Vísir - 21.02.1963, Síða 1
VISIR
53. árg. — Fimmtudagur 21. febrúar 1963. — 44. tbl.
Ummæli Eysteins Jónssonar
„Ég vil ekki trúa því, að þetta mál liggi að lokum þannig fyrir, að
um tvennt verði að ræða fyrir íslendinga; að ganga undir ákvæði í
þessum efnum, sem er ómögulegt fyrir litla þjóð að ganga undir, eða
hrekjast alveg úr öllum tengslum við þessi lönd. Ég heid þvert á
móti, að 238. grein í Rómarsáttmálanum sé sett þar inn til þess að þau
lönd þurfi ekki að slitna úr tengslum, sem ekki geta gengið inn á
grundvallaratriði Rómarsamningsins. Og ég trúi því að þetta eigi eftir
að sýna sig í framkvæmd, ef við bara förum gætilega í þessu máli,
flönum ekki að neinu og flýtum okkur ekki of mikið.
Eysteinn vildi aukanðild að EBE
★ Fyrir réttu ári taldi
Eysteinn Jónsson for-
maður Framsóknar-
flokksins aukaaðild að
Efnahagsbandalaginu,
byggða á 238. grein
Rómarsamningsins,
hentugustu leiðina fyrir
íslendinga. Ber meðfylgj
andi tilvitnun í ræðu
Eysteins þessu órækt
vitni.
k Þessa ræðu flutti Eysteinn
á umræðufundi Frjálsrar menn-
ingar 27. janúar 1962. í henni
kvaðst Eysteinn neita að trúa
því að ekki væru aðrar leiðir
til fyrir íslandinga en gangast
undir allar skyldur Rómarsamn-
ingsins, þ. e. ganga að fullri að-
ild eða vera án tengsla við
bandalagið. Þriðja leiðin hlyti að
vera raunhæf fyrir okkur, sú
sem 238. grein samningsins ger
ir ráð fyrir. Og sú grein fjallar
um aukaaðild ríkja að banda-
laginu.
★ Tíminn linnir ekki árásum
á ríkisstjórnina fyrir að hafa
gert ráð fyrir því að aukaaðild
að Efnahagsbandalaginu kæmi
til greina, ásamt tollasamnings-
Ieiðinni. Segja framsóknarmenn
nú að með því að hugleiða auka-
aðild að bandalaginu hafi rfkis-
stjómin viljað stefna sjálfstæði
landsins í hættu og undirgang-
ast ýmsar vafasamar skuldbind-
ingar varðandi erlent fjármagn
og erlent vinnuafl. Eysteinn
Jónsson hefur haldið uppi þess-
um ásökunum bæði á þingi og
í Tímanum. Réttara hefði verið,
segir Eysteinn, að halda sér ein
ungis við tollasamningsleiðina,
eins og Fra:nsól«narflokkurinn
hefur frá öndverðu lagt til.
★ Þessar fullyrðingar Eysteins
og Tímans eru óvenjulegur
blekkingavaðall. Sannleikurinn
er sá, eins og þessi um-
mæli Eysteins sjálfs sýna ótví-
rætt, að allt fram á síðasta miss
eri taldi Framsóknarflokkurinn
aukaaðild fyllilega koma til
greina af hálfu íslands, ekki sið
ur en tollasamning. Það var að-
eins þegar nær dró kosningum,
að flokkurinn söðlaði alveg yfir
og reynir nú að ráðast á stjóm-
arflokkana fyrir það sem fram-
sóknarmenn héldu sjálfir ákaf-
ast fram í fyrra!
★ Slikur málflutningur dæmir
sig sjálfur. Hið eina skynsam-
lega og rétta var að gera það
scm ríkisstjórnin gerði: að bíða
átekta og kanna hverjir kostir
og gallar fælust í hinum tveim-
ur huganlegu leiðum, toilasamn-
ingi og aukaaðild.
Kjötmiðstöð borgar-
innar / uppsiglingu
Á næstu árum mun á
■Kirkjusandi rísa mikil mið-
ÓFREMDARÁSTAND
SCDVARNAMÁLA
Geðverndarfélag íslands hef-
ur nú verið endurvakið. Stjórn
þess hafði fund með blaða-
mönnum í gær til þess að vekja
athygli á því ófremdarástandi,
er hún taldi ríkja hér á Iandi í
málefnum geðveiki -og tauga-
sjúklinga. Taldi stjóm félagsins
það vera algert lágmark að hér
væru sjúkrarúm fyrir 500 geð-
veikisjúklinga, en eins og sakir
standa er rúm fyrir 240 á
Kleppi, þótt þar séu reyndar
270 sjúklingar, og einnig eru
30—35 sjúkrarúm í Farsóttar-
húsinu, sem hefur skotið skjóls-
húsi yfir geðveiki- og tauga-
sjúklinga. Þá telur Geðvemdar-
félagið brýna nauðsyn bera til
að byggja hressingarhæli eða
endurþjálfunarhæli fyrir geð-
sjúklinga, sem tekizt hefur að
lækna. Hefur félagið á stefnu-
skrá sinni að komið verði upp
slíku hæli. Forráðamenn félags-
ins telja að málefni geð- og
taugasjúklinga hafi of Iengi set-
ið á hakanum. Formaður Geð-
verndarfélags íslands er Krist-
inn Bjömsson sálfræðingur.
Myndin sýnir Kleppsspítalann, sem byggður var fyrir 55 árum.
stöð alls kjötinnflutnings
til Reykjavíkurborgar, kjöt
vinnslu borgarinnar og
dreifingar í kjötverzlanir.
Borgarráð hefur fyrir sitt
leyti nýlega staðfest end-
urnýjaðan skipulagsupp-
drátt af því svæði, sem ætl-
að er undir byggingar kjöt
miðstöðvarinnar. Jafn-
framt hefur borgarráð sam
þykkt að Halldór H. Jóns-
son, arkitekt, verði ráðinn
til að teikna kjötskoðunar-
hús Reykjavíkurborgar, en
þar mun fara fram allt
gæðamat á kjöti, sem flutt
er til Reykjavíkur.
Þá hefur borgarráð heimilað Sam
bandi íslenzkra samvinnufélaga að
hefja byggingarframkvæmdir vegna
kjötmiðstöðvarinnar. Þá má búast
við að Sláturfélag Suðurlands muni
við fyrsta tækifæri hefja byggingu
á frystihúsi á þessu svæði. Sömu-
leiðis má gera ráð fyrir að kjöt-
verzlanir í Reykjavík og Verzlana-
sambandið muni standa fyrir bygg-
ingarframkvæmdum á svæði kjöt-
miðstöðvarinnar.
Nýlega fór borgarstjórinn I
Reykjavík þess á Ieit við Félag
kjötverzlana í Reykjavlk, Verzlana
sambandið, Sláturfélag Suðurlands
og Samband íslenzkra samvinnufé-
laga að þessi samtök tilnefndu full-
trúa til viðræðna við borgaryfirvöld
Framh. á bls. 5.
Innbrot
1 nótt var innbrot framið í efna-
Iaugina Hjálp á Bergstaðastræti
28.
Vitað var í morgun að þar hafði
verið stolið 230 krónum úr pen-
ingakassa. Hins vegar lá ekki ljóst
fyrir hvort stolið hafði verið ein-
hverjum fatnaði eða ekki_ Það er
ekki unnt að sjá fyrr en tekið er
að spyrjast fyrir um fötin af eig-
endunum.
Lögreglan telur Iíklegt að þarna
hafi unglingar verið að verki.
36 umferðarslys
í janúarmánuði s.l. urðu 36 um-
ferðarslys f Reykjavík og næstu
grund. Þar af urðu tvö banaslys.
Þetta er nær þriðjungi hærri slysa-
tala heldur en á sama tíma í fyrra,
því þá urðu umferðarslysin 26 tals-
ins og af þeim 1 dauðaslys.
Fyrir utan banaslys sem urðu í
s.l. janúarmánuði hafa sum hin slys
in verið býsna alvarleg og sumir
hinna slösuðu enn rúmliggjandi I
sjúkrahúsum. Eitt mesta slysið
varð er jeppabifreið valt með 7
manns fyrir neðan Hveradali og
allir slösuðust meir eða minna
Tveir þeirra eru enn f sjúkrahúsi.
í þessum sama mánuði urðu 208
bifreiðaárekstrar í umdæmi Reykja
víkur og er það nokkru færra held-
ur en í janúar í fyrra. Þá urðu
224 árekstrar.
Eftir því sem Kristmundur Sig-
urðsson varðstjóri f umferðardeild
rannsóknarlögreglunnar tjáði Vísi
hefur þetta bil þó stækkað enn til
nokkurra muna það sem af er þess
um mánuði. L„nnig að nú er 40—
Framh. á bls. 5.