Vísir - 23.03.1963, Qupperneq 6
6
V1SIR . Laugardagur 23. marz 1963.
Sextugur
Ólafur Frímann Sigurðsson
framkvæmdarstjóri, Akranesi
Einn meðal mætari borgara
Akraneskaupstaðar, Ólafur Fr. Sig-
urðsson, framkv.stjóri, er sextugur
í dag.
Ólafur er fæddur 23. marz 1903
að Sýruparti á Akranesi.
Foreldrar hans voru Guðrún
Þórðardóttir og Sigurður Jóhann-
esson, formaður og útvegsbóndi,
er bjuggu að (Mið-)Sýruparti á
Skipaskaga (Akranesi) allan sinn
búskap. Þau eru bæði látin fyrir
allmörgum árum. Guðrún, móðir
Ólafs, var einhver harðduglegasta
kona sem ég hefi kynnzt.
Hugur Ólafs hneigðist snemma
að verzlunarstörfum. Um 16 ára
aldur réðist hann að verzlun Lofts
Loftssonar og Þórðar Ásmunds-
sonar f Sandgerði. Loftur og Þórð-
ur, er sfðar varð tengdafaðir ÓI-
afs, ráku þá f félagi verzlun og út-
gerð f Sandgerði og á Akranesi, en
skiptu með sér nokkru sfðar og
tók þá Loftur við rekstri og eign-
um f Sandgerði en Þórður á Akra-
nesi. Ólafur var hjá Lofti til 1923,
er hann fór á Verzlunarskóla Is-
iands. Þaðan útskrifaðist hann
vorið 1925. Þá réðist hann til
Bjarna Ólafssonar & Co„ Akra-
nesi, en það fyrirtæki var þá í
miklum uppgangi og rak jöfnum
höndum fjölþætta verzlun og út-
gerð, Hjá BÓCO vann Ólafur ti!
ársins 1930, er hann ásamt Jóni
heitnum Hallgrímssyni, sem einnig
var starfsmaður BÓCO, keypti
verzlun fyrritækisins og rak hana
sfðan undir nafninu „FRÓN“ til
ársins 1941. Árið 1939 hðf Ólafur
:afnframt að starfa á skrifstofu
Þórðar Ásmundssonar og hefir
'tarfað við fyrirtæki Þórðar heit-
ins æ sfðan. Eftir andlát Þórðar
sem meðeigandi og framkvæmdar-
stjóri, ásamt mági sfnum, .Túiíusi
Þórðarsyni, og svila, Jóni Árna-
syni alþingismanni. Hefur samstarf
heirra verið með ágætum.
Auk hinna föstu starfa hefur
Ólafur sinnt ýmsum aukastörfum,
m. a. starfað f skattanefnd og ver-
ið endurskoðandi reikninga Spari-
sjóðs Akraness í mörg ár. í íþrótta
ráði og f Knattspyrnufél. Akra-
ness og var formaður þess f 10
ár. 1 Karlakórnum SVANIR um
árabil og er þar enn styrk stoð
enda söngvinn vel
Sveinn heitinn Guðmundsson
frá Mörk, sem lengi var hrepp-
stjóri á Akranesi, mesti merkis-
maður og mjög minnisstæður
þeim, er honum kynntust, komst
eitt sinn þannig að orði (f áheyrn
undirritaðs); „Það er annars merki-
lega með þessa „Parta-stráka" —
karl minn — (orðtak Sveins) þeir
fara allir á skóla og verða að
mönnum. Ætli það sé ekki fjör-
unni og sjávarloftinu að þakka?“
Á þeim árum fóru unglingar lítið
til framhaldsnáms etfir að barna-
og unglingaskóla lauk, a. m. k. fáir
af Akranesi — utan „Parta-
strákarnir". En „Partar" voru þá
almennt kölluð nokkur hús, sem
stóðu neðan og vestan við Báru-
götu, sem nú er. Þessir „Parta-
strákar“ urðu flestir skipstjórar
eða verzlunar- og útgerðarmenn o.
þv. 1. Ólafur Frímann var einn
af þeim. Kannski hefur fjaran, sjór-
inn og hafgolan, sem sffellt leikur
um þessa skagatá, átt sinn þátt í
að örfa framsækni og athafnaþrá
unglinganna, sem þar ólust upp
á þeim tíma, sem minna glapti
fyrir og fleiri stundir gáfust til
einveru, fjöruferða og framtíðar-
drauma en nú gerist. Já, Óli
minn, það er margs að minnast
frá þessum árum, áætlanir voru
þá stundum gerðar fram í tfmann,
sumt hefir orðið að veruleika,
annað ekki. Endurminningarnar
eru þó flestar ljúfar, þótt ekki
væri ætíð úr miklu að moða. Þ6
kostur væri oft þröngur og bær-
inn lágreistur þá var það mann-
vænlegur systkinahópur sem kom
út úr (Mið-)Sýruparti, 2 afburða
skipstjórar og aflamenn, 2 mjög
mætir verzlunarmenn og 2 ágætar
húsmæður.
60 ár eru ekki hár aldur nú, áð-
ur þóttu menn á sjötugsaldri
gamalmenni. Ólafur Sigurðsson
ber sinn' aldur þó óvenju vel.
Flestir mundu ætla hann nær
fimmtugu. Þegar hann gengur
um hnarreistur, fasmikill, fjaður-
magnaður og brosmildur, hefur
maður á tilfinningunni að þar fari
ungur maður — enda er Ólafur
enn ungur í anda og umgengni.
Skapið er létt og lundin þíð, hvers
manns vanda vildi hann helzt
leysa, en kringumstæðurnar leyfa
það ekki ævinlega, en Óli Sig. ger-
ir ætíð sitt bezta.
Heill og velferð Akraness lætur
Ólafur Sigurðsson sig miklu skipta.
Hann hefur verið óþreytandi að
vinna fyrir sitt bæjarfélag og sem
sannur Sjálfstæðismaður hefur Ól-
afur starfað í anda þeirrar stefnu,
en vegna lipilrðar sinnar og félags-
hvggju hefur honum tekizt að
vinna með flestum — eða öllum
— mönnum, án tillits til stjórn-
málaskoðana. Þettá er aðalsmerki
góðs manns.
Ólafur er hrókur fagnaðar á
vinafundum og gleðistundum,
hann dansaði manna bezt og hafði
mikla kvennahylli, og hvoru
tveggja trúi ég að haldist. Reglu-
maður er Ólafur á vfn og tóbak.
Ólafur kvæntist árið 1931 hinni
ágætustu konu, Ólínu, elztu dóttur
Þórðar heitins Ásmundssonar, út-
gerðarmanns á Akranesi. Þau hafa
alla tíð búið að Vesturgötu 45 á
Akranesi og hefur sambúð þeirra
verið með ágætum. Þau hafa
eignazt 7 börn, 6 syni og eina
dóttur. Elzta drenginn, Þórð,
misstu þau á unga aldri. Tvö
barnanna eru gift, Sigurður og
Ragnheiður, en Þórður (yngri),
Ásmundur, Gunnar og Ólafur við
nám og í foreldrahúsum.
Vinur minn! Um Ieið og ég
óska þér hjartanlega til hamingju
með sextugsafmælið og þakka
vináttu liðinna ára, óska ég þér
og þfnum allra heilla f framtíðinni.
Nafni þinn frá Bræðraparti.
í dag, 23. marz, eru merk tíma-
mót f lffi eins af betri borgurum
Akraness.
Ólafur F. Sigurðsson, frkvstj.,
Vesturgötu 45, fæddist hér á
Skipaskaga fyrir réttum 60 árum,
og hefur alið allan sinn aldur hér.
Akurnesingar og aðrir sem ein-
hver kynni hafa haft af Ólafi
þennan Ianga starfsdag hans hér,
munu senda honum og fjölskyldu
hans, sfnar beztu árnaðaróskir í
tilefni afmælisins.
Ég kynntist ólafi fyrst fyrir 18
árum, og höfum við verið sam-
starfsmenn sfðan. Allan þennan
tfma hefur mér virzt Ólafur vera
vaxandi maður, sem mætir erfið-
leikum hins daglega lffs með stöku
jafnaðargeði, í öruggri trúarvissu
um betri daga að morgni.
Ég veit sennilega manna bezt
hversu óeigingjamt og erfitt starf
Ólafur hefur leyst af höndum á
undanförnum árum, og að mfnum
dómi munu það fáir eftir Ieika.
Ólafur er mörgum gððum mann-
kostum búinn, en ég vil aðeins
minnast hér á eina af sterkustu
lyndiseinkunum hans, hjálpfýsina
við og samúðina með þeim sem
bágt eiga, eða hafa -villzt af réttri
leið. Ég veit að Ólaf hefur oft tek-
ið mjög sárt að hafa ekki verið
þess megnugur að veita þjáðum
þá aðstoð, sem hann hel^t hefði
kosið.
Tvö eru grundvallarboðorð
okkar jarðneska Iffs.' Hið fyrra, að
elska Guð, og hið síðara, að vera
góður. Þessum boðorðum hefur
Ólafur fylgt dyggilega alit sitt lff.
Hann hefur líka hlotið góð laun
fyrir manngæzku sfna, þar sem
eru hans elskulega, góða eigin-
kona og mannvæníeg börn.
Allir þeir mörgu sem gist hafa
heimili Ólafs og LoIIu, þekkja
hjartahlýju þeirra beggja og barna
þeirra. Þeir þekkja hið hreina, göf-
uga og góðn andrúmsloft sem er
aðalsmerki yjiss heimilis, enda er
þar oft gestkvæmt, því — þar er
gott að vera.
Á þessu góða og fagra heimili
hef ég verið sem heimamaður æ
sfðan ég kom hér á Skagann fyrst,
og vil ég nota þetta tækifæri til
að þakka þeim Ólafi og Lollu og
börnum þeirra, fyrir öll þau ó-
metanlegu gæði, sem þau hafa
sýnt mér og mfnum nánustu á
undanförnum árum.
ólafi, vini mínum, óska ég
langra lífdaga, gæfu og góðs
gengis við söng og gleði.
Indriði Björnsson.
Myndir Knudsens
Um 9000 manns hafa nú séð lit-
kvikmyndir Ósvalds Knudsens, sem
sýndar hafa verið f Gamla bíói að
undanförnu. Myndirnar verða sýnd
ar í síðustu skipti laugardag og
sunnudag kl. 7, og ættu þeir, sem
ekki vilja af myndunum missa, að
nota þau tækifæri til að sjá þær.
Myndirnar eru þessar: Halldór
Kiljan Laxness, Eldar í Öskju,
Barnið er horfið og Fjallaslóðir.
( ÍÞRÓTTIR )
Skíðahótleið í Hlíðarfjalli
Tvö gl æsileg
skíðahótel
Tvö skíðahótel, á Akureyri og
ísafirði, kappkosta nú að veita
fólki um land allt kost á að eyða
rólegum og þægilegum páskum á
skemmtilegum stað.
Flugfélag íslands kemur til móts
við þessa aðila með þvf að hafa
sérstök skíðafargjöld, með 25 pró-
sent afslætti.
Þessi fargjöld- til ísafjarðar og
Akureyrar gilda frá 1. apríl til 1.
júnf. Til Egilsstaða gilda þau 1.—
20. aprfl. Afsláttur sá er skíðafar-
gjaldið veitir, er háður þvf skilyrði
að keyptur sé tvímiði, og hann not
aður báðar leiðir. í sambandi við
I kvöld leika til úrslita í II.
fl. KR og ÍR. í liði KR eru 6 menn
úr unglingalandsliði og 5 hjá ÍR.
Má þvf búast við jöfnum og spenn-
andi leik. Enn fremur leika Ármann
og stúdentar í meistaraflokki.
Annað kvöld heldur mótið svo
áfram. Eigast þá við Ármann og
ÍR í meistaraflokki og í I. flokki
Ármann og Skarphéðinn. Lfkur eru
á skemmtilegum leik þar sem fyrr
nefndi leikurinn er, en hann getur
ráðið úrslitum f meistaraflokki. ÍR
er taplaust, Ármann hefir tapað
einum leik — fyrir ÍR. Þá er og
líklegt að Skarphéðinn réynist Ár-
manni þungur f skauti.
Sadminton
í dag kl. 14,30 hefst í Valshúsinu
Reykjavíkurmót f Badminton. Mik-
ill fjöldi tekur þátt í keppninni.
Á morgun kl. 13,30 verður leikið
ti’ úrslita f keppninni á sama stað.
Má búast við harðri og tvísýnni
keppni í mörgum flokkum.
I thitj
skíðafargjöld Flugfélagsins verða
seldar í einu lagí ferðir frá Reykja-
vfk, ásamt viku dvöl í skfðaskál-
anum í Hlíðarfjalli. Innifalið í
verðinu eru ferðir báðar leiðir á-
samt gistingu og fæði í eina viku.
Einnig ferðin frá flugvellinum upp
að skálanum. Þrfr verðflokkar eru,
2500, 2300 og 2100 krónur.
Bæði eru skíðahótelin vönduð og
glæsileg og verða áreiðanlega marg
ir skíðamenn til þess að nota sér
þetta einstæða tækifæri.
Félagslíf
KR, knattspyrnumenn. Æfingar
í dag laugardag, verða á Há-
skólavellinum sem hér segir:
3. fl. kl. 3,30. 4. fl. kl. 4,30. —
Munið að mæta allir á Háskóla-
völlinn. — Þjálfari.
litaðsir Ijósmyndir
Rammagerðin, Hafnarstræti 17
sýnir í dag og næstu daga, í glugga
í Austurstræti 17, sýnishom af
myndum máluðum í Japan eftir
Ijósmyndum.
Á undanförnum mánuðum hefir
fólk hagnýtt sér þessa þjónustu
mjög almennt og hún tekist sér-
staklega vel. Verð á myndum
þessum er mjög hagstætt, eins og
annað, sem flutt er frá Japan, og
unnið af færum mönnum. Mynd-
irnar eru málaðar á striga eða
silki eftir vali. Afgreiðslutími er
ca. 1 mán.
Ennfremur eru í glugganum mál-
verkaendurprentanir af verkum
gömlu meistaranna, prentaðar á
stiga hjá Ricardo — Milano. Fyrir-
tæki Ricardo er talið vinna ein-
hverja beztu listprentun í heimi.
Sala á myndum þessum hefir auk-
izt mjög, enda ávallt gott úrval
fyrir hendi. Annars er sjón sögu
ríkari. — Rammagerðin hef'r
einkaumboð fyrir Ricardo.
<i
ti wmnmiacmmwmmamxm