Vísir - 02.07.1963, Blaðsíða 9

Vísir - 02.07.1963, Blaðsíða 9
V í S I R . Þriðjudagur 2. júlí 1963. 9 3. DRANGEYJARGREIN DnnnanaaaaEanaaaanaLinaaDcaQEjaanaoanaaaciEaaaaDannacDESBasBaaaaanaannuEjEaEiaaQDnaancQaoaQ □□□□□□□□□□□□□ □□□□□□[]□□□□ Um 1 Þórðarhöfða — aðrir segja Hegranesi — bjuggu tvö tröll, karl og kerling. Þau áttu eina kú. Eitt sinn er kýrin beiddi urðu þau tröllhjónin að leiða hana undit naut við hennar hæfi. Það naut var í Tindastóli. Til að stytta sér leið óðu karl klifur og Lendingarstaðurinn við Drangey. Hún er stórgrýtt og þar verður ekki lent nema í ládauðum sjó. og kerling yfir Skagafjörð, karl fór á undan og leiddi kúna en kerling rak á eftir. Var þá enn nótt, en í bakaleið rann dagur og urðu þau öll þrjú að steini. Drangey er kýrin, kerlingin er klettadrangur mikill skammt sunnan við eyna, en karlinn varð að öðrum drang norðan við hana. Nú er hann hruninn í sjó og örlar lítið sem ekki á honum. Kerlingin hefur aftur á móti orðið langlífari og hvorki veður, sjór né tímans tönn hef- ur bitnað á henni. Drangeyju heilsað Það var forn siður, sem hald- izt hefur fram eftir öldum að allir sem fara í fyrsta skipti til Drangeyjar að vori heilsuðu eynni, svo og karlinum á meðan hann var enn við lýði og loks kerlingunni. Kveðjan var svo- látandi: ,,Heil og sæl Drangey mín og allir þínir fylgjarar, heil og sæl kerling mín og allir þln- ir fylgjarar, heill og sæll karl minn og allir þínir fylgjarar!“ Var það venja að formaður bátsins læsi kveðju þessa fyrst- ur, en bátsverjar slðan hver af öðrum unz allir höfðu gert það. Þá sögu hef ég heyrt, að það hafi verið siður Málmeyjar- bænda áður fyrr að flytja grjót út I Drangey á hverju vori. Sóttu þeir grjótið f Þórðar- höfða og máttu hvorki vera fleiri né færri en 14 steinar I hvert sinn. Þetta var einskonar fórn sem Drangey var færð I fyrsta vorróðrinum ár hvert, en ekki er Ijóst I hvaða skyni þetta var gert né heldur hvað við lá ef það var vanrækt. Uppgangan á eyna. Þverhnlpi umlykur Drangey alla og er hún naumast talin geng nema á einum stað. Þar heitir Uppgönguvlk og er lend- ingin stórgrýtt og ill nema I ládauðum sjó. Fyrst er upp bratta, lausa og stórgrýtta skriðu að fara, en f um bað bil miðju bergi kemur maður að sléttum stalli og tæpri götu með hengiflugi fyrir ofan og neðan. Þar er Gvendaraltari og hefur löngum þótt hættulegasti kafli leiðarinnar, ekki slzt fyrir þá sem lofthræddir eru. Á slð- ari árum hefur verið komið fyr- ir handriði á þessum stað, sem menn geta haft sér til stuðn- ings og öryggis. Við Gvendar- altari hefur verið komið fyrir töflu sem faðir vorið er greypt I, vagfarendum til umhugsunar. Grá Gvendaraltari, liggur leiðin upp breiða gjá með lausu grjóti. ofan á helluklöpp. Þar væri engan veginn auðvelt hvorki upp- né niðurgöngu ef ekki væri þar traust festi til að handstyrkja sig á. Slðasti áfang- inn og sá brattasti heitir Upp- gönguklettur. Þar hafði Grettir stigann forðum og lét taka hann upp þegar sást til mannaferða. Seinna var komið þar festi til stuðnings, en síðustu árin var járnstigi festur f bergið og nú má segja að hverjum amlóða sé fært upp á Drangey. Gott vígi. Þessu var öðru vísi háttað til forna eins og Grettissaga ber ljósast vitni um. Þar segir, að þegar Grettir kom til Guðmund- ar ríka á Möðruvöllum til að beiðast ásjár hans, þótti Guð- mundi sér ekki hent að taka við honum, en ráðlagði honum að koma sér þar niður, sem hann gæti verið óhræddur um líf sitt. Ekki kvaðst Grettir vita hvar sá staður gæti verið. „Ey sú liggur á Skagafirði, er heitir Drangev“, sagði Guð- mundur ríki. „Hún er svo gott vfgi að hvergi má komast upp á hana nema stigar sé við látn- ir. Gætir þú þangað komizt þá veit ég ekki þess manns von, er þig sæki þangað með vopn- um eða vélum ef þú gætir stig- ans.“ Reyndar fór það svo að Hær- ingur austmaður kleif Drangey „aftur og fram um biargið“ komst upp þar sem ekki er að að nokkur hafi klifið hvorki fyrr né síðar. En ekki kom það Gretti né Illuga bróður hans að sök svo sem til var ætlazt, heldur varð það klifurgarpinum sjálfum fyrir verstu. Kerlingin sótt heim. Kerlingin — klettadrangur- inn staki fyrir sunnan Drangey þótti þó enn óárennilegri til uppgöngu heldur en nokkurn tíman eyjan sjálf. Þegar horft er á Kerlinguna úr ákveðinni átt er myndun hennar ekki ó- áþekk kvenmanni, enda fyrst og fremst fyrir þá sök að hún hún hefur hlotið nafngift sína. Það er ekki vitað til að Kerl- ingin hafi verið klifin fyrr en vorið 1839. Þá er það ungur Húnvetningur, fullhugi mikill og fræknleikamaður, Jóhann Schram, sonur Gynther’s Schram kaupmanns á Spákonu- fellshöfða sem réðist til upp- göngu á Kerlinguna. 1 fyrstu til- raun hafði Jóhann aðeins kom- izt upp á brjóstin á Kerling- unni, en I þeirri næstu komst hann alla leið upp. Jóhann Schram var löngum talinn fræknasti bjargmaður og klettamaður sem menn höfðu sagnir af. Þeim sem á hann horfðu blöskraði dirfska hans. Hann hafði ítrekað leikið sér að þvf að klífa Kerlinguna og afla þar fugla og eggja. Eitt sinn varð honum fótaskortur svo hann hrapaði, en var þá svo lánsamur að lenda á sillu Framh. á bls 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.