Vísir - 21.03.1963, Blaðsíða 9
' 'x:
: : : :i'
'*'Á -jjl
■ ■
Landsspítalinn og viðbyggingar hans úr flugsýn.
VÍSIR . Fimmtudagur 21. marz 1963.
Unnið er af kappi að því að
ganga frá tveim álmum Land -
spítalaviðbyggingafiiinar nv' u
og upphaflega var það meining-
in að þær kæmust báðar i
notkun fyrir næstu áramót, en
þó óvíst að þeim áfanga verði
Ínáð til fullnustu.
Þó má ganga út frá því sem
gefnu að bráðlega verði Iokið
við að fullgera svokallaða tengi
álmu, þ. e. a. s. þann hluta við-
byggingarinnar sem tengir hana
við gamla Landsspítalahúsið.
Þar verður væntanlega í næsta
mánuði tekin í notkun sjúkra-
deild með 25 rúmum, en auk
þess er unnið af kappi að þvi
að ganga frá skurðstofunum
nýju, sem einnig verða til húsa
í tenjiálmunni.
Upplýsingar um þetta fékk
Vísir hjá skrifstofu ríkisspítal-
anna og jafnframt að þær
sjúkrastofur sem nú verða opn-
aðar til afnota verði á vegum
handlæknisdeildar. Þær verða á
þriðju hæð byggingarinnar.
Á annarri hæð tengiálmunnar
Ný deild tekur til starfa á
• /
næstunm /
tengiálmunnar og á sömu hæð
voru ennfremur kennslustofur
læknastúdenta teknar í notkun
í vetur. Loks má geta þess að
á efstu hæð þessarar sömu
álmu hafa herbergi fyrir vakt-
hafandi kandidata verið tekin í
notkun. Eiga þeir að fá samtals
5 herbergi til afnota og er þeg-
ar búið að fullgera þrjú þeirra.
Auk þess sem unnið er af
kappi að þvl að fullgera tengi-
álmuna og koma henni sem
fyrst í gagnið, sem væntanlega
verður ekki fyrr en síðar á
þessu ári, er einnig lögð
mikil áherzla á að Ijúka svo-
kallaðri vesturálmu hið allra
fyrsta. Það var upphaflega ráð-
gert að ljúka báðum framan-
greindum álmum viðbyggingar-
innar fyrir næstu áramót, en
vafasamt að það geti orðið,
hvað vesturálmuna snertir. Það
er hvorttveggja að kostnaður-
inn við framkvæmdirnar reynist
hærri en ætlað var, og þar við
bætist svo að erfitt hefur reynzt
að fá fagmenn til að ljúka þeim
verkefnum sem bíða. í vestur-
álmunni eiga að koma sjúkra-
rúm fyrir 110 sjúklinga, auk
þess sem I kjallara álmunnar á
að koma húánæði fyrir æfinga-
deild lamaðra og fatlaðra. Með
þessu húsnæði, sem væntanlega
verður tekið til afnota annað-
hvort fyrir áramót eða þá
snemma á næsta ári bætast við
135 sjúkrarúm eða vel þriðjungs
aukning, þvl sem stendur eru
220 sjúkrarúm I Landsspitalan-
um. Þegar viðbótarbyggingin er
öll fullgerð, er ráðgert að spítal
tnn rúmi sem næst 425 sjúkl-
inga.
í austurálmunni, sem er jafn
stór vesturálmunni, er enn sem
komið er lítið byrjað á innrétt-
ingum, enda ekki ráðgert að
þeim verði lokið fyrr en búið er
að byggja sérstakt eldhús og
þvottahús á Landsspítalalóð-
inni. í þeirri álmu verða fjórar
sjúkradeildir með samtals sem
næst 100 rúmum.
Unnið er að undirbúningi
byggingar eldhúss og þvotta-
húss og er þegar búið að grafa
grunninn að þeirri byggingu.
Ekki er unnt, á þessu stigi máls
ins, að segja hvenær þeim fram
kvæmdum verður lökið.
Nú eru sem næst 10 ár liðin,
frá því er fyrstu framkvæmdir
að viðbótarbyggingu Lands-
spítalans hófust. Þetta er hin
myndarlegasta bygging, og um
36 þúsund rúmmetrar að stærð.
Tveir starfsmenn frá Rönning, sem vinna við uppsetningu tækja I skurðstofum nýja spftalans.
Apótek og lækninga-
stofur í úthverfum
Fyrir nokkru komu
lyfjafræðingar í Reykja
vík saman á fund og
ræddu þeir þar um nauð
syn þess að f jölga veru-
lega lyfjabúðum í borg-
inni og setja apótek upp
í fleiri úthverfum. Sem
stendur eru apótekin í
Reykjavík átta talsins,
eða eitt á um 10 þúsund
íbúa og telja lyfjafræð-
ingarnir að þetta séu
allt of fá apótek miðað
við mannfjölda. Kom
fram á fundinum, að
lyfjafræðingamir telja
eðlilegt að lyfjabúðir í
Reykjavík séu tólf.
Nú er ein lyfjabúð I smíðum,
verður hún í Laugarneshverfinu
á homi Hraunteigs og Gullteigs,
en á það var bent á fundi lyfja-
fræðinganna að sérstaklega virt
ist nú nauðsynlegt að koma upp
apóteki í hinu nýja Háaleitis-
hverfi. Var stjórn félagsins falið
að vinna að fjölgun lyfjabúða I
borginni og enn fremur að vinna
að því að gert sé ráð fyrir lyfja-
búð í skipulagi nýrra hverfa
með sama hætti og staða verzl-
unarmiðstöðva er ákveðin.
Á síðari árum hafa nokkrar
lyfjabúðir risið upp utan Mið-
bæjarins. Má þar t. d. nefna
Vesturbæjarapótek, sem er I 1-
búðahverfinu við Hofsvallagötu
og Holtsapótek, inni á Lang-
holtsvegi.. Eru mikil þægindi að
því fyrir íbúa úthverfanna að
fá þangað apótek til þess að
þurfa ekki að sækja öll lyf nið-
ur f Miðbæ. í húsum lyfjabúð-
anna er og komið fyrir lækn-
ingastofum, sem læknum em
leigðar og eru ekki síður þæg-
indi að því fyrir íbúana að þurfa
ekki að fara í heila kaupstaðar-
ferð til að komast til læknis. í
Vesturbæjarapóteki hafa t. d.
aðsetur læknamir Richard Thors
Gunnlaugur Snædal, Jón Þor-
steinsson og Gunnar Biering og
í Holtsapóteki læknarnir Berg-
þór Smári, Björn Gunnlaugsson,
Bjöm Júlíusson, Árni Guðnason
og Sigmundur Magnússon.
er einnig unnið af kappi að
fullbúa skurðstofurnar undir
notkun, en þær fá þar mikið
rými og verða búnar ýmsum
hinum fullkomnustu tækjum,
þar á meðal tækjum sem til
þessa hafa ekki verið þekkt í
neinu sjúkrahúsi landsins áður.
Þessi læknistæki eru mjög dýr
og kosta svo milljónum króna
skiptir. ÖIl megintækin eru þeg-
ar komin til landsins og er unn
ið að því um þessar mundir að
koma þeim fyrir, hverju á sín-
um stað.
Áður var búið að taka í notk-
un í tengiálmunni húsnæði fyr-
■ ir tannlækningadeildina sem
hefur mikinn hluta kjallarans til
sinna afnota. Rannsóknarstofur
spítalans hafa einnig tekið til
notkunar hluta af fyrstu hæð
v