Vísir - 23.03.1963, Blaðsíða 7
V í SIR . Laugardagur 23. marz 1963
TONLISTIN
A AKRANESI
A kurnesingar hafa ekki ein-
ungjs getið sér gott orð fy/
ir kartöflurækt og knattspyrnu.
Þar hefur líka alltaf verið mik-
ill söngáhugi og minnast menn
þess, að karlakórinn Svanir hef
ur starfað þar ötullega undir
stjórn Geiriaugs Árnasonar rak-
ara.
En fyrir nokkrum árum heyrð
ist að Geirlaugur hefði látið af
söngstjórninni, hann hefði ekki
treyzt sér lengur til að standa
í þessu umsvifamikla starfi. Þá
héldu sumir utanaðkomandi, að
við þetta kynni að fara að draga
úr hinu fjöruga sönglífi Skaga-
manna. Væri það e. t. v. að von-
um, því að erfitt væri fyrir lítið
bæjarfélag, þar sem allir væru
önnum kafnir við framleiðslu-
störf, að halda uppi stöðugu
listalífi.
'C'n þegar fréttamaður Vísis
var fyrir nokkru á ferð uppi
á Akranesi, komst hann þó að
raun um annað, því að það kom
í ljós, að tónlistaráhuginn er
þar meiri en nokkru sinni fyrr.
Þar starfar tónlistarskóli af
miklu fjöri og nú eru Akurnes-
ingar að æfa af krafti undir
söngskemmtanir, sem þeir ætla
að halda með vorinu og hyggj-
ast þá eins og stundum áður
einnig efna til söngskemmtunar
í Reykjavík. Á morgun heldur
karlakór þeirra söngskemmtun
og á páskum mun kirkjukórinn
halda kirkjutónleika.
Það var fyrir tilviljun, að
fréttamaður Vísis komst að
þessu, er hann hitti uppi á Akra
nesi hinn góðkunna söngvara,
Einar Sturluson, sem var stadd
ur þarna.
— Hvað ert þú að gera hér á
Skaganum? spurðum við Einar.
— Ég er nú að raddþjálfa
Akurensinga, svaraði Einar. Ég
kem hingað einu sinni í viku
til að æfa raddirnar bæði í karla
kórnum og blönduðum kór, sem
hér starfa. Og Einar lýsti því
með mörgum orðum, hve
ánægjulegt væri að starfa með
Akurnesingum, þar væri svo
mikill söngáhugi og kraftur í
tónlistarlífinu að undrum sætti.
\TiS skruppum sem snöggvast
með Eina'ri upp í svokallað
Alþýðuhús, þar sem nokkrar
konur úr kórnum voru saman
komnar og hann byrjaði að æfa
með þeim verk eftir Bach. Þann
ig bjóst Einar við að halda á-
fram allan daginn, að æfa ýms-
ar raddir og þjálfa söngvarana
hvern á eftir öðrum. — En þú
ættir að koma í miðdegiskaffið,
sagði hann við fréttamann Vís-
is, og hitta hann Hauk Guð-
iaugsson, sem nú er mesti drif-
krafturinn í tónlistarlífi Akra-
ness.
Og síðar um daginn varð það
úr að við skruppum til Hauks,
sem býr í húsi því sem hinn
kunni Akurnesingur Ólafur heit
inn Björnsson bjó áður í. Það
var auðséð að þarria bjó tón-
listarmaður, því að í stofunni
bar mest á píanói og nótna-
möppum og mjög stóru og
vönduðu sterefónísku segul-
bandstæki.
TXaukur hafði setið við píanóið
* þegar við komum að og við
komumst að því, að hann er
ættaður austan af Eyrarbakka
og má þar til sanns vegar færa,
að ekki er ofsögum sagt af tón-
list þeirra á Bakkanum.
Það lá því beint við að spyrja
Hauk hvort hann hefði eins og
fleiri heyrt músikkina í briminu
á Eyrarbakka.
— Ja, ég veit nú ekki. Hann
Páll er búinn að gera brimið
svo rómantískt. Annars get ég
ekki neitað því að ég lifði og
hrærðist auðvitað í fjörunni
eins og aðrir strákar á Eyrar-
bakka. Fjaran er afar falleg og
mér finnst mjög skemmtilegt að
vera við sjóinn. En það er líka
hér á Akranesi.
XTaukur Guðlaugsson stundaði
píanónám í Tónlistarskólan
um í Reykjavík og Iauk prófi í
þvi, en síðan sneri hann sér
að orgelnámi, og var um skeið
organisti á Siglufirði. Síðan hélt
hann til náms í organleik í Ham
borg hjá prófessor Förster-
mann. Undir lok námsins lék
hann á orgel á nokkrum hljóm-
leikum.
— En hvernig stóð á því að
þú fluttist svo til Akraness?
—■ Það vildi svo til, að ein-
mitt þegar ég kom heim frá
námi var nýbúið að setja upp
fullkomið kirkjuorgel í Akranes
kirkju og þá vantaði organista,
svo þetta var tilvalið fyrir mig.
Ég hef líka reynt með ýmsum
hætti að gera kirkjusönginn fjöl
breyttari, sérstaklega á stórhá-
tíðum. Kirkjugestir voru t. d.
ánægðir með það að á síðustu
páskum fluttum við „7 orð
Krists á krossinum" eftir Schuts
og erum við að undirbúa að
flytja það verk aftur núna.
jþað hefur líka sérstaka þýð-
ingu fyrir sönglífið að Sig-
urður Markússon hefur nú kom-
ið úr Reykjavík síðustu tvö árin
að kenna fólki að syngja eftir
nótum. Þegar söngfólkið hefur
Iært það verður allt miklu auð-
veldara og æfingar taka ekki
eins langan tíma og þegar þarf
að eyða tímanum í að kenna
söngfólkinu laglínuna frá byrj-
un. Þegar því marki er náð er
söngmennt fólksins komin á
hærra stig.
Síðan snýst talið að Tónlistar
skóla Akraness, sem Haukur
fiííMiís
/
Haukur Guðlaugsson tónlistarmaður á Akranesi við píanó sitt
stjórnar en þar að auki annast
hann söngkennslu í skólum.
— Það var upphaflega Stúdenta
félag Akraness sem beitti sér
fyrir stofnun tónlistafélags og
fyrstu fjögur árin stóð frú Anna
Magnúsdóttir fyrir tónlistar-
skóla.
Nú eru allir teknir í skólann
sem langar til að læra á hljóð
færi og það er kennt m. a. á
pianó, orgel, fiðlu, klarinett og
blokkflautu. Yngstu nemendurn
ir eru allt niður í 8 ára. Það hef
ur hjálpað til, að tónlistarkenn
arar hafa verið fáanlegir til að
koma eins og einu sinni í viku
frá Reykjavík upp á Akranes og
kenna ýmsar sérgreinar.
Að lokum segir Haukur: —
Mér hefur líkað vel dvölin
hér á Akranesi. Það er uppörv-
andi að starfa í bæ, þar sem
tónlistaráhuginn er svo mikill
sem hér og það er t. d. mjög
ánægjulegt að meðal nemend-
anna eru góð efni f tónlistar-
menn.
18 ha Evinrude utanborðsmótor á Reykjavíkurhöfn þar sem
m. a. var sýnd hin geysimikla dráttarhæfni mótorsins.
EVINRUDE utanborðsmótorar eru frá
OUTBORD MARINE INTERNATION S/A
Verð: 3 ha kr. 5840.00 5lÁ ha kr. 10556.00
10 ha kr. 15.062.00 18 ha kr. 17.745.00
28 ha kr. 21.800.00 40 ha kr. 25.000.00
I ,
AUÐVITAÐ EVINRUDE Á SÍLDINA
VJSS235