Vísir - 21.03.1963, Síða 8

Vísir - 21.03.1963, Síða 8
V í S I R Fimmtudagur 21. marz 1963. Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Afcel Thorsteinsson. ‘ Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og atgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði. í Iausasölu 4 kr. éint. - Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. S/S og sænski auðhringurinn Nú eru aðeins tveir til þrír manuðir til kosninga og íingi lýkur innan mánaðar. í ljós er komið, að fram- óknarflokkurinn á engin stefnumál við þessar kosn- igar. Kemur það reyndar engum á óvart sem fylgzt efur með baráttu flokksins á undanförnum árum. að er langt síðan hann hefur átt nokkra hugsjón. Þegar Jónas frá Hriflu var rekinn úr flokknum af þeim íveimur mönnum, sem hann hafði alið við brjóst sér, íissti flokkurinn sinn eina hugsuð. Síðan er ekki hægt að segja að ein einasta ný hugmynd hafi fæðzt í heil- um flokksleiðtoganna. En Eysteinn og ritstjórar Tímans eru ekki af baki ’ottnir. Nú smíða þeir sér kosningamál úr þeim kjör- við að ríkisstjórnin hafi viljað aukaaðild að EBE og ;lík aukaaðild hafi þýtt það að erlendir auðhringar hafi 'ítt greiða leið inn í íslenzkan fiskiðnað. Þess vegna er full ástæða til þess að minnast á það onn einu sinni, að í janúar í fyrra, á ráðstefnu Frjálsr- r menningar, bæði gerðu Eysteinrt og Helgi Bergs, itarr framsóknarflokksins, að því skóna, að aukaað- ’ væri heppilegasta leiðin fyrir ísland. Og Eysteinn agðist ekki vilja trúa öðru en að tíminn leiddi í ljós að sú skoðun væri rétt! Því kemur það nú úr hörðustu átt, er framsókn reynir að ásaka ríkisstjórnina fyrir þá afstöðu sem Ey- steinn var aðaltalsmaðurinn fyrir. Sjálfsagt var að kynna sér hvað í aukaaðild að EBE fólst með könnun- iviðræðum, ekki síður en í tollasamningi, og þá sjálf- ;ögðu leið fór ríkisstjórnin. En það hefur engum til Iiugar komið fyrr en framsóknarmönnum nú síðustu lagana, að aukaaðild þýddi það að opna ætti fiskimið- in fyrir útlendingum. ;n á annað má minnast í þessu sambandi. Það eru ekki Brezku heilbrigðisyfir völdin skýra frá því að taugaveiki hafi komið upp í Bretlandi. Vitað er þegar um 14 sjúklinga og höfðu þeir allir dval- izt í skíðabænum Zer- matt í Svisslandi milli 10. febrúar og 4. marz, en svo virðist sem uþp- spretta veikinnar sé þar. Hefur þess einnig orðið vart í öðrum Evrópu- löndum, að fólk sem var á skíðum í Zermatt veiktist þegar heim kom. Þannig er vitað um 4 taugaveikisjúklinga í Hollandi. Enginn veit hvernig veikin hefur komið upp f Zermatt og éru svissnesku heilbrigðisyfir- völdin að leita að uppsprettu hen'nar. 7 ÞÚSUND FERÐAMENN. Fjöldi skíðafólks dvelst enn í Zermatt, en slegið hefur nokkr- um ugg á fólkið. Reynt er að rekja sýkingarleiðina með upplýsingum frá þeim sem veikzt hafa og eru menn helzt þeirrar skoðunar að veikin hafi komið með matvælum. Zermatt er einn vinsælasti ferðamannabærinn í Svisslandi. Hann er f djúpum dal í Suður- Sviss og umkringja hann há- tignarieg og stórbrotjn fjöll. Mest ber á hinum fræ^a fjalls- Sýningarstúlkan Judy Havercroft átti að vera við brúðkaup en var send f farsóttar- hús. tindi Matterhorn sem blasir við frá Zermatt. Nú dveljast um 7 þúsund ferðamenn í Zermatt, allt skíðafólk og kemur það víða að, fjöldi fólks frá Þýzkalandi og Norðurlöndum og um 1000 Bretar, en staðurinn er einn vinsælasti staður brezkra skemmtiferðamanna. löndum þar sem heilbrigði og hreinlæti ei; á háu stigi. Lækn- arnir segja að veikin muni ekki vera mjög smitnæm. Ekki sé veruleg hætta á smitun, þó menp hafi hitzt og haft venju- legt samneyti við sjúklingana. Taugaveiki berist einkum með matvælum og drykkjarvatni. LÍTIL HÆTTA Á FARSÓTT. Brezka heilbrigðismálastjórn- in brá skjótt við þegar ljóst var að taugaveiki var komin til landsins og voru sjúkling- arnir jafnóðum einangraðir og læknisskoðun framkvæmd á þeim sem höfðu umgengizt þá. Læknar telja ekki mikla hættu á að veikin breiðist út- eða verði farsóttarkennd, vegna þess, að slík hætta er ekki talin með taugaveiki í BRÚÐARMEYJA I FARSÓTTAHÚS. Meðal þeirra s24 sem sýkzt hafa er 22 ára sýningarstúlka að nafni Judy Havercroft. Hún átti að vera brúðarmeyja f brúðkaupi vinkonu sinnar. En morguninn sem brúðkaupið skyldi fara fram veiktist hún og þegar læknir hafði skoðað hana úrskurðaði hann, að hún skyldi ekki vera við brúð- kaupið, heldur sendast hið skjótasta á farsóttarhús. '.V.V.V.V n n ■ ■ ■ i nema fáir mánuðir síðan frá því var skýrt, að áform- uð hefði verið samvinna S.f.S. og sænsks niðursuðu- hrings um byggingu verksmiðja hér á landi. Um það hegir Tíminn nú vandlega. Þá var ekki óttinn við er- lenda f jármagnið eða erlendu auðhringana í íslenzkum fiskiðnaði! Móðuharöindi Karls i 1 upphafi viðreisnarinnar kvað Karl Kristjánsson hana mundu leiða ný móðuharðandi yfir landið. Og ramsóknarmenn bergmáluðu þessa skoðun hins þing- eyska spekings. . Landbúnaðarmálaráðherra hefur nýlega skýrt frá því að vöxtur og viðgangur landbúnaðarins hafi verið venju mikill undanfarin 3 ár. Ræktun hefur stórauk- zt, vélakaup bænda einnig og hagur landbúnaðarins r góður. Og stofnlánadeild þeirra hefur verið stofnuð, sem mun nema 500 millj. króna árið 1975. Þannig hafa spár framsóknarspekinganna rætzt. STÖÐVUNÁ 0LÍUFLUTN- — Snertir ekki ísland Litlar fregnir hafa fengizt af brunanum í Novorossisk, þar Fyrir nokkrum dögum varð stórbruni i rússnesku olíuút- flutningshöfninni Novorossisk við Svartahaf, sem mun hafa það í för með sér, að olíu- flutningar Rússa til margra Vestur-Evrópulanda munu stöðv ast. Kemur það sér mjög illa, í þeim Iöndum sem treyst hafa á að fá rússnesku olíuna, sér- staklega á Ítalíu. Flutningastöðvun þessi virð- ist þó ekki koma við okkur ís- lendinga, en við fáum olíuna frá annarri rússneskri olíuhöfn við Svartahafið, Batum. Sam- kvæmt upplýsingum frá Árna Þorsteinssyni hjá Olíufélaginu var eitt rússneskt olíuskip að koma hingað i morgun, annað er lagt af stað fyrir nokkru frá Batum og íslenzka olíu- flutningaskipið Hamrafell er að koma til Batum. Fyrir um það bil mánuði urðu tafir á olíuflutningum frá Rússlandi til íslands, vegna skemmda, sem urðu á tveimur rússneskum olíuflutningaskip- um. Var þá hætta á olíuskorti, en varnarliðið, sem á birgðir í Hvalfirði, hljóp undir bagga og var gefin heimild til að kaupa 4 þúsund tonn af því. sem rússnesku fréttastofurnar hafa\ekki skýrt frá honum. En Ijóst er, að hér var um stór- bruna að ræða. Stöðvun olíu- flutninganna kemur verst við italska ríkisolíufélagið AGIP, sem notaðist nær eingöngu við rússneska olíu. Hefur það nú léitað fyrir sér um kaup á oliu frá Arabalöndunum og tilkynnt skipafélögúm, sem önnuðust flutninga frá Novorossisk að ekki sé þörf á næstunni fyrir þann sklpakost. Frá Novoross- isk hefur komið um það bil helmingur af Svartahafsolíu Rússa.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.