Vísir - 13.02.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 13.02.1963, Blaðsíða 8
8 -------------------------------—v V í S IR . Miðvikudagur 13. febrúar 1963. VÍSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á má nuði. 1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Rannsóknarstofnun atvinnuveganna Ríkisstjórnin hefur enn borið fram á þingi frum- varp um mjög merkilegt og nauðsynlegt málefni. Er það frumvarp það, sem fram kom sL mánudag og fjallar um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Er gert ráð fyrir með frumvarpinu, að málum þessum verði framvegis gerð enn betri skil en fram að þessu, enda er það mála sannast, að aldrei mun verða unnið of mikið starf í þágu alls konar rannsókna fyrir atvinnuvegina. Unnið hefir verið að margháttuðum undirbúningi vegna frumvarps þessa um langt árabil, og þar hafa margir vísindamenn lagt hönd á plóginn. Einn þáttur- inn í athugunum þessum var ráðstefna sú um raun- vísindi og skipulag rannsókna á því sviði, sem efnt var til árið 1961. Þá ráðstefnu sátu svo að segja allir raunvísindamenn íslendinga, flest ungir menn og vak- andi um nauðsyn þjóðar sinnar, og mörkuðu þeir að verulegu leyti þá stefnu, sem farin verður samkvæmt frumvarpi því, sem nú er fram komið. Það hefir komið fram æ ofan í æ á undanförnum árum, að fé er naumast betur varið í almennings þágu en til rannsókna á ýmsum sviðum. Kemur það raunar heim við reynslu annarra þjóða í þessum efnum, og bendir einnig á það, að íslendingar eiga að ganga lengra í þessu en þeir hafa gert. Það fé, sem varið er til slíkra rannsókna kemur fyrr eða síðar margfaldlega aftur, og í þeim efnum nægir til dæmis að benda á hið mikla hagnýta gildi sem síldarleitin hefir haft í sambandi við hina nýju síldarvertíð hér við landið suðvestanvert. Ört vaxandi þjóð, sem gerir miklar kröfur til lífs- ins og vill ekki vera eftirbátur annarra og stærri þjóða, ef þess er nokkur kostur að standa þeim jafnfætis, hlýtur að vera ósínk á fé til að búa í haginn fyrir atvinnuvegina og þá, sem við þá starfa. Þess vegna hlýtur frumvarp þetta að sigla hraðbyri gegnum þing- ið, og foringjar stjórnarandstöðuflokkanna hafa þegar tilkynnt, að þeir séu máliu samþykkir í aðalatriðum. Er því ekkert því til fyrirstöðu, að hægt verði að herða róðurinn að þessu leyti í komandi árum. Það mun tryggja batnandi hag þjóðarinnar og gera enn lífvæn- legra í landinu. Vakandi áhugi almennings Varðarfundurinn á mánudaginn, þar sem fjallað var um ,tæknimenntun og atvinnulífið“, var gott dæmi um þann áhuga, sem ríkir meðal Sjálfstæðismanna um nauðsyn aukinnar tæknimenntunar hér á landi. Þjóð, sem vill ekki dragast aftur úr í atvinnuháttum, verður að efla hjá sér tæknimenntun eftir megni. Þessi fundur Varðar verður væntanlega upphaf mikillar sóknar fyrir stórstígum framförum á því sviði undir forustu Sjálfstæðisflokksins. Síminn nð gera Reyk- víkinga gráhærða Blessaður skrifaðu skammagrein um sím- ann, segir blaðamaður- inn sem situr á móti mér með tvö símtól í takinu og bíður eftir sóninum. Prentvélarnar bíða ekki eftir sóninum, tíminn bíður ekki eftir sóninum heldur, hanp, Iföui^ems og örskot miskunnar- laust. Ef það væru nú aðeins blaða- menn sem biðu eftir sóninum og yrðu gráhærðir þá væri það sök sér. En það bíða allir Reykvík- ingar og Kópavogsbúar og Hafn firðingar, og guð má vita hversu margir, eftir símasóninum argir og óþolinmóðir daginn út og dag inn inn. Allir eru að flýta sér, — nema slminn hann steinþegir, enginn sónn að þvi er virðist heila eilífð. Þetta er bókstaflega að setja allt úr jafnvægi. Það kemst allt óhjákvæmilega úr jafnvægi. Blaðamaðurinn verzlunarmað- urinn, skrifstofumaðurinn, stjórnendur atvinnufyrirtækja, bókstaflega allir þurfa að nota síma og menn koma ekki helm- ingnum í verk af því sem þarf að koma frá þennan eða hinn daginn vegna þess hversu mikið álag er á sfmanum og sónninn kemur ekki fyrr en eftir dúk og disk, svo seint að menn eru bún ir að gleyma I luðu að hringja loL . hann kemur. Verða stjórnendur símans ekki varir við þetta sjálfir. Þurfa þeir kannski aldrei að bíða eftir són inum? Hvað á þetta að ganga lengi til svona? Langt fram á næsta sumar er manni sagt og að allt fari stórum versnandi fram að þeim tíma. Lengi getur vont versnað. Hafa ekki afnota- .gjöldin af símanum verið hækk- uð nýlega? Það væri. allt í lagi ef síminn væri í lagi. En það verður að teljast óþolandi á ör- fárra ára fresti að símakerfið komist hönk vegna þess .... ja, vegna hvers? það ættu stjórn endur símans að geta upplýst. ,Og jafnvel þótt þeir tilgreini ein hverjar ástæður þá er engin af- sökun fyrir þessu fyrirhyggju- leysi. Síminn á að vera til þess að spara mönnum tíma og það er lágmarkskrafa borgaranna að hann reynist því hlutverki vax- inn. Nú bíður mikill fjöldi manna eftir því að fá síma, en enginn sími er til. Þetta er óþol andi sleifarlag á öllum þessum málum sem Iamar allt athafnar- viðskipta- og félagslíf fólksins. Hér verður að bæta úr nú þeg- ar, í stað þess að bíða verður verður lengur eftir sóninum með hverjum deginum sem lfð- BREYTINGAR Á IÐNLÁNASJÓÐI Á undanfömum árum hafa lánamál iðnaðar hér á landi verið í endurskoðun og hefur sú athugun borið þann árangur að borið hefur verið fram stjórnarfrumvarp á Alþingi, þar sem lagðar eru til nýjar leiðir til tekjuöflunar. Verkefnl Iðn- lánasióðs hefur verið að veita lán til smærri iðnrekenda, til kaupa á vélum og áhöldum. Með hinu nýja frumvarpi er verksvið sjóðsins víkkaði og er nú heimilað að lána til bygg- ingar verksmiðjuhúsa og end- urskipulagningar iðnfyr- tækja auk tækja- og vélakaupa. Aðrar meginbreytingar eru þær, að Iðnlánasjóður sé sjálf- stæð stofnun undir yfirumsjón iðnaðarmálaráðherra. Gert er ráð fyrir nýjum tekjustofni, eins og áður hefur verið minnst á, en hann felst f 0.4% gjaldi sem innheimtist af iðnaðinum í landinu og lagt verður á sama stofn og aðstöðugjald er lagt á. Sett eru fvllri ákvæði um lán- tökuheimild sjóðsins og endur- lán. Þess má og geta að upphæð lána er ákveðin allt að 60% kostnaðarverðs. Mikil vonbrígði bænda — vegna afstöðu yfirdýralæknis I ræðu sinni á Búnaðarþingi nauta hér á landi kæmu að holdanautaræktunin hefði í fyrrad. vék landbúnaðarmála tU framkv., en málið var sett gefið góða raun. ráðherra Ingólfur JÓnsscn 1 hans vald va®na °J'ygg,s*'á®' Lögin um holdanautarækt nokkuð að holdanautamálunum. ,ta ana' Sérstaklega hati voru sett j fyrra að tilhlutan þetta orð'ð bændum vonbrigði 3únaðarþingS 0g hálf milijón Sagði hann að bændur hefðu vegna þess að ekki var talin króna veitt á fjáriögum tii þess orðio fyrir miklum vonbrigð- stafa hætta af framkvæmd * , ... ...* um, þar sem yfirdýralæknir þessara lc. a heldur miklu a oma J varnars o hafi ekki getað fallizt á fremur af því sem á eftir kynni ^n nn hvílir málið sem fyrr er að lögin um ræktun holda- að koma, þegar reynslan sýndi sagt. EESStiaSEjiBlESííS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.