Vísir - 21.02.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 21.02.1963, Blaðsíða 2
z V1SIR . Fimmtudagur 21. febrúar 1963. Frá hinum hörkuspennandi leik milli ÍR og KR í gær. Einar Bollason KR berst við harðnsnúinn ÍR-ing. * í gærkvöldi fóru fram tveir leik- ir i meistaraflokki karla á körfu- knattleiksmóti íslands. — Ármann vann ÍS með 51:44 og ÍR vann nauman sigur yfir KR eins og fyrr segir. Ármenningar áttu allgóða byrj- un og skoruðu fyrstu 6 stigin. Er leikar stóðu 16:6 fyrir Ármann var eins og stúdentarnir áttuðu sig og hélzt leikurinn jafn úr því og lauk fyrri hálfleik með 31:22 fyrir Ár- mann. í seinni hálfleik sóttu stúd- entar sig og tókst um tíma að minnka bilið niður í þriggja stiga mun. Ármenningar sóttu sig held- ur, en síðustu mínúturnar áttu stúdentarnir og tókst þeim að vinna seinni hálfleikinn með tveggja stiga mun. Ármenningar unnu leikinn eins og fyrr segir með sjö stiga mun, 51:44. Stúdentarnir geta verið vel ánægðir með þessa útkomu og hefði þeim tekizt fyrr að finna hvað var að leik þeirra í upphafi er ekki að vita hver úrslit- in hefðu orðið. Ármannsliðið var heldur slappt og notuðu þeir mjög iila hæð sinna stóru manna, auk Skornði 57 stig gegn 54 Unglingalandsliðið f körfuknatt- leik hefur enn ekki fengið botn í hvenær Evrópukeppni unglinga- landsliða fer fram. Kemur til greina að keppnin fari fram í vor, eða i jafnvei, sem ekki er ósennilegt, í I haust. Hins vegar er ákveðið að mótið i fari fram í París. Einnig mun á- j kveðið að lsland verði meðal þátt- j tökuliðanna, en drengirnir borga < ferðir sínar sjálfir, en þær eru! dýrar mjög, sem kunnugt er. ísland hefur verið skipað í riðil I með Luxemburg, Svfþjóð, írlandi1 og Frakklandi. „Áhyggjuefni okkar er samt að keppnin fari fram í haust, þvf yfir-! leitt er miklum vandkvæðum bund- i að æfa á veturna,“ sagði Bogi Þorsteinsson við okkur um þetta. Unglingalandsliðið æfir nú af kappi undir handleiðslu Helga Jó- hannssonar. UNGLINGALANDSLIÐIÐ 1963. — Með í Evrópukeppni unglinga- landsliða í París í vor eða haust. *T ÍR vann KR naumlega þess sem þeir létu Sigurð Ingólfs- son sitja hjá mestan hluta seinni hálfleiks, en hann var sá eini, sem virtist sjá götin í vörn stúdentanna í fyrri hálfleik. Stigin f leiknum skoruðu af hálfu Ármenninganna: Davíð 11, Hörður 8, Sigurður Ing- ólfss. 8, Ingvar 4 og Birgir 20. Hjá stúdentunum skiptust stigin þannig: Sigurgeir 10, Edgar 10, Jón Eysteinsson 8, Hafsteinn 8, Hrafn 6 og Viðar 2. Mjög jöfn skorun. Seinni leiksins var beðið með nokkurri eftirvæntingu meðal á- horfenda, sem voru óvenjumargir. Leikurinn var tilþrifalaus framan af, og gætti nokkurs taugaóstyrks f báðum liðum, einkanlega hjá ÍR- ingunum, sem voru greinilega ekk- ert of vissir um sigur sinn. lR seig þó jafnt og þétt á og var ekki Iaust við að KRingar yllu nokkr- um vonbrigðum með leik sfnum, sem var heldur fálmkenndur og var sóknarleikur þeirra með öllu bit- laus. Fyrri hálfleik lauk með 25: 16 fyrir ÍR, sem er óvenjulág stiga- tala hjá þeim liðum, sem almennt eru talin vera bezt leikandi. 1 seinni hálfleik sóttu ÍRingar sig að mun og komust í 37:20. Þótti þá mörgum sem sýnilegt væri, að ÍR myndi bursta KR. Ekki lyftist brún in á viðstöddum KRingum er leik- ar stóðu 51:31 fyrir ÍR. En þá skeði undrið, í stað þess að brotna niður sóttu KRingar f sig veðrið og það svo, að um munaði. Skoruðu þeir hvorki meira né minna en 17 stig í röð, án þess að ÍR fengi rönd við reist, þar af 9 úr vfta- köstum, og bendir það á heldur grófan leik af hálfu ÍR. Leiknum lauk með 57:54 fyrir ÍR og svo var að þeim þrengt síðustu mfnúturnar, að þeir treystu ekki öðrum en Þor- steini Hallgrfmssyni fyrir boltan- um og lék hann einn um völlinn sfð ustu sekúndurnar. Hárréttur leik- ur, þar sem engu er vogandi gegn slíku liði sem KR er, þegar það kemst f gang. ÍR má þakka sfnum sæla fyrir að hafa ekki tapað þessum leik. Leikur KR í fyrri hálfleik var mjög lélegur, langt undir getu þeirra. Þeir voru allan fyrri hálfleikinn að reyna að setja upp kerfi, en tókst það ekki og töpuðu þar með mögu- leikanum á sigri. Þeir réðu heldur ekkert við Guðmund Þorsteinsson, Þórólfur skulluði, en Eins og greint var frá á mánu- daginn, vann St. Mirren Aber- deen í eina leiknum, sem fram fór f Skotlandi um sfðustu helgi — en sigurmark liðsins skoraði Jones innherji. Aberdeen var óheppið að missa einn leikmanna sinna út af snemma í Ieiknum, en sótti þó mikinn hluta af leiknum, en vöm St. Mirren lék frábærlega á snæviþöktum Pittodrievellin- um. Segja skozk blöð að St. Mirr- en sé nú mikið að breytast, þreytusvipurinn frá í tfð Flav- ells er horfinn en hiflp nýi fram kvæmdastjóri hafi stórgóð áhrif á leikmennina. Aðeins 7000 áhorfendur sáu ieik liðanna, en það er minnsta aðsóknin á Pittodrie í vetur. sem skoraði 24 stig í leiknum, hreinlega vann hann fyrir ÍRinga. Þorsteinn Hallgrímsson skoraði 11 stig og átti heldur slappan leik og óvenjugrófan. Af KRingum voru stigahæstir Einar Bollason með 20 stig og Guttormur með 17. Næsta leikkvöld verður þriðju- daginn 26. febrúar og eigast þá við ÍR og Stúdentar, KR og KFR, og má þar búast við jöfnum leik. Þss. Meistaraflokks- keppni TBK lokið Meistaraflokkskeppni félagsins er nýlokið. Meistarar félagsins urðu sveit Tryggva Gíslasonar, auk hans eru í sveitinni Ólafur Magnússon, Magnús Ingimarsson, Ólafur Gutt- ormsson, Hans Nflsen, Páll Bergs- son. Önnur varð sveit Jóns Magn- ússonar, sem haldið hefur þessu sæti 7 sinnum í röð. Þriðja varð sveit Eiðs Gunnars- sonar, fjórða sveit Rósmundar Guðmundssonar, fimmta sveit Dag- bjartar Grímssonar, sjötta sveit Ragnars Þorsteinssonar. — Þessar 6 sveitir skipa meistaraflokk félags ins. Auk þess unnu sveitir Tryggva, Eiðs og Rósmundar sér rétt til þátt töku í landsmóti meistaraflokks. Sveit Jóns átti rétt í landsliðsflokki frá sfðasta landsmóti. — Sveit Tryggva hefur unnið þetta mót með miklum glæsibrag, og finnst mönnum að sveitin hefði átt skilið rétt til þátttöku í landsliðsflokki,, sérstaklega þegar framundan er val í Iandslið. N.k. laugardag kl. 2 hefst Barómeterkeppni hjá félaginu sem eru þrjár umferðir. Nokkur sæti eru enn laus og getur bridge áhugafólk, sem áhuga hefði á þátt töku haft samband við Ragnar Þor steinsson f síma 24425. KEPPA í PARÍS í VOR EÐA HAUST

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.