Vísir - 07.01.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 07.01.1963, Blaðsíða 10
V í S I R . Mánudagur 7. janúar 1963. Hreinsum vei Hreinsum fifófft Hreinsum allan fatnað — Sækjum - Sendum Efnalougin UNDIN H.F. Hafnarstræti 18 Sími 18820. Skúlagötu 51. Simi 18825. Auglýsing eykur viiskipti Loftfesting Veggfesting ViVWM Framh. at Dls 4 dæmisaga um það, sem getur komið fyrir alia“. Kennsla í ýmsum vinnubrögðum. „Það má segja, að þið starf- rækið eins konar vinnuskóla, er það ekki?“ „Jú, öryrkjarnir koma til okk- ar, svo að við getum gengið úr skugga um, hvers konar störf henta þeim bezt. Það er auðvitað mjög mismunandi, hve fólk get- ur unnið mikið og hvaða störf henta hverjum. Þessu fólki verð- ur ekki skipt í hópa, hvert vanda mál verður að athuga út af fyrir sig, og það gerir starf okkar á margan hátt erfiðara — árangur- inn kemur ekki eins fljótt, og hann verður ekki alitaf eins mik- ill og við eða þeir, sem til okkar koma, hafa gert sér vonir um. Svo er líka ráð fyrir gert, að hver einstaklingur sé aðeins hjá okkur í fjóra mánuði, þá hafi hann fengið nokkra tilsögn í að bjarga sér betur en áður, og nýr komi í hans stað. Þessa reglu verðum við að halda með sára- litlum undantekningum, og það getur oft reynzt okkur eins erf- itt og hinum, sem verða að beygja sig fyrir henni. En meðan við getum ekki tekið allan öryrkja- hópinn í einu og haft hann hjá okkur, er þetta ein sanngjarn- asta lausnin". Þarna erum við eftirbátar annarra. „Vafalaust leikur mörgum hug ur á að vita, hvernig þessum mál- um er komið hér í samanburði við það, sem tíðkast hjá öðrum þjóðum. Hvað segir þú um það?“ „Sannleikurinn er sá, að á þessu sviði höfum við af litlu að státa — ekki einu sinni í til- tölu við fólksfjölda. Við erum sannast sagna langt á eftir öðrum þjóðum á þessu sviði. Erlendis er svo margfalt meira gert fyrir ör- Að utciif — rramliald al Dls 8 er hefir falið honum á undan- förnum árum, má nefna mikil- vægar sendiferðir til Bandaríkj- anna, þar sem hann ræddi við Eisenhower forseta, til Frakk- lands, þar sem hann hefir unnið ötullega að betri sambúð og sam vinnu Frakka og Þjóðverja, til Bretlands, þar sem hann hefir átt aðild að bættri samvinnu Breta og Þjóðerja og til Austur- ríkis, þar sem hann átti þátt í mikilvægum samningum við Austurríkismenn um fjár- og efnahagsmál. Loks er þess að geta, að dr. Krone hefir átt trúnað dr. Ade- nauers flestum öðrum mönnum fremur á undanförnum árum, og þeir hafa með sér fundi um helztu mál á degi hverjum. En Krone nýtur ekki aðeins virðing ar flokksbræðra sinna, heldur og hann einnig virtur í næst- stærsta flokki iandsins, flokki sósíal-demókrata, sem telja hann að nokkru ofar flokkum. Þeim, sem til þekkja í Þýzka- landi, kæmi það ekki á óvart, þótt dr. Heinrich Krone yrði næsti kanzlari sambandslýðveld isins þýzka, þegar Adenauer þykir nóg komið og leggur niðUr völd. yrkja en hér, því að þrátt fyrir alla mannúð íslendinga, vilja þeir helzt ekki taka mann £ vinnti, ef hann hefir ekki 100% vinnuþrek. Þó vita þeir, sem reynt hafa, að öryrki getur á margan hátt unnið eins vel og sá, sem er honum margfalt fremri að líkamsburð- um. Það virðast menn ekki hafa athugað hér, og þess vegna veit- ist öryrkjum óeðlilega erfitt að komast í vinnu. Vonandi glæðist skilningur manna hér eins og annars staðar á því, að meðal öryrkja eru ágætir starfsmenn, ef þeir eru aðeins settir til réttra starfa. En þess verð ég að geta, að okkur hefir gengið ágætlega að koma þessu fólki í ýmsa vinnu“. Nýjungar að Reykjalundi. Brátt er komið að Reykjalundi, sem líkist einna helzt fjallagisti- húsi suður í löndum, þegar mað- ur lítur heim. Þar ráða þeir ríkj- um Árni Éínarsson, sem hefir á sínum snærum öll framleiðslumál SÍBS þar á staðnum, og Oddur Ólafsson yfirlæknir, sem hefir umsjá með heilsufari manna, og hefir nú fengið sér til aðstoðar Hauk Þórðarson lækni, ungan mann, sem er nýkominn frá fram- haldsnámi í Bandaríkjunum. Varningur frá Reykjalundi, eink um plastvörur alls konar, er orð- inn landskunnur fyrir löngu, og á síðasta ári nam salan um 14 milljónum króna. Þetta er einnig merkilegt fyrir þá sök, að Reykja lundur hefir enga sölumenn til að bjóða vöru sína. Hún selzt með öðrum orðum af sjálfu sér, og eru það mikil meðmæli. Og það er meira en alls konar leikföng, sem þarna er á boðstólum, þvl að ýmis eldhúsáhöld eru einnig framleidd þar, traustar vatnsleiðslur úr plasti eru einnig vaxandi fram- leiðsluvarningur, og sitthvað fleira mætti telja. Þar er einnig mikil framleiðsla á skólahúsgögnum, og danskur hagleiksmaður vinnur þar við að smíða öll þau mót til plastvöru- gerðar, sem ekki er nauðsynlegt að fá erlendis frá. Þar situr ná- kvæmnin í fyrirrúmi, því að hundraðasti hluti úr millimetra getur haft sitt að segja, þegar þrýst er í mót með 360 smálesta þunga, eins og þarna þekkist. Deilc til að styrkja öryrkja. Um 300 metra langir vinnu- skálar hafa verið reistir norðvest ur frá aðalbyggingunni, og í smíð um er viðbót við þá, svo að unnt verði að rifa bragga, sem standa fyrir framan skálalengjuna. Bragg arnir verða rifnir í vor, og þá verður hátíð á staðnum, því að þá verður miklum áfanga náð — öll framleiðslan verður komin £ gott húsnæði. En 1 kjallara aðalhússins er einnig unnið af kappi. Þar er ver- ið að koma á fót nýrri deild, sem ódýrt KULDASKOR og BOMSUR /ERZL.(^" verður væntanlega fullgerð í bess um mánuði. Sú deild verður undir umsjá læknanna, og þangað eiga öryrkjar að geta sótt aukinn stvrk og þrótt, fengið þjálfun með böð- um og öðrum slíkum tækjum og aðferðum, sem nú þykja heppileg- astar erlendis, til að gera þeim fært að eflast og hressast sem bezt. Það 'verður mikilvægur á- fangi £ hinum nýja starfsþætti SÍBS, þegar þessi deild verður fullgerð og tekin til starfa. Allí kosíar þetta mikið fé. Það þarf í rauninni ekki að spyrja um það, að þetta kostar allt mikið fé, en samt brýtur tíð- indamaðurinn upp á þvl atriði, þegar haldið er I áttina til ljósa- dýrðar höfuðborgarinnar £ rökkr- inu. „Jú, þetta kostar vitanlega mik ið fé, en við höfum alltaf verið bjartsýnir, og okkur hefur gengið blessunarlega vel fram að þessu“, segir Þórður Benediktsson. „Við höfum oft verið alveg peninga- lausir, þegar við höfum ráðizt i einhverjar framkvæmdir, en pen- ingarnir hafa komið þegar mest hefir þurft á þeim að halda. Við höfum notið þess skilnings yfir- valda og alls almennings, sem hef ir verið okkur mikill, já, ómetan- legur styrkur". „Og þið þurfið vitanlega áfram haldandi stuðning almennings, þegar þið færið út kvíamar, eins og þið hafið gert upp á síðkastið og eruð að undirbúa núna. Hvern- ig vildir þú helzt, að almenningur styddi þessa viðleitni ykkar?“ „Ég gæti vitanlega bent á sitt af hverju, en mér kemur helzt í hug núna, að almenningur ætti að xninnast happdrættis okkar, ef menn vilja rétta okkur hjálpar- hönd. Já, þú mættir gjarnan benda á það að endingu". Lesandi góður! Tíðindamaðurinn er að hugsa um að launa Þórði og SÍBS á- nægjulega heimsókn £ aðsetur samtakanna og fróðlegar upplýs- ingar um þjóðþrifastarf þeirra — sem skrifa mætti um miklu lengra mál — með því að skreppa niður í Miðbæ, þegar Iokið verður samn ingu þessa pistils, og kaupa miða í Vöruhappdrættinu. Viltu ekki gera slíkt hið sama? FÓLKSBIFREIDAR Mercedes Benz ’50-’60. Chevro- let ’42-’61. Ford ’42-’60. Dodge ’40-’60. Plymouth ’42-’60. — Chrysler ’46-’55. Pontiack ’50- ’56. Enn fremur mikið úrval 4-5 manna bifreiða. Willys ’42- ’60. Ford ’42-’60. Landrover ’50 ’55. Austin Gipsy ’62. Einnig flestar árgerðir vörubifreiða. í dag seljum við: Plymouth ’57, Dodge Pickup ’54, Dodge Wea- pon ’53, Taunus ’54, sérstaklega fallegur bíil. Crysler ’54, Zim ’55, fæst með. góðum kjörum. Opel Capitan ’57. Chevrolet '57 og ’60, 6 cyl. einskiptur, ekinn 22 þús. km. Ford ’60 sendiferða bíll, sérstaklega fallegur. Vér vekjum einnig sérstaka athygli á Scania Vabis ’62. C.OLfV'P cCIIIR o,. ^l p;n^selur Borgartúni 1. Mælum upp Sef jum upp SÍMI 13743 LINDARGÖTU 2.5 Stjórn Samvinnutrygginga hefur nýlega ákveð- ið, að heiðra þá bifreiðastjóra sérstaklega. sem tryggt hafa bifreiðir sinar samfléytt í 10 ár, án þess að hafa valdið tjóni. Er þetta heiðursmerki, ásamt ársiðgjaldi af ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar. 530 bifreiðastjórar hafa þegar hlotið þessi verðlaun og er sérstök ástœða til að gleðjast yfir þeim árangri, sem þessir bifreiðastjórai hafa náð og hvetja alla bifreiðaeigendur til að keppa að þessum verðiaunum. áiár' k%\ ÖRUGGUR AKSTUR SAMVIX ÍN UT'R V (iíiINGAR Sambandshúsinu sími 20500

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.