Vísir - 21.03.1963, Page 2
2
VÍSIR . Fimmtudagur 21. marz 1963.
t
Geir sagði að lokum, að hann
byggist við, að KR yrði hættu-
iegasta liðið í sumar,
Þeir voru óheppnir að vinna
ekki í fyrra, því þá voru þeir með
bezta liðið — síðan kom Akranes
og Akureyri — þeir taka það lík-
lega í sumar, en við hérna f Val
getum samt átt síðasta orðið í
þeirri hörðu viðureign, sem háð
verður í sumar.
Það verður ekki nóg að vinna
einn eða tvo leiki í sumar, sagði
Guðbjörn Jónsson, þjálfari Kefla-
víkur (nýliðanna í fyrstu deild).
Menn verða að vinna fleiri leiki
til að vera f deildinni næsta ár. Og
að því marki keppum við.
Síðastliðin ár hafa liðin, sem
koma upp úr annari deild, fallið
niður aftur árið eftir. En nú ætl-
um við að reyna að bjarga þessu,
haldast í deildinni næstu árin. Hjá
okkur hefur verið æft þrisvar í
viku, tvisvar inni og einu sinni úti.
Það hefur verið sæmilega mætt, en
okkur vantar fjóra leikmenn, er
léku með í fyrra. Þeir eru allir í
skólum úti á landi, og það er ekki
gott fyrir liðið, því samæfingin er
fyrir mestu.
Við eigum mikið af góðum efni-
við, sem æfir vel og er mikil
keppni hjá þeim um að komast í
liðið í sumar, enda -ést það bezt á
æfingum, því þar gera allir sitt
bezta, og ég er ánægður með það.
Ég býst við þó nokkrum breyting-
um á liðinu í sumar, en samt ekki
afgerandi. Við eigum of mikið af
varnarleikmönnum hér syðra en
vantar tilfinnanlega fleiri góða
sóknarleikmenn. En ég sé þetta
samt betur í sumar.
Ég býst fastlega við að KR vinni
mótið. Þeir eiga beztu mennina,
það sézt bezt á landsliðinu, sem
oftast er skipað helmingi KR-liðs-
ins
Við erum ákveðnir í að vinna
íslandsmótið í sumar, sagði Reynir
ICarlsson, þjálfari Akureyringa, er
blaðið ræddi við hann fyrir
skömmu.
Ég er nýkominn að norðan, þár
\sem ég lagði á ráðin með Einari
Helgasyni markverði, en hann hef-
K.R.-ingar á hlaupaæfingu á grasvelli félagsins við Kaplaskjóisveg.
Knattspyrnan hefst
eftir páskana
Strax eftir páska taka knatt-
spyrnumenn okkar fram skóna, og
hefja hið langþráða keppnistfmabil
sitt.
Keppnin mun sem fyrr hefjast
með Reykjavíkurmótinu, en síðan
hefst fslandsmótið, sem allir biða
spenntir eftir. í fyrra var leikið
eitt jaínasta Islandsmót, er sögur
fara af, og ekki verður mótið í ár
síðra. fþróttasíðan hefur snúið sér
til þjálfara þeirra liða, er leika í
mótinu f sumar, og spurt þá,
hvernig leikmenn hafa æft í vetur,
svo og um álit þeirra á mótinu í
sumar. Og hvort von sé á breyt-
ingum á liðunum.
Við snerum okkur fyrst til þjálf-
,.ra fslandsmeistaranna Fram,
Guðmundar Jónssonar:
— Hjá okkur eru nær allir
iromnir í góða æfingu, og hefur
verið vel mætt í vetur. Aðeins
vantar þá leikmenn, er leika með
Fram í handknattleik, en búast má
við, að þeir séu allir í góðri æf-
ingu.
Við höfum æft 4 sinnum í viku,
2 sinnum úti og 2 inni. Á sunnu-
dagsæfingum hafa oftast verið um
25 manns, enda gekk allur 2.
flokkurinn upp í fyrra. Eru mörg
góð efni þar en erfitt verður að
gera upp á milli þeirra, er koma
H1 greina að leika í meistaraflokki
f sumar.
Ég býst ekki við neinum veru-
legum breytingum á liðinu frá í
fyrra, en allt getur samt skeð,
bæði slys og annað. Við eigum t.
. bæði Ragnar og Grétar slasaða
eftir innanhúsknattspyrnuna um
daginn, en, sem betur fer, ekki
hættulega.
Takmark okkar er að sigra aftur
f sumar, en ég og strákarnir ger-
'im okkur gein fyrir, að það verður
ekki auðvelt.
Ég hræðist ekki neitt lið sér-
itaklega — þau eru öll mjög jöfn,
en ég hef tröllatrú á Fram sem
'vrr.
unum í langan tíma, og flestir er-
um við að einhverju leyti háðir
fiskveiðunum hér.
Við byrjuðum ekki að æfa fyrr
en eftir áramót, og æfúm nú þrisv-
ar í viku, tvær þrekæfingar inni
og eina æfingu á sunnudögum.
Ég býst við þó nokkrum breyt-
ingum á liðinu t sumar. Við eigum
nokkra unga drengi, er hafa æft
vel, en skortir alla reynslu, og eru
of ungir til að keppa við hina
reyndu* fyrstu deildar leikmenn.
Við höfum undanfarin ár misst
marga af leikmönnum okkar úr
liðinu, og ekki batnar það í ár.
Helgi Hannesson hefur verið veik-
ur í vetur, og ekkert æft, og er
mjög vafasamt, að hann verði með
f sumar. Og nú hefur Þórður Jóns-
son ákveðið að leggja skóna á hill-
una, og er hann nú þegar kominn
á bát héðan og verður á honum
í sumar. Þetta veikir liðið mikið,
en við hinir ætlum að gera okkar
bezta þrátt fyrir þetta tap.
Við höfum allir þó nokkra
reynslu, og keppnisskapið er mikið
f Akurnesingum sem fyrr. Við
ætlum að gera okkar bezta á næsta
íslandsmóti, en búumst ekki við
neinum sigri f mótinu.
Það eina sem við ætlum ekki að
gera er að falla niður í aðra deild
— við látum eitthvað annað lið
um að fara þangað.
KR er langbezta iiðið, og hefur
verið það undanfarin ár, mér finnst
þvf líklegast, að þeir vinni mótið
í sumar, og þeir eigi að gera það,
ef rétt er haldið á spilunum.
Við spurðum Ríkharð, hvort
hann hefði hug á að hætta knatt-
spyrnu eftir sumarið.
„Ekki býst ég við því,“ sagði
hann, „ég hætti ekki fyrr en ungu
drengirnir eru allir komnir upp,
og hafa hlotið einhverja þekkingu.
Það er ekki gott að segja eftir
það. Mér finnst minn tími bráðum
kominn til að hætta, þvf miður“.
•hjá hinum rauðklæddu í Austur-
bænum.
Alltof fáir af fastamönnum liðs-
ins æfa reglulega.
En það er tilgangslaust að æfa,
ef ekki er æft vel og reglulega.
Valur var í öðru sæti á síðasta
íslandsmóti, og við ætlum að
reyna að vera ofar í sumar, en til
þess þarf liðið að æfa vel, og
þetta hef ég sagt þeim oft.
En það hefur lítinn árangur bor-
ið til þessa.
Við eigum nokkra unga og efni-
lega drengi, sem eru í sigtinu fyr-
ir meistaraflokk, en flesta þeirra
vantar líkamlegt þrek.
Við höfum æft þrisvar f viku í
vetur — tvisvar inni, og einu sinni
úti, og hefur verið mest af nýlið-
um á þessum æfingum.
• Ég get ekki sagt, að ég sé á-
rægður með, hvernig mætt er á
æfingar hjá okkur, sagði Ríkharð-
'tr Jónsson, þjálfari Akraness, og
er þar margt sem hjálpast að, t. d.
hefur ekki verið landiega hjá bát-
Ekki var hljóðið. gett í hinum
nýja þjálfara Va's, Geir Guð-
mundssyni, en þetta er j fyrsta
skipti, er hann þjálfar meistara-
flokk félagsins. Hann hefur áður
verið með 2. flokk félagsins og er,
því öllum hnútum vel kunnugur I
í sjöunda landsleik V.-Þjóð-
verja og Frakka í handknatt-
leik, sem fram fór I Freiburg í
byrjun marz, sigruðu Þjóðverj-
ar með 13 mörkuni gegn 8.
Þjóðverjar byrjuðu á að rugla
vörn Frakka gersamlega með
sífelldum skiptingum, og f hálf-
leik stóðu mörkin 8:3 Þjóðverj-
um í hag. Frakkar sóttu %ig í
síðara hálflcik, en gátu aldrei
jafnað metin. Myndin sýnir
Þjóðverjann Bartels setja ó-
verjandi mark.
ur séð um þjálfunina í vetur. Hann
er íþróttakennari að menntun, og
kann því sitt fag vel, enda eru
strákarnir komnir f ágætisæfingu
þegar.
Ég kemst ekki sjálfur norður
fyrr en seinna f sumar, og mun
þá taka við af Einari. Tveir af
fastamönnum liðsins æfa ekki með
því nú, þeir Kári Árnason, sem er
á Laugarvatni, og Jakob Jakobs-
son, sem er í Þýzkalandi og ekki
væntanlegur fýrr en í júlí.
Það hafa verið þrjár æfingar í
viku í sumar — ein inniæfing og
tvær útiæfingar, en aðstaða til
þeirra er ekki góð, völlurinn
blautur eftir veturinn, en vonandi
verður hann samt betri nú en f
fyrra.
Upp á síðkastið hefur flensan
verið slæm fyrir norðan og hafa
því æfingar legið niðri um tíma
hennar vegna.
Það verður erfitt að spá um úr-
slitin í sumar, allt getur skeð í
knattspyrnunni, en eitt veit ég
með vissu, að aldrei hafa Akur-
eyringar verið jafn ákveðnir að
sigra og nú, en það, sem hefur
háð liðinu hvað mest, er að við
höfum ekki fengið neina leiki fyrr
en íslandsmótið hefst, en þá hafa
Reykjavíkurfélögin verið búin að
leika marga leiki. Útkoman hjá
okkur verður því ætíð sú, að okkar
beztu leikir eru seinni part sum-
ars.
Ég er eins ánægður og hægt er,
sagði Sigurgeir Guðmannsson
þjálfari KR. Það er að vísu aldrei
nógu vel æft hjá neinu félagi, en
hér hjá okkur hefur þetta verið á-
gætt í vetur. Það er vel mætt hjá
meginhelmingi fasta Iiðsins frá í
fyrra.
Sumir hafa sjaldan æft eins vel
og nú, t. d. Hörður Felixson, og
fleiri bafa mætt mjög vel upp á
síðkastið.
Aðeins einn af hinum mörgu
Iandsliðsmönnum KR hefur ekki
mætt á æfingar enn, en það er
.Garðar Árnason, einn af beztu
leikmönnum félagsins, en hann
mun byrja að öllum líkindum ein-
hvern næstu daga.
Við æfum fjórum sinnum í viku
— eina þrekæfingu hjá Benedikt
Jakobssyni — eina hlaupaæfingu "
— eina tækniæfingu og svo er
leikið á sunnudögum. Flestir eru
komnir í góða æfingu, enda veitir
ekki af. Liðið fer til Danmerkur
24. júlí og niun Ieika þar nokkra
leiki. Einnig höfum við sótt um
leyfi til KSÍ til að taka þátt í
Evrópukeppni bikarliða — en höf-
um ekki fengið svar enn. Ég vona,
að KR geti sýnt áhorfendum góða
knattspyrnu í sumar, og að vinna
íslandsmótið er takmarkið hjá okk-
ur, en það verður ekki auðunnið
— það vitum við. En KR er alltaf
KR, og þeir hafa ekki sagt sitt
síðasta orð ennþá. — klp —
LAUGAVE6I 90-92
700-800 bílar
eru á söluskrá vorum.
★
Sparið yður tíma og fyr-
irhöfn. Ef bifreiðin er til
sölu er hún hjá okkur.
★
Okkar stóri viðskipta-
mannahópur sannar 10
ára örugga þjónustu.
★
Bílaval er allra val.