Vísir - 27.04.1963, Síða 16
ism
Laugardagur 27. april 1963.
Spellvirkinn
náðist
1 fyrrinótt var brotin rúða í skart
gripaverzlun á Laugaveginum, og
sá sem valdur var að þessu spell-
virki náðist.
Bifreiðarstjóri, sem átti leið um
Laugaveginn I nótt sá til mannsins
þegar hann braut rúðuna og taldi
sig þekkja hann. Ók hann. strik-
beint á lögreglustöðina og skýrði
þar frá málavöxtum. Lögreglunni
tókst að handsama spellvirkjann
þegar í stað og játaði hann atferli
sitt. Ekki telur lögreglan að rúðan
hafi verið brotin í þjófnaðarskyni,
heldur liggi til þess aðrar hvatir.
HELGIHELGASON komim
með 1200 tonna afla
Á vertíðinni í fyrra
voru aflahæstu bátamir
í Grindavík og minnast
menn enn hinnar hörðu
keppni vélbátanna Þor-
bjöms og Áskels um
efsta sætið.
En göngur þorsksins eru
breytilegar og má það heita
fyrirfram sýnilegt, að efstu bát-
amir verða á Patreksfirði. Er
jafnvel ailt útlit fyrir að þeir
slái íslandsmetið, sem Binni frá
, Gröf í Vestmannaeyjum setti
fyrir nokkrum árum, og var
1363 tonn.
Aflahæsta skipið á Patreks-
firði er nú Helgi Helgason frá
Vestmannaeyjum, sem var rétt
að komast yfir 1200 tonna mark-
ið á fimmtudaginn og að þvl
er bezt er vitað er hann afla-
hæstur yfir landið. Er Helgi í
vetur leigður nokkrum Patreks-
firðingum og er skipstjóri hans
Finnbogi Magnússon. Ér hann
Patreksfirðingur. Hann hefur
verið á línu og netum í vetur.
Verður nú skemmtilegt að fylgj
ast með því, hvort hann nálg-
ast met Binna.
Næsti báturinn að aflamggtd
er Dofri, sem Kaupfélagið á Pat-
reksfirði gerir Ut. Er hann kom-
inn með um 1100 tonn. Skip-
stjóri er Héðinn Jónsson. Er Hk-
legt að þetta séu einu bátamir,
sem eru komnir yfir 1000 toim
í ár
Hæsti Vestmannaeyjabátur nú
er Stígandi með 980 tomi.
„SANNLÍIKUR I GIPSI"
Nýtt leikrit eftir Agnar Þórðnrson
1 tilefni af því að Vísir hafði
fregnað að Agnar Þórðarson rit-
höfundur hafi nýlega sent nýtt
frumsamið ieikrit til Þjóðleik-
hússins, leitaði fréttamaður
blaðsins staðfestingar á frétt-
inni hjá höfundinum.
— Jú, þetta er rétt, sagði
Agnar. Ég hef fyrir nokkru lok-
Gesturinn og
peningnrnir hurfu|
í fyrrinótt kærði maður hér
í Reykjavík yfir því að stolið
hafi verið frá sér peningaveski,
sem í voru um 18 þús. kr. í pen
ingum.
I húsi þessu var stúlka gest-
komandi og hafði henni verið
boðin næturgisting. En þégar
húsráðandi vaknaði I gærmorg-
un var stúlkan horfin og sömu-
leiðis peningveski húsráðanda
með framangreindri fjárhæð.
Setti hann hvarf peninganna í
samband við hvarf stúlkunnar
og kærði málið til lögreglunnar. f
ið við nýtt leikrit og sendi það
til Þjóðleikhússins til athugun-
ar og ákvörðunar. Meira veit
ég svo ekki.
■ — Hvað heitir leikritið?
— Til bráðabirgða hef ég
kallað það „Sannleikur úr gipsi".
!þar með er ekki sagt að það
verði hið endanlega nafn. Þetta
er nútímaleikrit, gerist í Reykja
vík á þrem dögum. Það er mjög
einfalt í uppsetningu, aðeins eitt
svið, og auðvelt að setja það
upp hvar sem er og við hin
frumstæðustu skilyrði. Ég byrj-
aði á því vestur 1 Amerfku, en
hef umskrifað það 6 eða 7 sinn-
um síðan, og er því gjörbreytt
orðið.
— Um hvað fjallar það?
— Ég held það sé bezt að
minnast lítið á það. Hins vegar
má hafa það eftir, að það er
samband af gamni og kald-
hæðni, en slík efnismeðferð er
mér hugstæð.
— Þú hefur þegar fengizt mik
ið við leikritagerð.
— Nokkuð jú. Ég byrjaði á-®-
skáldsagnagerð, gaf út tvær'
skáldsögur, „Haninn galar
tvisvar" og „Sverð þitt er stutt“.
En þeim var ekki vel tekið og
seldust illa, einkum sú fyrri.
Síðan hef ég lagt þessa bók-
menntagrein á hilluna og snúið
mér að leikritagerð.
—Og nokkuð jöfnum höndum
útvarpsleikrit sem sviðsleikrit.
— Það má segja það. Ég hef
samið fjóra einþáttunga fyrir
útvarp og auk þess tvö fram-
haldsleikrit, en fjögur leikrit eft
ir mig hafa verið leikin á svið'i,
þau eru: „Þeir koma I haust“,
„Kjamorka og kvenhylli”,
„Spretthlauparinn" og „Gauks-
klukkan”.
— Hvert þeirra hefur orðið
vinsælast?
— „Kjarnorka og kvenhylli"
náði langmestri hylli og það var
sýnt samfleytt I tvo vetur. Leik-
ritið hefur nýlega verið þýtt á
þýzku og hefur verið gefið út
I svokallaðri leikhúsútgáfu. Það
þýðir að bókin er aðeins send
til leikhúsa, en kemur ekki á
almennan bókamarkað. „Kjam-
orka og kvenhylli" hefur einnig
verið þýtt á ensku og mun koma
Framh. á 5 .slðu.
Agnar Þórðarson, rithöfundur.
Drengur slasast / árekstri
Þrettán ára gamall drengur slas-
aðist mikið, er hann varð fyrir bif-
relð á Kleppsmýrarvegi rétt fyrir
hádegið I gær.
Drengurinn, Sturla Bragason að
nafni og til heimilis að Gnoðavogi
20, var á reiðhjóli og var á leið
upp Kleppsmýrarveginn laust fyrir
kl. hálftólf I gær. Á móti honum
kom loftpressubíll, en I honum var
maður úr varaslökkviliði Reykja-
vlkur, sem var að fara I bruna-
kall hjá Keili.
Þegar drengurinn og bíllinn mæt-
ast virðist sem drengurinn hafi
misst stjórn á reiðhjólinu, þannig
að hann lendir fyrir bílnum og
skall á hægra framhorni hans. —
Drengurinn kastaðist af hjólinu I
götuna, en reiðhjólið dróst spöl
með bílnum og framhjól þess slitn-
aði algerlega af. Þegar ökumað-
I
ur bifreiðarinnar kom út lá dreng-
urinn fyrir aftan hana og nokkuð
til hliðar. Hafði hann hlotið all-
mikinn höfuðáverka og blæddi mik
ið úr. Auk þess var hann hand-
leggsbrotinn. Sjúkrabifreið flutti
Sturlu I slysavarðstofuna og þaðan
strax I Landspítalann þar sem hann
liggur nú.
Hijómleikar Musica Nova
Derry Deane fiðluleikari og
Roger Drinkali celloleikari munu
ieika á vegum Musica Nova, I
Súlnasal Hótel Sögu næstkom-
andi sunnudag kl. 3 e.h. Á efnis-
skránni verða tónverk sem fæst
hafa heyrzt hér áður, enda er
þetta líklega I fyrsta sinn sem
^ Góðir gestir. Tónlistarfólkið
Derry Deane fiðiuieikari og
Roger Drinkall seilóleikari.
fiðlu og cellóleikari troða hér
upp án aðstoðar pfanós eða
hljómsveitar. Verkin, sem eru
eftir Arthur Honegger, Ernst
Krenek, Bohuslav Martinu og
Karl Kroeger, voru öll samin á
fyrri hiuta þessarar aidar, nema
verk Kroekers, Duo concertante
sem var samið á siðasta ’ári.
Kroeger þessi tilheyrir yngstu
kynslóð amerískra tónskálda, og
er eins og vænta má með öllu
óþekktur hér á landi. Honegger,
Krenck óg Martinu eru hins
vegar meðál þekktari tónskálda
Evrópu, og hafa verk í það
minnsta eins þeirra, Honeggers,
náð hér taisverðum vinsældum.
Amerisku hjónin Derry Dean
og Roger Drinkall, hafa getið
sér gott orð sem einleikarar,
bæði austan hafs og vestan.
Samleikur þeirra hefur þá ekki
síður vakið athygli, og- mega
þau teljast jafnvig á verk nýrri
sem eldri meistara.
i