Vísir - 04.02.1963, Side 1

Vísir - 04.02.1963, Side 1
Þegar GuIIfoss kom í gær frá Kaupmannahöfn var mikið hvass- viðri í Reykjavík og hallaðist skipið mjög, þar sem það Iagðist að hafnarbakkanum. Sýnir þessi kuldalega mynd frá höfninni það. 29. tbl. ISINN REKINN VESTUR FYRIR Það voru kuldalegar fréttir sem bárust frá Hornbjargsvita í gær. Símaði vitavörðurinn þar að sam- felld ísspöng sæist um hálfa mílu norðaustur af Hornbjargi og virtist hún færast nær landi. Skömmu síðar barst skeyti frá togaranum Apríl sem var á veiðum 'á líkum slóðum og sagði í þvf að samfelld ísbreiða sæist svo langt sem augað eygði rétt norður af Horni og væri ísinn að verða landfastur. Þessar fregnir slógu menn óhug, gat það verið að ættum ísavor yfir höfði okkar. En í morgun fékk blaðið þær fregnir frá vita- verðinum á Hornbjargi að ísinn hefði nú borizt vestur fyrir og væri auður sjór fyrir norðan Horn- bjarg. Veður og skyggni hefur verið svo slæmt á þessum slóðum að ekkert ískönnunarflug hefur verið farið, hvorki frá Landhelgisgæzl- unni né varnarliðinu, en verður farið strax og skyggni batnar. í morgun var varðskipið Albert á siglingu á þessum slóðum til að kanna ástandið. Hann símaði um kl. 11 að smáíshrafl væri á sigl- ingaleið út af Aðalvík, en þétt- ari ísspöng um 6 sjómílur frá Rit. Þá var íslaust að sjá fyrir norðan Straumnes. Virðist þetta bera saman við skýrslu vitavarðar á Hornbjargi um að ísinn sé rekinn vestur fyrir. Albert heldur áfram siglingu sinni norður fyrir til að kanna ástandið. #■■■'" ' " '■■■ 204 NÝIR Á AKRANESI Áskrifendasöfnun Vísis á Akranesi er nú lokið og varð árangur- inn mjög góður. Alls söfnuðust 204 nýir áskrifendur í hópinn. — Fastir áskrifendur blaðsins eru nú hátt á þriðja hundrað, en alls seljast nokkuð á fjórða hundrað eintök af blaðinu þar daglega. Blaðið kemur á hverju kvöldi til Akraness og verður lögð áherzla á að það verði komið til allra kaupenda skömmu eftir kvöldmat. GULLFOSS taföist lít■ segir Kristjdn Aðalsteinsson, skipstj. Astondið getur orðið verra, — Við lentum í engum vandræðum í ísnum í þetta sinn, en þið meg- ið hafa það eftir mér, að ástandið getur orðið verra, sagði Kristján Aðalsteinsson skipstjóri á Gullfossi um síðustu ferðina til Kaupmanna- hafnar, gegnum ísinn í Eyrarsundi. — Skip með takmarkaðan vélakraft gátu ekki komizt f gegn, og ég held ég megi segja, að Fjallfoss og Helgafellið hafi lent í lítils háttar vandræðum og orðið að fá aðstoð ísbrjóta, en það er varla orð á þessu gerandi. — Töfðust þið ekkert? — Auðvitað dró lítillega úr ferðinni, kannski um eina mílu eða tvær, maður var hræddur við að keyra á fullu á hörðustu spangirnar á leiðinni milli Skaga og Kaupmannahafnar. — Fóruð þið ekkert úrleiðis? — Það var ósköp lítið. Ekki var talið ráðlegt þegar farið var frá Hamborg að sigla leiðina um Kielarskurð, heldur farið út í Norðursjó frá Hamborg og siglt með Jótlandsströnd og inn í Kattegat að norðanverðu, fram hjá Skagen og jíaðan inn til Kaupmannahafnar. Svo fórum við líka sömu leið til baka og áður. — Hvers konar ís er þetta? — Lagís, 6—10 þumlunga þykkur, sem frýs þarna vegna þess hve vatnið er ferskt. Vest anáttin með hlýjum sjó úr Norð ursjó mundi ryðja ísnum burt. Framhald á bls. 5. Kristján Aðalsteinsson, skip- stjóri, Ieyfir fréttamanni og ljós- myndara Vísis að heyra ísfrétt- ir af segulbandi. (Ljósm. Visis, I. M.). Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði var í gær að leita að týndum pilti. Þessi mynd var tekin af leitinni rétt hjá Helsuverndarstöðinni, þar sem sporhundurinn Nonni var notaður.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.