Vísir - 04.02.1963, Síða 16

Vísir - 04.02.1963, Síða 16
Mánudagur 4. febrúar 1963. 1 fyrrakvöld var farið inn í mannlausa og ólæsta íbúð við Leifsgötu og stolið þaðan um 4 þús. kr. í peningum ásamt fleiri verðmætum. Fólkið í íbúðinni hafði brugðið sér skamma stund i burt, en láðist að læsa íbúðinni á meðan. Borholan við Undraland: 10 sekúudulltrar í morgun urðu menn varir við að talsverðan gufumökk lagði upp úr borholunni við Undraland, hef- ir nú komið i ljós að borun þar er lokið með ágætum árangri, eða um 10 lítrar per sek. Holan er 650 m á dýpt. Næst verður borað f Sigtúni, og verður sú hola lfklega nokkuð dýpri, að því er Gunnar Böðvars- son verkfræðingur, tjáði blaðinu. Mesta magn sem náðst hefur úr bolholu er 100 lítrar per sek, og var það fyrir austan fjall. Bezti fjárhagslegur árangur er hins vegar 30—35 lítrar per sek, en það var f Reykjavik sjálfri, svo að ekki þurfti að leggja út í umfangs- miklar og dýrar röralagningar. Áður en borun hefst eru jafnan gerðar margþættar mælingar, til þess að finna heppilegasta staðinn. Reynast þessar mælingar í flestum tilfellum réttar. Tuttugu og fimm manna sér þjálfaður hópur vinnur vakta- vinnu við borinn. Á mörkum lífs og dauða Afíeiðing ölvunaraksturs Myndin hér fyrir ofan sýnir afleiðingu af ölvunarakstri á götum Reykjavíkur. Var það mildi að ekki skyldi verða stór- slys af þessum árekstri þar sem drukkinn maður var við stýrið. Þetta gerðist fyrir tveimur til þremur árum. Ölvaður maður ók bifreiðinni aftan á kyrrstæða bifreið á einni af götum borg- arinnar. Þrir félagar, sem voru í bifreiðinni, slösuðust, þar af einn alvarlega. Við rannsókn málsins kom í ljós, að tveir félagar hans höfðu einnig ekið bifreiðinni fyrr um kvöldið, einnig undir áfengis- áhrifum. Ökumaðurinn, sem slysinu olli, flýði af slysstaðn- um og skildi félaga sína eftir slasaða í bílflakinu. Það má geta nærri hvílíka hættu þessi ölvunarakstur skap aði vegfarendum og bifreiðar- stjóri kyrrstæða bílsins slapp þarna naumlega við stórslys, þar sem hann hafði nokkrum augnablikum áður staðið við bifreið sína, verið að reyna að koma henni í gang. Hné niður Á laugard. hné maður niðurfyrir utan húsdyr sínar á homi Lauga- vegs og Vatnsstígs og var þegar örendur. Maður þessi var kunnur borgari í Reykjavik, Mekkino Björnsson, kaupmaður, Laugavegi 33. Talið er að hjartaslag hafi orðið honum að bana er hann var að koma út úr húsinu kl. langt gengin sex. Mekk- ino heitinn var 62 ára gamall. Mest öll síldia fer nú í bræðslu Nærri öll síld, sem veiðzt tiefur undangengna 2—3 sólarhringa á austurmið- unum, hefur farið í bræðslu smæðar vegna og veiði lok ið, í bili að minnsta kosti, veðurs vegna. Vísir hefur frétt, að af 18.000 lestum síldar, sem bátar komu með til Vestmannaeyja f fyrradag, hafi aðeins 3000 farið í togara, -— allt hitt var svo smátt, að það var sett í bræðslu, og af 10.000 lestum, sem bárust í gær, fór allt í bræðslu vegna smæðar. Búið var að setja nærri 200 lest- ir í Úranus f gær, en hann tekur síld til útflutnings í Eyjum. Bátarnir, sem voru á miðunum, er ofviðrið skall á, munu hafa ver- ið um 10 talsins, og lágu 7 þeirra undir Alviðruhömrum í nótt og 3 innarlega í bugtinni. í morgun voru bátarnir að hreyfa sig til heimferð- ar. — Aftaka veður skall á í gær og komst vindhraðinn upp í 12 stig 1 Vestmannaeyjum. Nýbygging HEKLU opnuð Umboð og þjónusta á heimsmælikvarða Á laugardaginn voru hin nýju og gleesilegu húsakynni heildverzlun- arinnar Heklu við Laugaveg opn- Kona og barn bjargast út úr brennandi búsi í fyrramorgun brann efri hæð fbúðarhúss Páls Sveinssonar sand- græðslustjóra í Gunnarsholti á Rangárvöllum, en í Gunnarsholti er tvílyft stelnhús með tveimur burst um. Rlshæðin brann, en þar var skrifstofa sandgræðslustjóra og í- búð hjónanna Sigurðar Sveinbjörns sonar, starfsmanns, og Sigríðar Jónsdóttur, sem svaf þar ásamt 2ja ára barni þeirra hjóna þegar elds- ins varð fyrst vart um kl. hálf níu Stjórn^ólanómskeið Heim- dallar hefst annað kvöld Stjórnmálanámskeið Heimdall ar hefst annað kvöld kl. 20,30 í Valhöll, með fyrirlestri Birgis Kjaran alþingismanns, um ís- lenzk stjórnmál árin 1918— 1944. Verður námskeiðið siðan reglulega 8 næstu þriðjudags- kvöld og verður fjallað um eft- irfarandi, auk fyrr greinds efn- is: Islenzk stjórnmál 1944— 1956, vinstri stjómina, verk hennar og stöðu í fslenzkri stjórnmálasögu, viðreisnar- stjórnin og efnahagsmálastefnu hennar, íslenzka atvinnuvegi, nýja möguleika og framtíð þeirra, framkvæmdaáætlun rik- isstjórnarinnar, stjórnarand- stöðu framsóknar og kommún- ista, og Ioks rætt um spurn- inguna: Hvað er framundan í íslenzkum stjórnmálum? Þátttakcndur eru beðnir að skrá sig til þátttöku í dag og á morgun í símum 18192 og 17102. I á Iaugardagsmorguninn. Bóndi j hennar hafði farið á fætur kl. 8 1 og gengið til húss vistmanna í | Gunnarsholti og einskis orðið var áður en hann fór að heiman. En ! hálftíma seinna vaknar kona hans við það að mikili eldur er í svefnherberginu og hafði auðsjáan- lega kviknað í út frá rafmagns- slökkvara við dyrnar. Konan komst þó út um dyrnar með barn sitt og sluppu bæði ó- brennd. Konan símaði þegar til manns síns út í hús vistmanna, sem áður var nefnt og var þegar í stað kallað á slökkviliðið frá Hellu og Selfossi. Slökkviliðið á Hellu kom mjög skjótlega til hjálp ar, enda er miklu skemmra þangað en á Selfoss, og hafði svo að segja ráðið niðurlögum eldsins er slökkviliðið kom frá Selfossi. Það auðveldaði mjög slökkvistarfið að brunaslöngurnar náðu út í læk of- an við bæinn og var unnt að dæla þaðan vatni viðstöðulaust. Efri hæð hússins gereyðilagðist í eldinum, brann allt sem brunnið gat, og miklar skemmdir urðu á neðri hæðinni af vatni sem nota þurfti við slökkvistarfið. Verk- Framhald á bls. 5. uð, en frá þeim var itarlega skýrt hér í Vísi á Iaugardaginn. Við þetta tækifæri bauð forstjóri Heklu og eigandi, Sigfús Bjarna- son, starfsfólki fyrirtækisins og dótturfyrirtækjanna til fagnaðar í hinum nýju húsakynnum, auk fjölda gesta. Meðal þeirra voru ráð herrar, borgarstjóri, bankastjórar, embættismenn og fjölmargir for- ystumenn í verzlunar- og atvinnu- lífi borgarinnar. Voru þar alls sam an komin um 400 manns. Sigfús Bjarnason bauð gestina velkomna og rakti í stórum drátt- um sögu fyrirtækisins og bygging- arsögu hins glæsilega, nýja húss. Gat hann þess, að fyrirtækið hefði á síðasta ári selt um 1200 farar- tæki og sézt af þeirri háu tölu, hver vöxtur og viðgangur þess er. Þá héldu stuttar ræður hinir er- lendu gestir. Von Felsen frá Dresd ner Bank í Hamborg gat þess að banka sínum hefði verið ánægja að lána fé til þessa fyriríækis, sem væri í slíkum blóma og taldi bank inn, að hér væri um viturlega f jár- festingu að ræða, en hann lánaði um 8 millj. ísl. króna fyrir milli- göngu Volkswagen í Þýzkalandi. Þeir Schneider, umdæmisstjóri Volkswagen, og von Seeger, sölu- Framh. S h't 5 Frá fagnaði Heklu á laugardag. Geir Hallgrímsson borgarstj. t. v. Hörð- ur Helgason, form. varnarmálanefndar, og Ragnar Karlsson læknir. 1

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.