Vísir - 13.02.1963, Síða 15
VY8IR . Miðvikudagur 13. febrúar 1963.
15
Ceci/ Saint - Loureni:
NÝ ÆVINTÝRI
KARÓLÍNU
lega við myndinni. Svo studdi
hún sig við vegg.
— Eruð þér veikur? spurði
Collins óttasleginn.
— Nei, nei, aldrei, aldrei fæ
ég fullþakkað yður, Collins. Hún
gat ekki sagt það, sem henni
var efst í huga:
— Ég get aldrei fullþakkað
yður, Collins, því að mynd yðar
sannar, að Anni litli er sonur
Gastons.
Hún gat ekki haft augun af
litlu myndinni.
— Hann er svo líkur yður,
sagði Collins.
— Er hann það? Jú, hann er
það líklega.
Það fór að koma hreyfing á
Collins.
— Ég verð víst að fara. Verið
þér sælar, Karólína.
— Ég vildi mega afhenda yð-
ur það fé, sem ég hef lagt til
hliðar handa drengnum .
— Það er ekki nauðsynlegt.
Hann hefur allt, sem hann
þarfnast. Þegar ég er kominn aft
ur til Lundúna, hef ég í huga
að fela hann í umsjá skipaeig-
andak.nt>kkurs, vinar míns. Yið
gætum auðveldlega sent dreng-
inn til Frakklands um Spán.
— Ég væri yður þakklát fyrir
að annast það. Ég mun sjá um
að þér fáið hið nýja heimilis-
fang mitt, því að ég mun verða
farin héðan, þegar búið er að
koma því í kring.
— Styrjöldin stendur ekki að
eilífu. Þér ættuð að senda mér
íiriu undir eins og hún er um
J gengin? Viljið þér lofa mér
því?
— Já, vinur minn, ég mun
gera það — og oft hugsa til yð-
ar.
Dymar opnuðust allt í einu.
Karólína horfði hvasslega á
hana, því að hún hafði ekki bar-
ið að dyrum.
— Ég bið frúna afsökunar, —
mér varð svo mikið um það, sem
fyrir kom. Þegar við vorum á
leið hingað af dansleiknum stöð
vaði lögreglan okkur. Það er ný-
búið að sleppa okkur.
Collins listmálari var kominn
út að dyrum.
Ég hefði líka fréttir að færa af
systur yðar, sagði hann. Hún er
nýbúin að eignast þriðja barnið
sitt. Hún heimsótti mig fyrir
3—4 mánuðum ásamt manni sín
um og móður ykkar, sem býr
hjá henni. Þau vildu taka Anna
litla að sér, en ég taldi ekki rétt
að fela hann í þeirra umsjá. Ég
vona, að ég hafi gert það sem
rétt var og yður að skapi.
— Það hafið þér gert, Collins,
ég get aldrei þakkað yður.
Hann gekk til hennar, hneigði
sig og kyssti á hönd hennar í
kveðjuskyni og var óðara farinn.
Karólína, sem fór niður með
honum, gaf sig þegar á tal við
þeriitf jgí»^,et úpp ltojn, Þernan
var að kveikja upp í arninum.
Karólína bað hana að fara. Hún
vildi ver ein.
Anni var sonur Gastons!
Engin önnur hugsun komst að,
en hún get ekki dvalist við þær
hugsanir, sem skotið hafði upp í
huga hennar, er hún sá myndina,
því a ðenn var bjöllunni hringt.
Maður nokkur, óhreinn og órak-
aður, stóð fyrir dyrum úti. Hann
rétti henni bréf og hraðaði sér
burt án þess að mæla orð af vör-
um. Hún opnaði það ekki fyrr en
hún var komin upp aftur. Á örk
inni stóð ekkert nema þetta:
Jósefína Beauhamais býst við
yður klukkan hálffjögur.
Hún kallaði á Jeanette til þess
að hjálpa sér að klæða sig. Jean-
ette sagði henni nú, að lögreglan
hefði hótað henni að senda hana
í flokki hórkvenna handa her-
mönnunum í hersveitunum í
Egyptalandi og einnig hefðu þeir
hótað að pynda hana.
— Hvers vegna? Hvað voru
þeir að reyna að veiða upp úr
þér?
— Þeir neyddu mig að lokum
til þess að segja það, sem ég
vissi um skrínið, sem ég heyrði
yður tala um við Thiebault hers-
höfðingja.
— Jæja, þér vitið þá, að það
var ólæsilegt. Nei, grátið ekki
Jeanette, ég er ekkert reið.
Hún var svo glöð nú, eftir
komu Collins — eftir að hún
hafði séð myndina, sem hann
málaði af Anna litla, að hún gat
ekki verið neinum reið.
— Já, kvenborgari. Yðar er
beðið, sagði dyravörðurinn. Ger-
ið svo vel og ganga yfir húsa-
garðinn, ég get því miður ekki
farið með yður, því að ég býst
við konsúlnum þá og þegar.
Gangið bara upp tröppurnar.
Karólína hlýddi. Hún leit ekki
í kringum sig, en hún gat ekki
annað en veitt athygli stórum
dragkistum sem þarna voru alls
staðar, vafalaust eign hins nýja
valdhafa. Hún mætti þjónustu-
fólki, sem leiðbendi henni. Og
loks var hún leidd fyrir hús-
freyju.
— Vilduð þér tala við mig?
var spurt kæruleysislega.
Jósefína Bonaparte sat við
saugpbE^ípantar glitruðu í hári
hennar.
— Mér barst bréf, þar sem
gefið var til kynna, að ég ætti að
fara hingað, sjálfsagt vegna við-
ræðu sem ég átti í gærkvöldi við
lögreglumálaráðherrann.
— Já, við lögreglumálaráð-
herrann. Hann bað mig að veita
yður áheym, en seinna sendi
hann mér boð um, að óþarft
væri að við ræddumst við. Mér
þykir leitt, að þér skylduð verða
fyrir þessu ónæði ....
Karólína kvaddi hana og lagði
af stað í áttina til dyranna, er
maður nokkur kom inn askvað-
mm*
mmm
andi. Hann var klæddur hers-
höfðingjabúningi.
— Jósefína, hvar er Roustan?
Ég kem heim dauðþreyttur og
ætla í bað og hann fyrirfinnst
hvergi. Allir segja, að þú . . .
Hann þagnaði, er hann kom
auga á Karólínu.
— Hver er þessi kona?, spurði
hann.
Jósefína t r staðin upp.
— Það er konan, sem við
töluðum um er við sátum að
morgunverðarborði, sú, sem
Fouché hafði sagt okkur frá.
Hún var að fara ....
Lösfræðistörf Innheimtur
Fasteignasala
Hermann G. Jónsson hdl.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Skjólbraut I, Kópavogi.
EINAR SIGURÐSSON, hdl
Málflutnlngur — Fastelgnasala
Ingólfsstræti 4. — Slmi 16767.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa
Óðinsgötu 4. Siml 11043.
PÁLL S. PÁLSSON
*'irét*arlögmaðui
Bergstaðastræti 14.
Slmi 24200
Gústaf Ólafsson
hæstaréttarlögmaður
Austurstrætl 17 . Slml 13354
Nærfatnaöur
Karlmanna
og drengja
fyrirliggjandi.
L H Muiier
■
T
A
R
Z
A
N
ALL THKOUSH THE NIGHT, THE
VU7U HA.TIVES CAROUSEPt ANF
P’ANCEC7 A50UT THEIK. I70L,
WAITING FOZ THE HOUK OF
SACKIFICE! -----*
jMuÆ
Lni'.ad Fenture Syndicat*. Ire.!
c-uwo
THE afe-man also
WAITE7, NEfcVOUS ANF
AFFSEHENSIVE—ö-lí'-Wl
Alla nóttina hoppuðu og döns-
uðu VUDU mennirnir í kringum
líkneskið og biðu þolinmóðir
morgundagsins. Tarzan beið hans
einnig, taugaóstyrkur og skelfdur
Þegar dagaði kom varðmaður til
hans: „Kondu“ sagði hann, „nú
áttu að mæta SABOR“.
Börnin eru orðin svo stór að
við verðum að kaupa handa þeim
stóla — —
Rafglit
Nýjar skraut og
rafmagsnvörur
daglega.
Hafnarstræti 15
Sími 12329
ÍBÚÐIR
önnumst kaup og sölu á hvers
konar fasteignum. Höfum kaup-
endur að fokheldu raðhúsi, 2ja,
3ja og 4 herbergja íbúðum.
Mjög mikil útborgun.
Fasteignasalan
Tjarnargötu 14.
Sími 23-987.
ÓDÝR
BARNA NÆRFÖT
SELJUM í DAG:
Ford ’58 original, VW
62 og ’63. - Einnig
ýmsar fleiri teg. bif-
reiða.
VANTAR:
Nýlegan Caravan eða
Taunus í skiptum fyr-
ir Caravan ’56.
SKOLAGATA 55 SÍMl 15»U