Vísir - 01.02.1963, Síða 1
53. árg. — Föstudagur 1. febrúar 1963. — 27. tbl.
Mikil vinna við höfnina ■ Eyjum
Fjórir togarar þegar
hlaðair og þrír bíða
í gær og í morgun var mikið
um að vera i Vestmannaeyja-
Mikil síid í Skeiðarárdjúpi
eu veðar hamlar veiðurn
höfn, vegna tilkomu síldarinnar.
í gær voru tveir togarar hlaðn
ir síld. í morgun var verið að
ljúka við að ferma tvo togara
til viðbótar og enn biðu þrír
togarar fyrir utan og verður
farið að hlaða þá seinnihluta
dagsins ef síldin sem veiddist
í nótt reynist nógu mikil og
góð.
Það kom sér sannarlega vel
Framhald á bls. 5.
Allmikið síldarmagn er
í Skeiðarárdjúpi, en afl-
inn undir veðurguðun-
um kominn. Þetta sagði
Jakob Jakobsson í morg
un er Vísir leitaði frétta
hjá honum, en Jakob er
nú í rannsóknarleið-
angri á Ægi fyrir sunn-
an land. í nótt fengu 14
bátar 9200 tn. og fóru
með aflann til Vest-
Síidarbátur á fullri ferð inn á Vestmannaeyjahöfn í gær.
Börnin / stöðugum
lífsháska í umferðinni
BROTNAÐIA
BÁÐUM FÓTUM
Ólafur Guðmundsson lögreglu-
maður hefur orðið að beiðni Vísis
um að láta álit sitt i té um vanda-
mál umferðarinnar í sambandi við
bömin i Reykjavík. I þeim efnum
er Ólafur allra manna kunnugastur
þvi að umferðarmál er sérsvið
hans innan lögreglunnar, auk þess
sem hann hefur um 13 ára skeið
annast umferðarkennslu í barna-
skólum borgarinnar og að ein-
hverju Ieyti einnig í gagnfræða-
skólunum.
— Nú er lögreglan hætt þessari
kennslu í skólunum, sagði Ólafur.
Það er búið að taka hana upp sem
skyldunámsgrein samkvæmt um-
ferðarlögunum nýju og nýlega
hefur Rikisútgáfa námsbóka gefið
út ágæta kennslubók um umferðar-
mál.
Ég held, bætti Ólafur við, að
enda þótt ég geti ekki sannað neitt
með tölum, að þessi kennsla í
barnaskólunum og leiðbeiningar
um það hvernig fólk eigi að haga
sér í umferðinni, hafi orðið að
miklu gagni. Ég hef tekið eftir þvi
á ýmsa lund.
Börnin eru stórkostlegt vanda-
mál i umferðinni, og í þeim efnum
hefur lögreglan tölur, sem tala
sínu máli. Þannig fékk götulög-
reglán til meðferðar 65 slys á börn
um innan fermingaraldurs á árinu
sem leið. Þar af var meiri hlutinn
innan 10 ára. I desembermánuði
Framhald á bls. 5.
I morgun, snemma á 9. tíman-
um varð umferðarslys á Snorra-
i braut. Þar varð kona fyrir bifreið
og slasaðist.
Konan heitir Jóhanna Pálsdóttir
til heimilis að Snorrabraut 69.
Hún hafði farið út til að sækja
mjólk og var á leið vestur yfir
Snorrabraut gegnt húsinú sem hún
átti heima í þegar bifreið bar að,
sem ekið var norður götuna.
ísing var á götum í morgun og
Óiafur Guðmundsson
víða flughálka, og mun hún
hafa átt sinn þátt í þessu
slysi, því að þegar ökumaðurinn
ætlaði að sveigja aftur fyrir kon-
una, jafnframt því að hemla,
snerist bíllinn á hálkunni og aftur-
hluti hans sennilega skollið á kon-
unni. Hún féll í götuna og var
þegar flutt í slysavarðstofuna.
Þar kom í ljós við rannsókn að
báðir fótleggir hennar vera brotnir
og var hún flutt í Landspítalann.
93 nýir áskrifendur
Níutíu og þrír nýir áskrif-
endur hafa nú bætzt við I hóp
kaupenda Vísis á Akranesi.
Hefir áskrifendasöfnunin að-
eins staðið í þrjú kvöld og
hafa undirtektir Akumesinga
verið afbragðs góðar eins og
þessi tala ber með sér.
Söfnun heldur áfram í
kvöld og næstu kvöld en tak-
markið er að safna 200 nýj-
um áskrifendum að Vísi í
bænum. >
> ■. ", ...\vv\v.. .í/.i.V '1 ‘ ''