Vísir


Vísir - 07.01.1963, Qupperneq 1

Vísir - 07.01.1963, Qupperneq 1
iSBSiS, VÍSIR SkipaskoSunin varar viS dekkhleSslu síldarskipa 53. árg. — Mánudagur 7. janúar 1963. — 5. tbl. Hjálmar R. Bárðarson isins hefir ritað samtök- skipaskoðunarstjóri rík- um sjómanna og útgerð- armanna og lagt til af ör yggisástæðum að dekk- hleðsla síldveiðiskip- anna á vetrarsíldveiðum verði stórminkuð eða al- gerlega horfið frá þess- ari ofhleðslu. Það er ekk ert launungarmál, að skipin eru hlaðin síld á meðan þau fljóta, en þótt slíkt sé vorkunnar- mál, er það ávallt var- hugavert, og þó miklu varhugaverðara að vetri til en á sumarsíldveið- um. Einnig hefir skipaskoðunar- stjóri lagt til að hillur verði ekki hafðar í lestum síldarskip anna, en sé þeim haldið, leggur hann eindregið til að holrúmið, sem myndast neðst í skipun- um, sé fyllt með ballest til að auka á stöðugleika skipanna og koma í veg fyrir að þeim hvolfi Frh. á bls. 5. Síldarbingur við sfldarverksmiðj- una á Kletti. Margir bótar sprengja nætur sínor og í höfnum er löng löndunarbið Svo mikil síld er nú í sjónum og er enn að færast nær landi, að sjómenn segja, að í sjónum sé „svartur kökkur af síld frá þremur föðmum og niður í botn“. Svo sagði fréttaritari Vísis á Akranesi frá í morgun, er blaðið átti tal við hann, en hann bætti því við, að bátar hefðu orðið fyrir geipilegu veiðarfæratjóni í nótt, — annar hver bátar hefði sprengt nótina. Af þeim sökum væru fáir bátar búnir að tilkynna komu sína. Skímir hefði tilkynnt komu sína með 1500 tn. og Sigrún með 600, en hún væri á leið inn með rifna nót. Fréttaritarinn kvað fjóra báta bíða löndunar >g myndu vart fá löndun fyrr en annað kvöld, en reynt nyndi að láta eitthvað af þeirri síld, sem berst að í lag, í frystihúsin. Fréttamaður blaðsins spurði ívort ekki væri neitt á döfinni til >ess að reyna að taka við þeirri íld, er bærist, og ennfremur hvað iði stækkun síldarverksmiðjunnar Svar fréttaritarans var: — Stækkunin verður ekki tilbúin fyrr en í fyrsta Iagi um miðjan mðnuð. Ekkert hefur verið ákveðið enn um sérstakar ráðstafanir til móttöku síldar, en komið hefur til orða að Ianda allri síld sem berst og var, þegar Hvalfjörður var full setja hana í bing, eins og gert ur af síld um árið. Þá voru 20 til 30 þúsund tunnur settar i bing á túni hér og reyndist lýs? istapið miklu minna en búist Braut rúðu í fyrrinótt sást til manns er hann kastaði steini í rúðu á verk- stæði Einars Skúlasonar í Bröttu- götu 3. Lögreglunni var gert aðvart, en maðurinn var þá allur á bak og burt. Hins vegar var manninum lýst fyrir henr.i og fatnaði hans. í gær tók lögreglan tvo drengi, sem voru að hnupla sælgæti í sæl- gætissölu Gamla bíós. Rannsóknar- Iögreglan fékk mál þeirra til með- ferðar. una og má segja, að tilraunin hafi gefist vel. Þegar Vísir spurði f morgun um afla bátanna, sem leggja upp í Reykjavík, var honum sagt, að fram eftir nóttu hefði verið lítill afli, en undir morguninn hefðu bát arnir farið að kasta austarlega f Grindavíkursjó. Þessir voru búnir að tilkynna komu sína kl. 10 árdegis f dag: Björn Jónsson 1600, Stapafell 750, Halldór Jónsson 1600, Pétur Sigurðsson 600, Sæþór 900, Skarðs vfk 1600, Jón á Stapa 500, Helga 1800 og Hafþór 200. Grimmdarfrost Norðanlands Akureyri f morgun. — Frosthörkur eru nú meiri hér norðanlands en verið hafa áður í vetur og hefur frostið komizt niður f 17 stig um helgina. Pollurinn er allagður, en skip hafa þó getað brotið sér rennu gegnum ísinn og upp að bryggjum. Vegna íssins á Pollinum hefur fjöldi fólks leitað þangað til skauta ferða og er skautasvellið hið á- kjósanlegasta. Lögreglan hefur samt gert allt til þess að beina skautafólkinu af Pollinum og upp var við og var þessi bingur mánaðarforðl fyrir verksmiðj- islenzku stúlkurn- ar númer 3 og 5 íslenzku þátttakendurnir f nor- rænu fegurðarkeppninni í Helsing- fors stóðu sig vel. Guðrún Bjarna- dóttir varð númer 3 og Auður Ara- dóttir varð númer fimm. Keppend- ur voru tíu, tvær frá hverju Norð- urlandanna. Sigurvegari f keppninni var stúlka frá Finnlandi. Sænsk stúlka varð nr. 2, þá kom Guðrún Bjarna- dóttir, norsk stúlka varð númer fjögur og fimmta varð Auður. Keppnin fór fram í finnska sjón- varpinu, en Skandindaviska flugfé- lagið SAS stóð undir kostnaði með því að veita keppendunum ókeypis flugfar. Það er enn ekki vitað, hvenær íslenzku þátttakendumir koma heim, en þær munu ætla að koma við f Ilaupmannahöfn á leiðinni heim. Sfðan mun Guðrún Bjarna- dóttir fljúga út til Majorca og taka þátt í alþjóðlegri fegurðarkeppni. á fþróttasvæðið f miðbænum, en þar er líka hið ákjósanlegasta skautasvell. Telur lögreglan að fólki kunni að stafa hætta af vök þeirri eða rennu, sem skipin brjóta f ísinn þegar þau ýmist sigla inn eða út. Við flóð brotnar líka alltaf meira og minna til viðbótar úr vök inni svo það getur verið hættulegt að fara nálægt henni. Lögreglan hefur hins vegar ekki nægan mannafla til að gæta vakarinnar sem skyldi og reynir þvf að beina fólkinu eftir megni á skautasvell íþróttavallarins. Bifreið sem fór út á fsinn í fyrrakvöld fór niður úr honum, en það kom ekki að sök vegna þess að hún var stödd á grynningum inn við fjarðarbotninn þegar óhapp ið vildi til. Vegna frostanna hafa vegir víða bólgnað upp og myndazt á þeim svellbunkar, og eru sumstaðar varasamir fyrir bragðið vegna hlið- arhalla. Að öðru leyti er færð hin ákjósanlegasta og vegir auðir. 1 gærmorgun gránaði örlftið í rót, og dró þá f bili úr frostinu en það hætti fljótlega að snjóa og þá herti frostið að nýju. Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.