Vísir - 07.06.1963, Side 1
VISIR
— Föstudagur 7. júní 1963. — 127. tbl.
Ávarp Geirs Hallgrímssonar
borgarstjóra til Reykvíkinga
Sigur viðreisnarinnar er hagur
borgarinnar
Ég treysti því og trúi að Reykvíkingar láti ekki
Framsóknarflokkinn ná þeirri aðstöðu hér í borg
að hann fái stöðvunarvald á Alþingi eftir kosning-
ar sagði Geir Hallgrímsson borgarstjóri í viðtali
við Vísi í morgun.
í Reykjavík er baráttan hörðust. Ég treysti því
að Reykvíkingar standi vörð um hag borgar sinnar
og hindri að Framsóknarflokkurinn og kommúnist-
ar nái glundroðavaldi með atkvæðum Reykvíkinga.
Allir Sjálfstæðismenn verða að gera sér það
Ijóst að til þess að koma í veg fyrir það er nauð-
synlegt að Sjálfstæðisflokkurinn herði að mun
sóknina og fái enn fleiri atkvæði en nokkru sinni
fyrr. Ella er teflt á algjöra tvísýnu. Það sýna kosn-
ingatölumar frá síðustu kosningum.
Framsóknarmenn hafa á und-
angengnu kjörtímabili starfað á
skipulagsbundinn hátt með
kommúnistum í borgarstjóm
Reykjavíkur, í verkalýðshreyf-
ingunni og á þann hátt rofið
einangrun kommúnista og hald-
ið í þeim lífinu.
Framsóknarmenn hafa svo 1
þessari kosningabaráttu tekið
upp merki kommúnista í af-
stöðu og áróðri í utanrikismál-
um, þar semumlandhelgismálið
og Efnahagsbandalag Evrópu
hefur verið að ræða.
Það skýtur þvi skökku við,
þegar Framsóknarmenn halda
þvi fram, að stefna þeirra sé
íslenzk stefna.
Þá vék borgarstjóri að ýms-
um atriðum sem sýna hvem
hag viðreisnin hefir fært höfuð-
borginni, en á þessi atriði drap
hann í ræðu sinni i Háskólabíó
í gærkvöldl
Geir Hallgrímsson sagði:
Það er ekki úr vegi nú á þess-
um tímamótum að rifja upp
ýmsa áfanga á vegi viðreisnar-
innar, að þvi er tekur til sam-
eiginlegra málefna okkar sem
borgarbúa og varðar hagsmuna-
mál Reykjavíkurborgar.
1 þeim efnum minnumst við
í fyrsta Iagi, að viðreisnarráð-
stafanir lögðu grundvöllinn að
nauðsynlegri fjáröflun til þeirra
stórfelldu hitaveitufram-
kvæmda, sem unnið er nú að f
borginni. — Lán Alþjóðabank-
ans, að upphæð 86 millj. kr.,
rauf margra ára hlé á lánveit-
ingum bankans til fslands og
íslenzkra fyrirtækja og bar f
senn vitni um aukið traust er-
lendra fjármálastofnana á efna-
hag landsins eftir viðreisn og
mat þeirra á mikilvægi og nyt-
semi hitaveituframkvæmdanna
sér f Iagi.
Framkvæmd hitaveituáætlun-
arinnar verður lokið á fjórum
árum eins og upphaflega var
ætlað og reynist ein stórfelld-
asta kjarabót Reykvíkinga, þar
sem hitunarkostnaður meðal
fjöiskyldu lækkar um hátt á 4
þúsund kr. á ári, og sparar
þjóðarbúinu gjaldeyri, sem i
stað olíukaupa er hægt að
verja tii annarra þarfa og upp-
byggingar.
Þá er okkur f öðru lagi i
fersku minni, að hlutdeild
sveitarfélaga i söluskatti fékkst
fyrst framgengt, eftir að við-
reisnarstjórn tók við völdum,
en áður hafði formaður Fram-
sóknarflokksins barizt á móti
þessu hagsmunamáli sveitarfé-
Framhald á bls. 5.
VIDRCISN EBA Cl UNDRODI
FUNDUR D-listans i Háskóla-
bíói í gærkvöldi var einn glæsi-
legasti kosningafundur, sem
reykvískir Sjálfstæðismenn hafa
haldið. Hinn stóri salur kvik-
myndahússins, stærsti fundar-
salur landsins, var troðfullur, en
auk þess sátu hundruð manna
í anddyri hússins og fylgdust
með fundinum í sjónvarpi frá
salnum. Um kl. 21 steig dr. Páll
ísólfsson í ræðustól og setti
hinn glæsilega fund með snjöllu
ávarpi, en gaf siðan Bjama
Benediktssyni, dómsmálaráö-
herra, formanni Sjálfstæðis-
flokksins orðið. Aðrlr ræðu-
menn voru: Guðrún P. Helga-
dóttir, skólastjóri, Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, Sveinn
Guðmundsson, vélfræðingur,
Birgir Kjaran, forstjóri, Pétur
Sigurðsson, sjómaður, Jóhann
Hafstein, bankastjóri og Gunnar
Thoroddsen, fjármálaráðherra,
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Var ræðum þeirra allra tek-
ið með kröftugu lófataki.
BJARNI BENEDIKTSSON sagði
m.a. í ræðu sinni: Stjórnarand-
stæðingar sá til illgresis. Eng-
inn skyldi halda það þjóðlnni til
velfamaðar, ef þeir komast að
völdum. Við höfum reynsluna
af þvi frá vinstri stjórnlnni. Sú
saga mundi endurtaka slg, ef
stjórnarandstaðan næði þeim
völdum, sem hún leltar eftlr,
stöðvunarvaldinu. Meira vonar
stjómarandstaðan ekki.
Núverandi stjóm er ekki galia
Framhald á bls. 5.