Vísir - 05.03.1963, Síða 16
VÍSIR
Þriðjudagur 5. marz 1963.
.-,ym.
Lasleiki eftir
bóíusetningu
Það hefur nokkuð borið á því
hjá fólki að það kenni sér lasleika
eftir bólusetningu. Vísir hafði því
samband við skrifstofu borgarlækn
is og spurðist fyrir um þetta. Hér
er um að ræða smá krankleika,
sem oft fylgir á eftir bólusetningu
og hefur þessi bólusetning enga
sérstöðu að þvi leyti. Menn verða
máttfarnir, handleggurinn bólgnar
og sumir fá hita. Lasleiki getur
staðið allt frá nokkrum klukku-
stundum og upp £ tvo daga. Ekki
verða þó nærri allir veikir.
BREFBERAR OC POSI'■
Póststjórnin í Reykjavík
hefur gefið út tilkynningu
um nýja tilhögun póstút-
burðar í höfuðborginni, en
bréfberar hafa mótmælt
henni og hótað uppsögn-
um. Hafa tveir þeirra látið
verða af hótuninni.
Áður er hin nýja tilhögun var
ákveðin bar sérhver bréfberi út £
eitt hverfi dagiega, tvisvar á dag.
Var reiknað með að það tæki allan
fastan vinnutfma hans, frá kl. 8.30
til 12 og 13.30—17 að viðbættum
hálftfma £ eftirvinnu. Eftir það
gat staðið svo á, að hann yrði að
STJÓRHIN DEILA
fara £ annað hverfi til að bera þar'
út póst f forföllum annars bréf-
bera og voru þá greidd full eftir-
vinnulaun fyrir það.
Nú eru forföll hins vegar svo
mikil að póststjórnin telur sig ekki
hafa mannafla til að halda þessu
skipulagi uppi i þvi skyni að póst-
urinn verði kominn til viðtakenda
á skikkanlegum tíma. Hefur því
■ verið ákveðið ný tilhögun til bráða
birgða.
Er hverjum bréfbera aðeins ætl-
Framh. á bls. 5.
Vegir á Austurlmdi lokast
Vegir halda enn áfram að skemm
' ast sökum hlákunnar og hiýveðurs
um allt land.
Á Austurlandi eru vegir hvað
verst farnir, enda eru þeir velflestir
lokaðir fyrir aðra umferð en jeppa.
Nýbúið er þó að ryðja Fjarðarheiði
og þykir það tíðindum sæta að hún
kuli fær bifreiðum í marzbyrjun.
Norðurlandsleiðin er enn lokuð
Langadal, þar eð Blanda flæðir
'fir veginn. Svinvetningabraut er
parin, en hún er orðin mjög við-
-járverð og þolir illa mikla umferð.
Austur í Rangárvallasýslu hafa
umir vegir lokazt, en þó engar
iðalleiðir.
Eyjafirði hafa orðið lítilsháttar
egaskemmdir af völdum vatna-
vaxta, en gert hefur verið við þá
vegi jafnharðan, svo að ekki hefur
komið til teljandi umferðartrufl-
ana. Það hefur og hjlápað mikið
að síðustu daga hefur ekki komið
dropi úr lofti, en verið 6—12 stiga
hiti. Fyrir bragðið eru vegir miklu
þurrari en ella og hafa ekki vaðizt
eins sundur. Öxnadalsheiði er ágæt
yfirferðar öllum bílum.
í nágrenni Reykjavíkur hafa
vegir nokkuð spillzt og einkum var
kvartað yfir Kjalarnesveginum í
morgun. Talið að hann væri mjög
ótraustur orðinn og jafnvel sums
staðar komið niður úr klaka. Hann
var þó enn fær öllum bifreiðum
og í morgun voru gerðar ráðstaf-
anir til að gera við hann. Þá voru
og sendir vegheflar inn í Hval-
fjörð til að laga veginn þar. Víðar
eru vegir mjög ótryggir orðnir og
sums staðar komið niður úr klaka.
Vegir um afrétt-
ar- og beitilönd
Búnaðarþing hefir samþykkt og
afgreitt eftirfarandi ályktun varð-
andi jeppabrautir um beitilönd:
MikiS unnríki hjá
Akureyrurlæknum
„Búnaðarþing felur stjórn Bún-
aðarfélags íslands að koma á fram
færi við Alþingi ósk um, að tryggð
ur verði fjárhagsstuðningur til
j þess að ryðja vegu um afréttar-
og beitilönd, sem létti fjárflutn-
i inga og bæti aðstöðu sveitarfél-
; aga til hagnýtingar beitilandanna.
Þórarinn Kristjánsson hafði sent
Búnaðarþingi erindi um þetta efni
, og tók Allsherjarnefnd þess það
til meðferðar.
-<•>
Georges Bidault. Buckinghamhöllin í baksýn.
Akureyri 1 morgun.
Læknar á Akureyri hafa verið á
þönum undanfama daga við að
bólusetja fólk, jafnt starfshópa á
vinnustöðum sem heilar fjölskyld-
ur.
Hafa læknarnir verið á ferðinni
frá morgni til kvölds og farið hús
úr húsi með stóra potta með bólu-
efni og sprautur. Hafa þeir bólu-
sett mörg hundruð manns síðustu
dagana.
Nokkur brögð eru að því að þeir
sem bólusettir hafa verið, einkum
böm, hafa veikzt af bólusetning-
unni og fengið allt upp í 40 stiga
hita. En hitasóttin varir venjulega
ekki nema skamma hrið, oftast að-
eins eina nótt eða sólarhring. Full-
orðið fólk verður aftur á móti
aumt £ handleggnum, sem bólu-
settur hefur verið, fyrst á eftir.
Byrjað er að verða vart inflú-
enzu á Akureyri, en aðeins £ litlum
mæli og ekki vitað til að hún hafi
lagzt þungt á fólk. I skólum bæj-
arins hefur hennar ekki gætt svo
neinu nemur, enda búið að bólu-
setja allan þorra nemenda.
Fáir vilja myria De Gaulle
— en hunn fær
upp ú móti
æ fleiri
ser
Frönsk blöð birta þessa j að hann hafi verið í Lond-
mynd af Georges Bidault | on að undanförnu og not-
með Buckinghamhöll í bak I ið „verndar Scotland
sýn, en þv! er haldið fram, j Yard“.
mWi
VERÐURINGIALÞJOÐ-
LEGUR SKÁKMEISTARI?
Þaö hefur flogið fyrir að Ingi
R. Jóhannsson muni fá titilinn
alþjóðiegur skákmcistari ef hon
um tekst að sigra störmeistar-
ann Friðrik Ólafsson f einvigi
þeirra, sem nú stendur yfir, um
skákmeistaratitil Reykjavfkur.
Ingi hefur þegar skapað sér
verulega möguleika til sigurs
þar sem hann hefur nú einn og
hálfan vinning eftir tvær skák-
ir af fjórum. Verður Friðrik
þvi að vinna báðar skákirnar,
sem eftir eru til að bera titil-
inn úr býtum.
Fylgzt er með skákeinviginu
af athygli, ekki aðeins hérlend-
is heldur einnig erlendis og
stendur það f sambandi við
þann möguleika að Ingi verði
gerður að alþjóðlegum skák-
meistara ef hann sigrar Frið-
rik. Það er jafnvel sagt að Inga
muni nægja jafntefli til að fá
titilinn.
Það var vikuritið Minuta, sem
fyrst birti myndina hér að ofan.
Fréttaritari Parfsarblaðsins L’Aur-
ore segir, að brezka lögreglan hafi
leyft Bidault að fara um að vild,
þar til Argoud fyrrverandi hers-
höfðingja var rænt i Miinchen, —
síðan hafi Bidault ekkert farið
nema með leynilögreglumenn á hæl
um sér.
Ekki er vitað með vissu hvort
Bidault er enn í London. Að ým-
issa ætlan stóð franska öryggis-
lögreglan að baki mannráninu £
Miinchen — og birtar hafa verið
fréttir um, að ætlunin hafi verið
að ræna Bidault með líkum hætti
og Argoud.
I sumum fréttum kemur nú fram
að samtökin gegn De Gaulle i hern
um og annars staðar séu ekki eins
víðtæk og til skamms tíma var ætl-
að. Hér er átt við þá, sem skirrast
ekki við að drepa hann, gefist tæki-
færi til, — þessi hópur er ekki
sagður fjölmennur. Hins vegar sé
vaxandi andúð gegn stefnu varð-
andi viðskipta- og Evrópumálin og
hefur hann reitt verkalýðinn til
reiði — að sögn Ieiðtoga
Kaþólska verkalýðssambands-
ins, með þvi að gefa út tiiskip-
un um heimild til að sekta og
jafnvel fangelsa þá, sem gera
verkföll i þjóðnýttum iðngrein-
um Frakklands, en öli verka-
lýðssamböndin þrjú hvetja
verkamenn til þess að hafa að
engu hótanir De Gaulle.
Verkföll voru boðuð frá deginum
i dag f ýmsum þjóðnýttum kola-
námum, en ekki verður úr því skor
ið fyrr en á morgun hvort menn
mæta, þar sem víða í námunum er
frídagur i dag.
De Gaulle nýtur virðingar fyrir
margt vel gert, en sú skoðun Virð-
ist nú nokkuð almenn, að hann
fái fleiri upp á móti sér, en fáir
vilja myrða hann.
Fréttir frá Madrid í gær herma,
Framh. á bls. 5.