Vísir - 02.07.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 02.07.1963, Blaðsíða 8
8 V í S í R . Þriðjudagur 2. júlí 1963. t?tgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axei Thorsteinisson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. 1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 iínur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Úrelt skip Fyrir nokkrum dögum birtist viðtal hér í Vísi, sem ðskipta athygli hefur vakið. Þar var rætt við Hilmar Kristjónsson forstjóra fiskveiðideildar Matvælastofn- unar S. þ. Hilmar sagði að ekki væri vafi á því, að íslendingar stæðu þjóða fremst í því að hagnýta sér nýjustu tækni við síldveiðar, og væru íslendingar manna óragastir við að kaupa sér ný Ieitartæki og annan þann útbúnað, sem auka mætti aflann og spara vinnu. Hins vegar lýsti hann nokkurri íurðu sinni yfir því, að við skulum ekki hafa hagnýtt okkur nýjustu tækni á sviði togveiða og benti á margt sem þar hefði komið fram á sjónarsviðið á síðustu árum. Hér fer það held- ur ekki milli mála, að togarafloti okkar er úreltur og stenzt alls ekki lengur kröfur tímans. Það er heldur engin furða. Meginhluti hans var byggður rétt upp úr styrjöldinni með þeirri tækni sem þá tíðkaðist og höfðu reyndar litlar framfarir þá Iengi átt sér stað vegna kyrrstöðutímabils styrjaldarinnar. Nú hafa skuttogarar alllengi verið í notkun hjá öðr- um þjóðum og reynzt vel. Er því lítil áhætta fyrir okk- ur að feta þar í fótspor nágrannaþjóðanna og nýta reynslu þeirra. Breytingarnar á togaranum Narfa sýna að íslenzkir útgerðarmenn hafa opin augun fyrir því sem erlendis er að gerast á sviði togaratækni, þó enn sé skammt komið í því að hagnýta nýjar hugmyndir. Togaraaflinn hefur lengi verið rýr og afkoma togar- anna erfið. Landhelgisbreytingin á auðvitað sinn þátt í því. En úr þessu ástandi verður ekki bætt nema skipin séu af beztu og fullkomnustu gerð og við drögumst ekki aftur úr öðrum Evrópuþjóðum í veiðitækni. Breytingin á ferðamálunum Ferðaskrifstofurnar keppast nú við að auglýsa sum- arleyfisferðir til útlanda, og víða er þar hvert sæti skipað löngu áður en lagt er af stað. Er óhætt að full- yrða, að ekki hafi fleiri farið í kynnis-, skemmti- og fræðsluferðir til annarra landa en nú í sumar. Þetta ber vott um það hve fólk hefur mikið fé aflögu og má segja að skemmtiferðir til útlanda séu einn bezti mælikvarðinn á afkomu almennings. Það er engin til- viljun, að þetta atriði helzt í hendur við mikil fjárráð á flestum öðrum sviðum. Dagar gjaldeyrisskortsins eru horfnir, þegar ferða- maðurinn knúði oft árangurslaust á dyr gjaldeyris- nefndar og þrautalendingin var að kaupa ferðagjald- eyrinn á svörtum markaði. Þó er ekki ýkja langt síðan svo var. Vonandi koma aldrei slíkir tímar aftur, því hér var í rauninni um víðtækt ferðabann að ræða. Meðan hið frjálsa stjórnarfar ríkir og skynsamlegri efnahagsstefnu er fylgt, er engin hætta á að tímar svarta markaðarins komi aftur. Ólafur V. Noregskonungur. Æviatriði Ólafs konungs hafa verið svo títt rakin við ýmis tækifæri, að þau verða ekki endurtekin hér nákvæmlega, heldur verður getið hér nokk- urra atriða úr ágætri grein um hann eftir norska blaðakonu, Esther Normann Treider, en greinin var rituð í tilefni afmæl- isins. Segir blaðakonan frá ýms- um viðburður úr ævi konungs, þar sem hún sjálf var viðstödd. Blær sögunnar. Það var sem blær sögunnar færi um litlu barok-kirkjuna við Stórtorgið í Kristianíu 21. marz 1929, er þau voru gefin þar sam an í hjónaband Ólafur, þá ríkis- arfi, og Martha prinsessa af Svíþjóð. Öllum er þar voru fannst þeir vera áhorfendur að sögulegum viðburði. Fögur og virðuleg vðktu þau aðdáun. „Krónprúishjónin" var orð, sem NorSmönnum varð ekki tamt. Og 1 meðvitund þjóðar- innar voru þau: Ólafur og Martha. Þegar þau voru gefin saman, voru 6 aldir liðnar frá því, er norskur ríkisarfi hafði gengið í hjónaband í höfuðborg Noregs. Fyrsta prinsessan á rúmum 6 öldum. Og árið eftir átti sér stað nýr konunglegur viðburður. og þjóð- arviðburður. Þá var lítil prinsessa skfrð í Hallarkapell- unni — fyrsta prinsessan, sem Ólafur V. Norðmannakon- ungur er sextugur í dag. Hann hlaut ástsældir allrar norsku þjóðarinnar, þegar frá þeirri stundu, er hann sem barn fyrst leit fjöll og firði Noregs, — borinn í land af föður sínum, hinum danska prinsi, er kominn var til þess að taka við konung- dómi, eftir að þjóðin hafði veitt samþykki sitt, eftir skilnaðinn við Svía, og tók sér konungs- heitið Hákon VII, og það niá fullyrða, að þær ástsældir hafi vaxið með hverju árinu, og hafi aldrei verið meiri en í dag. Foreldrar konungs, Hákon VII og Maud drottning, áttu frá fyrstu tíð vinsældum að fagna með norsku þjóðinni, og vax- andi með árunum. I heimsstyrj- öldinni síðari, er nazistar lögðu undir sig Noreg, og konungur- inn og Ólafur þá ríkisarfi, voru útlagar, treystust böndin þeirra milli og norsku þjóðarinnar enn meir, og það var einn glæsileg- asti og bjartasti sögulegi dagur- inn í allri sögu Noregs, er heim var snúið að hildarleiknum lokn um, til endurreisnarstarfsins. Ólafur konungur kom hingað til lands bæði sem ríkisarfi og konungur, sýndi þjóðinni og landinu virðingu og ást með heimsóknum sínum, og ávann sér virðingu, aðdáun og hlýhug allrar þjóðarinnar. fæðzt hafði f Noregi í 629 ár, og hlaut nafnið Ragnhild Alex- andre. Maud drottning hélt son- ardóttur sinni undir skírn. Tveimur árum síðar var það Astrid prinsessa, og þriðja barn ið var drengur, Haraldur ríkis- arfi, skírður á sama stað 1. apríl 1937, en þá hafði ekki fæðzt norskur prins í Noregi í 567 ár. Heimilið að Skaugum. Þegar gamla húsið að Skaug- um brann í maí 1930, sagði Martha prinsessa, að hún vildi eignast heimili — ekki bara stað til að búa á, og þessar óskir tók húsameistari ríkisins, Arne- berg, til greina og reist var í stað hins gamla, sem brann, lágt Framh. á bls. 13 Konungsfjölskyldan kemur heim úr útlegðinni. Myndin er tekin á bryggju í Osló, er híjómsveit leik- ur þjóðsöng Norðmanna, „Ja, vi elsker dette landet“, cftir Björnstjerne Bjömson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.