Vísir - 06.10.1962, Blaðsíða 8
8
V í SIR . Laugardagur 6. október 1962.
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði.
I lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Austurvegur
Fyrir nokkru var fullgerður að kalla nýr vegur,
Austurvegur, sem tengir Reykjavík og umhverfi henn
ar við Suðurlandsundirlendi, sem sér höfuðborginni og
öðrum byggðum vestan fjalls fyrir mestum hluta
þeirra landbúnaðarafurða, sem þar er þörf fyrir.
Þessi nýi vegur hefur verið all-lengi á döfinni,
mun lengur en flestir munu hafa óskað. Er þar ekki
við neinn að sakast, því að í svo mörg horn er jafnan
að líta, að því er vegagerð snertir, að oft verða vegir
útundan sem mjög er aðkallandi að vinna við. Undan
farin ár hefir verið um tvo vegi að ræða milli suð-
vesturkjálkans og Suðurlandsundirlendis, Hellisheið-
arveg og Krýsuvíkurleið, báða með verulegum ókost-
um. Hellisheiðarvegur lokast fljótlega í snjóavetrum,
en Krýsuvíkurleið er mjög Iöng og getur einnig lokazt,
þegar verst gegnir. Menn telja hins vegar tryggt, að
nýi vegurinn verði snjóléttur og opinn allan ársins
hring, hvernig sem viðrar.
Vonandi rætast þessar spár manna, því að hér er
um mikið hagsmunamál allra að ræða, sem búa aust-
an og vestan heiðar, jafnt bænda sem neytenda.
Læknaskorturinn
Eins og getið var um í Vísi fyrr í vikunni, er óskip
að í 12 eða 13 læknishéruð, þótt læknislaust sé að-
eins í tveim eða þrem þeirra. Hefir svo verið um nokk
urt árabil, að erfitt hefir verið að fá lækna í héruð úti
á Iandi.
Landlæknir samdi á sínum tíma tillögur til lausnar á
þessu mikla vandamáli dreifbýlisins, en síðasta Al-
þingi féllst ekki á þær. Virðist þá komið til kasta þess,
að það bendi á leiðina sem fara beri. Enginn ágrein-
ingur ætti að vera um, að nauðsynlegt er að finna
skjóta lausn á þessu mikla hagsmunamáli dreifbýlis-
ins.
Berklavarnardagur
Samband íslenzkra berklasjúklinga hefir um nær
aldarfjórðungs skeið starfað undir vígorðinu: Hjálp-
um sjúkum til sjálfsbjargar! Samtökin hafa lyft Grett-
istaki á þessum tíma — með fulltingi almennings — og
nú hjálpa þau einnig þeim, sem öryrkjar eru af öðrum
orsökum en berklaveikinni, svo að ekki minnka verk-
efnin.
Ahnenningur á að sýna skilning sinn á þessari
góðu starfsemi með því að styrkja samtökin á morg-
un, á berklavarnardaginn.
Frú Stefanía sem
Heimilinu 1905.
Magda
Mæðgumar Anna og frú Stefanía saman á leiksviðinu. Anna leikur
Maríu og frú Stefanía Mögdu í Heimilinu eftir Sudermann. Myndin
var tekin £ Winnipeg' £ Kanadaferðinni 1921.
Endurminningar Önnu Borg
Við systkinin sex vorum
óaðskiljanleg. Fólkið í
nágrenninu hafði gaman
af okkur, því að ef höf-
uðið á einu okkar kom
Anna og Milla dansa ballett i f jr götuhornið var það
Álfhol, þegar hann var syndur ° 1
£ fyrsta sinn 1912. næstum öruggt að hin
upp
höfuðin fimm fylgdu á
eftir. Seinna hef ég oft
hugleitt það, hversu ó-
vanaleg slík samheldni er
í svo stórum systkina-
hóp. Þegar við komum
öll saman í Reykjavík
Fjölskyldumynd tekin á 25 ára Ieikaraafmæli frú Stefaniu. Talið frá vinstri: Milla, Anna, Áslaug,
frú Stefanía, Geir, Þóra og Borgþór Jósefsson. Elztí sonurinn Óskar var ekki með á myndinni.
Hann var við nám úti í Kaupmannahöfn, en þegar hann kom heim sagði hann Önnu litlu frá dá-
semdum heimsborgarinnar.
I