Vísir - 21.02.1963, Síða 16
Fimmtudagur 21. febrúar 1963.
Bezta neyðarsenditækið
— sinnar tegundar
Eins og lesendum Vísis er
kunnugt af frétt frá skipaskoð-
unarstjóra, sem nýlega birtist
hér í blaðinu, eru nú stöðugt
að koma á markaðinn ný neyð-
arsenditæki, sem ætluð eru til
notkunar i gúmmíbátum er
skipshafnir hafa orðið að yfir-
gefa skip sfn. Fylgzt er af mikl-
um áhuga með þessum tækjum
hjá íslenzkum aðiium sem
vænta má meðal fiskveiðiþjóð-
ar og hafa skipaskoðunin, land
helgisgæzlan og Landsíminn
unnið í sameiningu að prófun
//
þeirra tækja, sem fram hafa
komið að undanförnu. Nú al-
veg nýverið kom á markaðinn
norskt neyðarsenditæki, sem
ekki er að vísu taltæki, en
nokkurs konar radíóviti og al-
gerlega sjálfvirkt, svo að eng-
inn vandi er að fara með það
og er það svo mörgum kostum
búið að Páll Ragnarsson hjá
skipaskoðunarstjóra sagði í við-
tali við Vísi í morgun að það
væri tvímælalaust bezta neyð-
arsenditæki sinnar tegundar,
Framh. á bls. 5.
KomiB mei eldim
/ slökkvistöiimi
.........................................................
Myndin sýnir 4 aðalhluta neyðarsenditækisins, og er búið um þá í vatnsþéttu hylki, sem flýtur, ef
það fellur í vatn. — 1) Loftnetsstöng. 2) Rör, sem stöngin er fest f. 3) Sendirinn. 4) Jarðsamband.
í staðinn fyrir að kveðja slökkvi
liðið á vettvang svo sem venja er
til þegar eld ber að höndum var í
morgun komið með eldinn í slökkvi
stöðina og hann kæfður þar.
Málsatvik eru þau, að í morgun
þegar einn borgari Reykjavíkur
kom að bfl sínum og ætlaði í hon-
um á vinnustað, var hann fullur
af reyk og eldur í bakhlið fram-
sætisins. Maðurinn lét sér þó í
engu bregða heldur settist undir
honum, og ók allt hvað af tók nið-
honum, og ók allt hvað af tók n ð-
ur að slökkvistöð í Tjarnargötu.
Þar var eldurinn kæfður.
Slökkviliðsmenn töldu að kvikn-
að hafi í bílnum í gærkvöldi, áður
en skilið hafi verið við hann. Hafi
neisti fallið úr öskubakka í bakhlið
framsætisins og komizt í fóðrið.
Þar hafi eldurinn svo mallað í alla
nótt, en ekki náð að breiðast neitt
út sökum loftleysis. Sætið var að
vonum mikið skemmt, en um aðr-
ar brunaskemmdir var ekki að
ræða.
V IMtf'W*?!'
Afli
Skagabáta
Akranesbátar á Iinu öfluðu
heldur betur í gær en í fyrrinótt.
Alls voru 15 bátar á sjó og var
afli þeirra samtals 104 lestir.
Skirnir kom inn með 16.7 tonn,
en þetta var þriðja ferð hans með
þorskanót.
DRANGAJÖKULL
LESTAR FREÐSÍLD
Drangajökull er á Akranesi og
lestar 300 tonn af freðsíld.
Einangrua Siglufjarðar rofin:
Jarðgöngin sprengd næsta ár
Vísir hefur aflað sér öruggr-
ar vitneskju um það, að ein-
angrun Siglufjarðar í samgöngu
niálum verði rofin innan
skamms. Þar með verði þátta-
skil í sögu þcssa mikla og sér-
stæða sfldarbæjar. Ákveðið hef-
ur verið að fullgera veginn að
fyrirhuguðum jarðgöngum gegn
um fjallið Stráka á þessu ári
og er gert ráð fyrir að sú veig-
arlagning kosti 3 — 4 milljónir
króna, en vegur er kominn að
fyrirhuguðum jarðgöngum Siglu
Allt upp í 40% hækkun:
Hvað felst í hinum
fordæmdu tillögum
■>
fjarðarmegin. Þá hefur einnig
verið ákveðið að hefja á þessu
ári tæknilegan undirbúning að
því að sprengja jarðgöngin gegn
um fjallið. Loks hefur verið á-
kveðið að jarðgöngin sjálf verði
gerð á næsta ári, en þau verða
um 800 metra löng, Iengstu jarð
göng á íslandi. Það verk mun
verða boðið út svo að eigi er
unnt að segja hvaða aðili tekur
það að sér.
Þetta munu vera beztu fréttir,
sem unnt er að færa Siglfirð-
ingum. Það er eigi aðeins að
hinar örðugu samgöngur á landi
hafi háð vexti hins mikla at-
vinnulífs í bænum, heldur er
þeim kunnugt um það, sem
þekkja til á Siglufirði, að ein-
angrunin og innilokunin mest-
an hluta ársins hefur stuðlað
að því að menn flyttust þaðan
búferlum, sem þeir hefðu ella
eigi gjört.
Óhætt er að fullyrða, án þess
að halla á aðra, að Einar Ingi-
mundarson, bæjarfógeti og al-
þingismaður á Siglufirði, hafi
beitt sér manna mest fyrir því
að tryggja öruggan framgang
þessa þýðingarmikla samgöngu-
máls Siglfirðinga og nálægra
byggðarlaga.
Undanfarið hefur Þjóðviljinn
fagnað því sem kjarabót, að
Dagsbrúnarmenn og annað lág-
launafólk hefur fengið 5% kaup
hækkun úr hendi vinnuveitenda.
Hins vegar lýsir blaðið andúð
sinni á launatillögum rikisstjórn
arinnar og telur þær vera smán-
arhoð til ríkisstarfsmanna. Voru
á laugardag birt viðtöl í Þjóð-
viljanum við ýmsa forustumenn
opinberra starfsmanna, þar sem
tillögurnar eru fordæmdar. I-Iér
fer á eftir listi yfir 14 stéttir
opinberra starfsmanna, þar sem
greint er frá hverrar hækkunar
þær njóta samkvæmt launatil-
lögum ríkisstjómarinnar um-
fram núgildandi launalög. í hópi
þessara stétta eru þeir sem mest
hafa fordæmt tillögurnar.
Hækkun Hækkun
byrjunarl. lokal.
41% 27%
29% 9%
37% 15%
54% 22%
28% 13%
46% 19%
48% 27%
58% 30%
kennarar 52% 29%
Prestar 52% 31%
Skólastjórar stærstu gagnfrsk. 31% 43%
Prófessorar 32% 39%
Borgardómarar 26% 32%
Ráðuneytisstjórar 33% 40%
Iðnkonur
Vélritunarstúlkur
Bréfberar
Hjúkrunarkonur
Lögregluþjónar
Barnakennarar
Ljósmæður
Fréttam. útvarps
Menntaskóla-
í þessum tillögum fels meiri
hækkun til opinberra starfs-
manna en þeir hafa áður hlotið.
Hitt er þó meira um vert, að
ríkisstjómin hefur veitt ríkis-
starfsmönnum samningsrétt og
kjaradóm til að skera úr launa-
ágreiningi, ef samningar takast
ekki.
Þróttur fær lói
vii Borgartúnii
Vörubílstöðin Þróttur hefur nú
fengið nýja lóð undir afgreiðslu
og skrifstofuhús við Borgartún. —
Lóðin er næst fyrir austan brota-
járnsport Sindra. Er þarna upp-
fylling og landauki, en út við sjó-
inn mun Sætún liggja meðfram
ströndinni. Verður lóð Þróttar milli
Borgartúns og Sætúns.
Þróttur hefur starfað síðustu ár
á stórri lóð á horni Rauðarárstígs
og Skúlagötu, en lóðarleiguréttind-
in munu renna út eftir tvö ár og
munu Þróttarmenn telja nauðsyn-
legt að fá nýtt starfssvæði, þvi að
stórbygging nýju lögreglustöðvar-
innar er nú að rísa á næsta leiti
og verður æði plássfrek. Hluti af
grunnplötu hennar hefur þegar
verið gerður inni á lóð Þróttar.
Byggingarframkvæmdir við stöðv
arhús Þróttar verða væntanlega
hafnar I sumar. Er verið að ganga'
frá teikningum. Þarna verður af-
greiðsla stöðvarinnar, skrifstofa,
aðstaða fyrir félagsstörf, benzín-
afgreiðsla, þvottasvæði o. fl.