Vísir - 21.03.1963, Síða 1
Nemendur Kennaraskólans l
ánægðir með frumvarpiðl
53. árg. — Fimmtudagur 21. marz 1963. — 66 tbl.
Borun á Hásavík
hætt — / bili
Að sögn nemenda í
Kennaraskólanum ríkir
þar almenn ánægja í
hópnum vegna frum-
varpsins um Kennara-
skólann, sem lagt var
fram á Alþingi í gær.
Norðurlandsborinn, sem undan-
farið hefur borað á Húsavík, en án
þess að komast niður á heitt vatn,
er hættur þar borun að sinni og
verður hvað úr hverju fluttur yfir
í Mývatnssveit.
Eins og frá hefur verið skýrt
áður komst borinn niður í 1100
metra dýpi, en dýpra getur hann
ekki borað nema að fá viðbótar-
tæki, sem nú er ráðgert að panta
erlendis frá.
Um það bil sem borinn hætti
var hitastigið í botni holunnar
orðið um 90 stig sem gefur á-
kveðna von um að komizt verði
niður á heitt vatn ef dýpra verður
borað. Síðan að borun lauk hefur
hitinn í bolholunni hitnað og er
a. m. k. kominn upp i 110 stig
og e. t. v. meira Gunnar Böðvars-
son verkfræðingur tjáði Visi að
þetta væri algengt fyrirbæri, því
holurnar kólna vegna vatnsdæl-
ingar meðan á borun stendur og
það tekur þær alltaf nokkurn
tíma að ná sér og hitna til fulls.
Framh. i bls. 5
Veift Fálkaorða
Robert B. Moore, yfirmanni varn-
arliðsins, sem fór héðan á laugar-
dag, var veitt Fálkaorðan nokkru
fyrir brottförina.
Venja er, að erlendum sendiherr-
um er veittur stórkross orðunnar
við brottför af landinu og var flota-
foringjanum veitt orðan í samræmi
við þessa venju. Hlaut hann stór-
riddarakross með stjörnu, sem er
næsta gráða undir stórkrossi.
Emil Hjartarson
Þar er m. a. gert ráð fyr
ir að Kennaraskólinn
fái heimild til að braut-
skrá stúdenta. Frétta-
maður frá Vísi og Ijós-
myndari skruppu í skól-
ann í morgun og hittu
að máli nokkra nemend
ur og spurðu þá um álit
þeirra á frumvarpinu,
einkum þó heimildina
fyrir skólann til að braut
skrá stúdenta.
Emil Hjartarson er 1 stúdenta
deild skólans: — Ég tel sjálf-
sagt að gefa nemendum hér
við skólann tækifæri til að fara
í háskóla til framhaldsnáms.
Ýmsir hafa efazt um að skól-
inn geti rækt tvöfalt hlutverk
svo vel sé, að útskrifa kennara-
efni annars vegar og stúdenta
hins vegar. Ég álít hins vegar
enga hættu á því að þarna
muni hallast á deildir.
Jóhanna Steinþórsdóttir frá
Hæli er í fjórða bekk: — Ég
veit ekki hvort ég notfæri mér
þetta tækifæri. En ég tel afar
heppilegt að kennarar geti átt
kost á að taka stúdentspróf hér
í skólanum.
Þóra Guðmundsdóttir frá
Ingjaldssandi í Önundarfirði er
í þriðja bekk: — Ég tel heimild
ina handa skólanum til að
Frnmh. á bls. 5
Jóhanna Steinþórsdóttir.
Stefnt að þinglausnum fyrir pcíska:
vörp setja svip á
Mikíð annríki er á Al-
þingi um þessar mundir,
mörg stórmál til með-
ferðar, miklar umræður
og yfirleitt góð fundar-
sókn. Ætlunin mun vera
að ljúka þinginu fyrir
páska, en páskar eru um
miðjan apríl.
NÝ STJÓRNAR-
FRUMVÖRP.
Síðustu dagana hafa mörg
meiriháttar stjórnarfrumvörp
verið lögð fyrir þingið. Nefna
má ný almannatryggingalög,
sem gera ráð fyrir stórauknum
tryggingum. Verður tsland með
samþykkt þeirra í röð þeirra
landa í heiminum, sem hafa
fullkomnastar tryggingar. Þá
eru frumvörp að nýjum höfunda
lögum, sem mikil þörf er á að
setja, og frumvarp um listfiytj-
endur, þess efnis að ísland ger-
ist aðili að nýrri alþjóðasam-
þykkt, sem gerir • ráð fyrir að
listflytjendur eða listtúlkendur,
fái hliðstæð réttindi og höfund-
ar hafa á verkum sínum.
Þá var lagt fram í gær stjórn-
arfrumvarp um nýskipan Kenn-
araskólans, þar sem m. a. er
gert ráð fyrir að skólinn fái
réttindi til að brautskrá stúd-
enta.
Mikill frumvarpsbálkur er
fram kominn að nýjum loft-
ferðaiögum, þar sem samræma
á hérlenda löggjöf öllum þeim
alþjóðasamþykktum um flug-
mál, sem ísland er aðili að.
Frumvarp um stóraukin fjár-
framlög ríkisins og hins opin-
Framh. á bls. 5.
Þóra Guðmundsdóttir
Fanney að h
Fanney byrjar síldarleit e"in-
hvem næstu daga. Sild veiðist nú
á Hraunsvík, en það háir veið-
unum, að hún stendur djúpt og er
dreift.
Síldveiðar eru ekki byrjaðar á
ný af neinum krafti, þótt fyrstu
göngu sumargotssíldarinnar hafi
orðið vart, en allmargir bátar eru
nú tilbúnir að hefja síldveiðar aft-
ur og sumir farnir að þreifa fyrir
sér. Ekki hefir frétzt um neina
síldveiði nema á Hraunsvík.
Þar fengu bátar þó lítið í fyrri-
nótt, vegna þess að þeir náðu
ekki til hennar. Hún lá nefnilega
niðfi á botni. En í gærkvöldi kom
Haildór Jónsson til Rvíkur með
450 tn., sem hann hafði fengið í
ljósaskiftunum í gærkvöldi á
Hraunsvík, Hafrún með 150 og Ól-
afur Magnússon með 46. Sumir
fengu ekkert. Nokkrir bátar köst-
uðu' í morgun, og er þetta er ritað
var ófrétt nánara um það, nema að
Pétur Sigurðsson hefði fengið 350
tn. Síldin er stór og falleg.
VÍSIR
Leitarstjórinn / Torbay segir að
orsök slyssins hafi verið ísing
Leitinni að íslenzku
f lugvélinni er enn haldið
áfram á hafinu milli Ný-
fundnalands og Græn-
lands, en hún hefur enn
engan árangur borið. í
morgun átti að stækka
leitarsvæðið.
Vísir átti símtal við
leitarstjórann, sem er yf
irmaður björgunarsveit-
arinnar í flugstöðinni
Torbay, skammt frá St.
Johns.
Hann skýrði frá því,
að enginn vafi væri á
því, að íslenzka flugvél-
in hefði farizt vegna ís-
ingar. Kvaðst hann hafa
öruggar heimildir fyrir
því, að íslenzku flug-
mennirnir hefðu nokkru
áður en hætti að heyrast
Framhald á bls. 5
Rannsókn
á sumargotssíld sem Guðmund-
ur Þórðarson veiddi leiddi í ljós,
að búkfita var yfir 10% og mun
það teljast gott miðað við árstlma.
— Vorgotsslld reyndist að fitu-
magni um 8% (búkfita).
Það kom fram í frétt I Vísi fyrir
nokkru, er sagt var frá afla Kóps,
að síldin væri feit og falleg. Við
rannsókn kom hins vegar í ljós,
að hún var ekki eins feit og hún
sýndist vegna þess, að hún var
fuil af svilum og hrognum.
Blaðið átti tal við Jakob Jak-
obsson fiskifræðing árdegis og
taldi hann allar líkur fyrir, að það
væri sumargotssíld sem veiddist á
Hraunsvíkinni, — sýnishom af
síld veiddri þar koma f dag til
rannsóknar. — Orsök þess, að
1 Framh. á bls. 5