Vísir - 04.02.1963, Side 5
V í SIR . Mánudagur 4. febrúar 1963.
5
DRUKKINNIOFSAAKSTRI
Lögreglan elti í fyrrinótt upp
ökumann, sem ók á ofsalegum
hraða um ýmsar götur Reykjavík-
ur, einkum þó vítt og breitt um
Langholtshverfi.
Þar kom þó að lögreglunni tókst
að króa bílinn af og handsama
ökumanninn. Kom við nánari at-
hugun í ljós að ökumaðurinn hafði
ærna ástæðu til að forðast afskipti
lögreglunnar því það var ekki ein-
ungis að hann var drukkinn við
stýrið heldur hafði hann tekið far-
artækið í heimildarleysi, en það
KULDAST.SVÉL
KARLA og
KVENNA
L4 MARGAR GERÐIR
LÁRUS G. LUDVIGSSON SKÓV. BANKASTRÆTI 5 1
Hekla —
Framhald af bls. 16.
stjóri Caterpillar í Evrópu, lögðu
báðir á það áþerzlu, að þau verk-
stæði og sú þjónusta, sem komin
væri á laggirhar með hinni nýju
byggingu jafnaðist fyllilega á við
beztu þjónustu í Þýzkalandi og
reyndar hvar sem væri í Evrópu.
Kváðu þeir það gleðja sig að koma
hingað í heimsókn á þessum tíma-
mótum í sögu fyrirtækisins Heklu,
en þeim væri Sigfús forstjóri þess
að góðu kunnur fyrir afburða
dugnað, framsýni og reglusemi í
öllum þeim viðskiptum sem þessi
tvö heimsfirmu hefðu átt við hann
á liðnum árum.
Mr. Richter, útflutningsstjóri
Land-Rover tók mjög í sama
streng, og kvað íslandsumboðið
vera með þeim umboðum firma
síns, sem í fremstu röð væri bæði
hvað varðaði sölu og alla þjón-
ustu.
Að ræðunum loknum bauð Sig-
fús Bjarnason gestum að skoða
hina veglegu byggingu, bæði skrif
stofuhúsnáeði og verkstæðin.
Gullfoss —
Framhald af bls. 1.
— Er útlit fyrir versnandi
ástand?
— Það er 'hugsanlegt. Kuld-
inn er mikill og ísinn getur
skrúfazt upp og myndað garða,
sem verða of sterkir fyrir skip-
in. Við höfum ekki lengi lent í
slíku, en ég man eftir því á
gamla Gullfossi, þegar við vor-
um fastir fjóra dagá í ísnum og
mesta mildi að skipið varð ekki
til þarna í ísnum.
Bruninn —
Framhald af bls. 16.
færageymsla og gripahús eru áföst
bæjarhúsinu og tókst að verja
þessi útihús.
Hjónin sem bjuggu í rishæðinni
urðu fyrir miklu tjóni og eins
brann þar skrifstofa sandgræðslu
stjóra. Hann var staddur hér í
Reykjavík er þetta gerðist og sagði
í viðtali við Vísi í morgun, að tek
izt hefði að bjarga miklu af skjöl
um hans undan eldinum og hefði
lítið brunnið af skjölum og bók-
um en mikið sviðnað og skemmzt.
Eldur í timbri
í gærmorgun urðu talsverðar
brunaskemmdir á timbri í timbur-
verkstæði í Mjölnisholti 10.
Klukkan langt gengin 11 urðu
menn varir að kviknað hafði í
verkstæðinu sem er til húsa í lítilli
skúrbyggingu. Talið er að kvikn-
að hafi í út frá olíukyndingu sem
er undir glugga á suðurhlið.
Innilegt hjartans þakklæti viljum við flytja ykkur öll-
um, sem sýnduð okkur samúð í orði og verki við hið svip-
lega fráfall
KRISTINS EYFJÖRÐ VALDEMARSSONAR.
Þökk fyrir allar minningargjafirnar, blómin, skeytin,
handtök og hlýjan hug. Sérstaklega óskum við eftir að
mega færa söngfólki K.F.U.M. og K. beztu þakkir fyrir
fagran söng við útför hans.
Bryndís Helgadóttir,
Ingveldur Valdemarsdóttir,
og aðrir vandamenn.
Filippía Kristjánsdóttir,
Helgi Valdemarsson
var í eign fyrirtækis þess sem mað-
urinn vinnur hjá.
Lögreglan tók um helgina þrjá
aðra ölvaða ökumenn við akstur
og auk þess var einn réttindalaus
piltur tekinn á hjálparbifhjóli.
Týndist —
Framhald af bls. 1.
koma út af kvikmynda-
húsi í Hafnarfirði í gær-
kvöldi.
Pilturinn hafði þennan tíma
farið víða, m.a. með Akraborg
upp í Borgarnes og aftur til
baka. Á sunnudagsmorgun var
Hjálparsveit skáta fengin til að
hefja leit og kom hún með spor-
hundinn Nonna á stað við
Laugaveg þar sem vitað var að
pilturinn hafði komið, rakti
hundurinn slóð hans suður í
Fossvog þar sem hann munhafa
verið á ferð. Síðan rakti hund-
urinn slóð upp í Selási að hlöðu,
sem þar er, en þar neitar piltur-
inn hins vegar að hafa komið.
Það kom í Ijós, að í þessari
útivist hafði hinn týndi piltur
skipt um föt. Fundust hin gömlij
föt hans og í þeim bíómiði að
Kópavogsbíó. Auk þess greindu
kunningjar hans frá því að þeir
hefðu séð hann á ferli í Reykja
vík og nágrenni á sunnudaginn.
Þar sem útséð var um það að
sporhundurinn gæti ekki rakið
slóð piltsins, sennilega af því
að hann hafði ferðazt £ bifreið-
um, ráðlagði Ingólfur Þorsteins
son yfirvarðstjóri skátunum að
setja vörð við öll kvikmynda-
hús í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði. Þau ráð komu að
góðu haldi, því að skátarnir
fundu hann þegar hann vai*' að
'•kbmaiMiaPÍ-sýhlhgu T Hafnar-
firði. Þá hafði hanri áður um
daginn verið bæði'á 3-sýningu
og 5-sýningu á kvikmyndahús-
um.
Það er eftirtektarvert, hve
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði
vinnur nú hvað eftir annað á-
gætisstarf við leit að týndum
mönnum. Ber henni sérstakt lof
fyrir skipulagt og vel unnið
starf í gær.
Nú um helgina var haldiri æskulýðsguðsþjónusta í Neskirkju og
var hún mjög fjölmenn, hvert sætí skipað. Þar gerðist það, sem
fátítt er, að kona steig i stólinn og prédikaði. Var þessi mynd
tekin af frú Hrefnu Tynes í prédikunarstólnum.
Blindhríð og Hk-
stætt á Akureyrí
Akureyri í morgun.
Snemma í gærmorgun brast
skyndilega á með stórhríð af norð-
austri á Akureyri, sem kom öllum
mjög á óvart, því að dagana áður
var blíðuveður, logn og stillur, en
nokkurt frost.
Hríðin skall á á sjötta tímanum
með allmikilli snjókoriiu og nær ó-
stæðu roki. Þetta veður hélzt fram
undir hádegi en tók þá að lægja,
en gekk úr því á með éljagangi
það sem eftir var dagsins.
í þessum veðurofsa urðu nokkr-
ar rafmagnstruflanir semmunuhafa
orsakazt af samslætti á línum, en
ollu þó ekki varanlegu rafmagns-
leysi í bænum.
Á Akureyri og nágrenni er ekki
mikiil snjór kominn, enda stóð
hríðin tiltölulega skamma stund.
Hins vegar er taiið að þæfings-
ófærð sé komin á heiðarnar, bæði
að austan og vestan, samt er bú-
izt við að þær muni vera ennþá
færar stórum og kraftmiklum bíl-
um. Fréttir hafa engar borizt af
heiðunum í morgun, en f gær
komust nokkrir bílar yfir þær, aðr-
ir sneru við, þó meir sökum veð-
urofsa og hríðar heldur en vegna
ófærðar.
í morgun var úrkomulaust
á Akureyri, en kuldalegt mjög með
norðannepju og 11 stiga frosti.
Enda þótt illstætt hafi verið í
rokinu í gærmorgun, er ekki vitað
til að neitt tjón hafi hlotizt af því.
I
, .‘v
í v
‘4
m
i
FRÚIN
KVENNABLAÐ
1. tbl. 2. árgangs er komið
út. — Blaðið er mjög fjöl-
breytt og vandað. — Vin-
sældir „FRÚARINNAR"
hafa orðið slíkar, að al-
gjört einsdæmi má telja,
af nýju blaði, á jafn-
skömmum tíma. — Blaðið
er 54 síður — í stóru broti
og kostar kr. 25.00 í lausa-
sölu, en aðeins fimmtán
krónur í áskrift. Áskrift-
arsímar eru 15392 og
14003. Afgreiðsla Grund-
arstíg 11, Reykjavík, sími
15392.
,FRÚIN“ er íslenzk, /önduð, fróðleg og skemmtileg.