þar mun verða tengt eftir nýárið. Einnig er verið að taka nokkurn hluta Teigahverfis, sem áður fékk vatn úr Þvottalaugum, aðalkerfi borgarinnar. Verður meira fjör með vorinu. Næstu verkefni eru lagning hita veitunnar í efri hluta Hlíðahverfis vestan Kringlumýrarbrautar, en síð an verður lagt í Mýrahverfið eða göturnar í Kringlumýri, austan við Kringlumýrarbrautina og norðan Miklubrautar. . Þessi verk munu verða unnin af Véltækni h.f. og Verk h.f., sem hafa tekið að sér ýmis verkefni fyrir hitaveituna að undanförnu. Véltækni er til dæmis að Ijúka við að leggja hitaveltuna í Lækja- hverfið, og Verk vinnur við að leggja veituna í Laugarásinn norð- anverðan. Það hefur verið til trafala við þær framkvæmdir, sem unnið hef- ur verið við að undanförnu, að skólapiltar hættu störfum í haust, og við fólksekluna bættist svo erf- itt tíðarfar. Ella mundi þeim fram kvæmdum lengra komið, sem nú er unnið við. PÓSTKASSAR í HÚSUi Þessa dagana eru mestu annir ársins hjá póstþjónustunni. Þá er þýðingarmeira en nokkru sinni fyrr, að íbúar húsanna komi til móts við póstinn og geri honum aúðveldara að vinna verk sitt. Er þar hvað mikil- vægast að settir séu upp póst- kassar, því að ella er mjög erfitt fyrir póstberana að finna rétta viðtakendur. Veitir póststofan leiðbeiningar í því efni og hefur póstkassa til sölu. Hér birtist mynd úr einu háhýsi Reykja- víkur, sem hefur gengið myndar Iega frá póstkössum í anddyr- inu. Er hver kassi merktur með nöfnum eigenda. Þetta er tll fyrirmyndar og ætti svona að koma upp víðar. Leikrit eftir Matt- hías Johannessen í gær kom út hjá forlagi Helgafells Ieikrit eftir Matthías Jóhannessen ritstjóra. Nefnist Ieikritið Sólmyrkvi. Gerist það á ritstjómarskrifstofu dagblaðs og er í tveimur þáttum. Leikrit- ið er alllangt, alls 168 blaðsíður og eru frunidrættir þess skrif- aðir í Kaupmannahöfn 1956 og Ieikritið síðan fullgert nú í vet- ur. Höfundurinn sagði í viðtali við blaðið í gær að hér væri um að ræða tilraun til þess að velta fyrir sér fólki á lausungartímum eins og þeim sem við nú lifum á. Ekki hefir komið til tals að leikritið verði sýnt á sviði. Matthías kvaðst hafa haft mjög gaman af að rita leikritið og hygðist hann semja annað. Matthías Johannessen Bridgeþáttur VÍSIS Ritstj. Stefán Guðjohnsen Hér er létt bridgeþraut til þess að glíma við yfir hátíðarnar. Þið ættuð auðveldlega að leysa hana á , tíu mínútum og ef illa gengur get- ið þið snúið blaðinu við og lesið lausnina hér að neðan. A Á-9-8-4 V 3-2 * A-G-8 4. 8-7-4-3 * K-7-6-5 V 9-8-7 ♦ D 4. A-K-G- 10-9 N 4 G-l 0-3-2 V K-G-10 0 9-7-6- 5-4-3 4» ekkert ♦ D V A-D-6-5-4 $ K-10-2 * D-6-5-2 Suður á að spila þrjú hjörtu og vinna þau. Vestur spilar út tígul- drottningu. Hvernig vinnur suður spilið gegn beztu vörn? L a u s n: Sagnhafi drepur á ásinn í borði og lætur KÓNGINN í heima. Suð- ur svínar síðan trompi og spilar spaðadrottningu. Vestur lætur kónginn og norður drepur með ásnum. Þá kemur spaðanfa, tían hjá austri og trompað af suðri. Nú er trompás og aftur trompi spilað, og norður gefur af sér lauf. Austur spilar tígulníu, suður lætur tíuna og norður á slaginn á gosann. Norður spilar nú spaðaáttu, austur verður að leggja gosann á og suð- ur trompar. Norður fer nú inn á tíguláttu, spilar spaðafjarka og vestur lendir inni á spaðafimm. Hann verður nú að spila frá tveim ur hæstu í laufi og gosanum og suður fær því níunda slaginn á laufadrottningu. Athugasemdir: Suður yfirfærir spaðafyrirstöðuna til austurs og síðan aftur til vesturs, til þess að geta spilað honum inn í lokin. Lykilspilamennskan skeður í fyrsta slag, þegar sagnhafi lætur tígul- kónginn í ásinn í borði. Allar tilraunir til þess að taka trompin og tíglana, og spila vestri inn á lauf, stranda á því, að vestur getur alltaf geymt nógu marga spaða til þess að spila sig út á. Keflavíkur- vegurinn — Framh. af 1. síðu. vegar með sömu kjörum. Þær 11,8 milljónir króna, sem Bandaríkjamenn lána núna munu ganga upp í kostnað við gerð þess kafla Keflavíkurvegar serh steypt- ur var í haust og þegár hefur verið tekinn f notkun fram hjá Hafnarfirði. Þegar undirbúningur undir gerð Kelfavíkurflugvallar hófst árið 1960 var lauslega áætlað að gerð hins nýja vegar myndi kosta um 120 milljón krónur. Nú hafa orðið mikl- ar hækkanir á vinnu og vörum síð- an svo að gera má ráð fyrir að kostnaðurinn verði allmiklu meiri og mun á næstunni verða gerð ýtar leg fjárhagsáætlun um gerð vegar- ins. Nú þegar hafa Bandaríkjamenn lánað til hans 21,8 milljón og ekki ólíklegt að þeir muni síðar fá anlegir til að Iána meira, enda hafa þeir hag af þessari vegagerð í sam- bandi við varnarstöðvar á Keflavík urflugvolli. Samningur um lánið var gerður í gær milli Framfarastofnunar Bándaríkjanna og Framkvæmda- banka íslands, en samninginn und- irrituðu James K. Penfield sendi- herra Bandaríkjanna og Benjamín Eiríksson bankastjóri. Lánið er Kunnur sportmaS- ur kynuir ísland Sl.: sumar heimsótti einn kunn- asti sportmaður og fuglafræðingur Breta ísland. Var það Jeffery Harri son. Hann er læknir að menntun en auk þess einn kunnasti fuglafræð- ingur Bretlands og all kunnur í enska heiminum sem rithöfundur. Meðal annars var hann einn af höfundum hins fræga rits um fugla og fuglaveiðar The New Wildfowlversem The Wildfbwlvers’ Association of Great Britain & íreland gaf út. 1 þvf riti er m. a. að finna greinar um fugla og fugla- líf eftir ýmsa kunnustu menn Breta á þessu sviði og formála ritar hinn heimsþekkti vfsindamaður Peter Scott, sem íslendingar kannast vel við frá leiðangri hans til gæsa- veranna við Hofsjökul. Jeffery Harrison kom hingað með konu sinni og ferðaðist tals- vert um hérlendis og fór sumt á hestbaki. Aðalerindi hans ýar að kynna sér fuglalíf á Islandi. I haust birti hann svo þrjár greinar um ferðir sínar hér f vfðlesnasta sportriti Englands The Shooting Times. Fjallar hin fyrsta um fuglalíf á undirlandi Suðurlands. Önnur er frá nágrenni Reykjavíkur, þriðja er rabb um fuglalíf við sjávarströndina og frá sögn af Hákoni á Hafurbjargar- stöðum. Kona Harrisons hefur myndskreytt greinarnar og hafa þau hjón unnið þarna að skemmti legustu landkynningu. EJS. Fuglamynd frá íslandi sem Jaffrey Harrison tók. veitt af fé því er stjórn Banda- ríkjanna eignast hér vegna kaupa Islands á landbúnaðarvörum í Bandaríkjunum. Lánið er til 20 ára, fyrsta endurgreiðsla að 3 árum liðn um og má endurgreiða hvort heldur er í íslenzkum krónum eða dollur- um. Vextir eru þrír fjórðu 3/4 prósent á ári. Agnbnssador í Luxembourg Á þriðjudag afhenti Pétur Thor- steinsson ambassador skilríki sín sem fyrsti ambassador íslands í Luxembourg. Ambassadorinn afhenti erfðaher- toganum skilríki sín, en hertogaynj an af Luxembourg er hætt að taka á móti gestum. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.